Fara í efni
Miðgarðakirkja

Fyrstu börnin mæta á Hagastein í vikunni

Leikskólinn Hagasteinn við Naustagötu í Hagahverfi í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson

Starfsemi hefst á leikskólanum Hagasteini í Hagahverfi í komandi viku. Þá hefst aðlögun 20 barna á þremur deildum leikskólans og fleiri börn koma síðan til leiks og starfa á næstu vikum. Þetta kom fram á vef Akureyrarbæjar í vikunni eftir að Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri heimsótti skólann og hitti starfsfólk.

Um miðjan september verður fjórða deildin tekin í notkun ásamt sal, annarri forstofu og eldhúsi leikskólans. Fram að þeim tíma verður matur fyrir börnin eldaður annars staðar og fluttur í leikskólann, þannig að þjónustan við börnin verður óbreytt, segir á vef bæjarins.

Framkvæmdir við húsið sjálft og lóðafrágangur hafa að mestu gengið samkvæmt áætlun og er nú unnið hörðum höndum að því að reka smiðshöggið á það sem þarf að klára áður en skólastarfið hefst.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri, lengst til vinstri, ásamt starfsfólki Hagasteins. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

„Sá hluti útisvæðisins sem tekinn verður í notkun við opnun skólans verður tilbúinn að öllu leyti, afgirtur og öruggur. Þótt einhverjar framkvæmdir haldi áfram á öðrum svæðum í kring verður lögð rík áhersla á að þær hafi sem minnst áhrif á daglegt starf leikskólans,“ segir á vef bæjarins.

„Það verður sameiginlegt verkefni starfsfólks og verktaka að tryggja öruggt og rólegt umhverfi fyrir börnin og að við allar framkvæmdir verði hagur barnanna hafður að leiðarljósi.“

Fyrsta skóflustunga að leikskólanum var tekin í maí á síðasta ári. Fullbúinn verður Hagasteinn með átta leikskóladeildum fyrir 160 nemendur á aldrinum eins til sex ára og er stefnt að fullri starfsemi í leikskólanum í byrjun næsta árs.

Hagasteinn lengst til vinstri á myndinni nyrst í Hagahverfi; á milli byggðarinnar þar og Naustahverfis. Mynd: Þorgeir Baldursson