Fara í efni
Menntaskólinn á Akureyri

Blak og krulla heima – fótbolti í Njarðvík

Öldungur 2026, öldungamót í blaki, hefst í Boganum núna í morgunsárið. Alþjóðlega krullumótið Ice Cup byrjar í Skautahöllinni í dag og stendur fram á laugardag. Þór/KA leikur fyrsta útileik sinn í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í Njarðvík í dag. 

Þór/KA sækir nýtt sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur heim í 2. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í dag Upphaflega var leikurinn á dagskrá kl. 18, en var flýtt til 17:30. 

Þór/KA náði í stig á heimavelli gegn FH, 1-1, í fyrsta leik á nýjum heimavelli, en Grindavík/Njarðvík tapaði naumlega fyrir Val á Hlíðarenda, 2-1.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    JBÓ-völlurinn í Njarðvík kl. 17:30
    Grindavík/Njarðvík - Þór/KA

Leikurinn í dag er reyndar ekki fyrsta viðureign þessara liða þó svo Grindavík/Njarðvík sé að stíga sín fyrstu skref í Bestu deild kvenna. Þessi lið mættust í Boganum í vetur í A-deild Lengjubikarsins. Þór/KA vann þann leik 1-0 með marki Bríetar Fjólu Bjarnadóttur.

Þátttakendur frá 12-13 þjóðlöndum

Meðlimir í krulludeild Skautafélags Akureyrar hafa unnið að því hörðum höndum undanfarna daga að gera svellið klárt fyrir krullusteinana, en talsverð vinna liggur í því að ná svellinu réttu og sléttu eftir alls kyns kúnstarinnar reglum. 

Mótið hefur verið haldið nær óslitið frá 2004 og hefur fest sig í sessi á meðan almennra krullara víða um heim. Þetta er í 21. skipti sem mótið er haldið, en það féll niður þegar unnið var að endurnýjun og endurbyggingu á gólplötu Skautahallarinnar, ásamt fleiru, og svo vegna heimsfaraldursins 2020. 

Árni Grétar Árnason og Hallgrímur Valsson, ásamt fleiri meðlimum krulludeildar SA, sjá til þess að svellið verði eins og best verður á kosið fyrir krullufólkið. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Mikil ásókn er í mótið og hafa færri komist að en vildu undanfarin ár. Strax í júlí í fyrra var mótið orðið fullt og byrjað að bætast á biðlista, 28 lið skráð og meirihlutinn erlend lið. Hins vegar hefur ýmislegt haft áhrif á þátttökuna og nokkur erlend lið hætt við komuna til Akureyrar af ýmsum ástæðum. Viðkvæmt ástand í alþjóðamálum gæti þar hafa haft áhrif, en liðin sem hættu við eru flest frá Bandaríkjunum. 

Keppni hefst í dag og lýkur með úrslitaleikjum eftir hádegi á laugardag. Þátttakendur í mótinu koma frá ýmsum heimshornum. Eins og sjá má á fánunum á myndinni hér að ofan eiga Þýskaland, Ungverjaland, Tékkland, Sviss, Slóvakía, Skotland, Sealand, Kanada, Holland, Filippseyjar, England, Bandaríkin og Ísland fulltrúa á mótinu. Sealand er reyndar ekki hefðbundið þjóðríki heldur borpallur með einhvers konar sjálfstæði - sjá hér.

Risahelgi í blakinu

Fram undan er risahelgi í blakinu á Akureyri þegar blakdeild KA heldur Öldung 2026, stærsta blakmót ársins sem ætlað er eldra blakfólki. Spilað er í Boganum og í KA-heimilinu.

Á fimmtudags- og föstudagskvöld er skemmtikvöld á dagskrá í KA-heimilinu, en lokahóf mótsins fer fram í íþróttahúsinu Boganum á laugardagskvöld.