Fara í efni
Menntaskólinn á Akureyri

10 ár frá ævintýrinu ógleymanlega í Nice

Jóna Arnórsdóttir fagnar syni sínum, Aroni Einari Gunnarssyni landsliðsfyrirliða, eftir sigur Íslands á Englandi í Nice. Kristbjörg Jónasdóttir, eiginkona Arons er næst tengdamóður sinni. Lengst til vinstri eru Akureyringarnar Haukur Heiðar Hauksson, sem var í landsliðshópnum, og Gísli Páll Helgason. Myndir: Skapti Hallgrímsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 130

Hvar varstu mánudaginn 27. júní árið 2016?

Margir geta ef til vill svarað spurningunni fljótt og vel. Sé hins vegar spurt: Hvar varstu þegar Ísland vann England á Evrópumótinu í fótbolta í Frakklandi, geta sennilega enn fleiri svarað.

Það var sem sagt mánudaginn 27. júní 2016 sem þessi sögulegasti landsleikur íslenska karlalandsliðsins fram að því var á dagskrá – í dag eru 10 ár frá hinum magnaða, sjóðheita mánudegi í borginni góðu á frönsku rívíerunni.

Fæstum þykir hugsanlega 10 ára ljósmynd „gömul“ en ekki er hægt að sleppa því tækifæri að rifja ævintýrið í Nice upp, svo merkilegur sem sá sigur var og vegna þess að Akureyringar áttu glæsilega fulltrúa í liðinu eins og flestir muna án efa. Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason voru báðir lykilmenn, og Haukur Heiðar Hauksson var auk þess í leikmannahópnum. Því er hér ekki birt bara ein „gömul“ mynd heldur fjölmargar. Margir Akureyringar voru líka í hópi áhorfenda og sá sem þetta skrifar var á vellinum fyrir hönd Morgunblaðsins, vopnaður myndavélum.

Leikurinn var í 16-liða úrslitum EM og Ísland vann 2:1; Wayne Rooney kom Englandi í 1:0 með marki úr vítaspyrnu strax á 4. mín. en Ragnar Sigurðsson minnkaði muninn aðeins tveimur mín. síðar. Aron Einar Gunnarsson tók þá eitt af sínum frægu, löngu innköstum, Kári Árnason skallaði boltann inn á markteig þar sem Ragnar var mættur og skoraði. Það var svo á 18. mín. sem Kolbeinn Sigþórsson gerði sigurmarkið.

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Karen Nóadóttir og Kristinn Björnsson.

Áskell Þór Gíslason og Steingrímur Birgisson, einn Íslandsmeistara KA í knattspyrnu 1989.

Vignir Már Þormóðsson og Harpa Steingrímsdóttir.


Aron Einar Gunnarsson og Hannes Þór Halldórsson.


Gylfi Þór Sigurðsson og Birkir Bjarnason.

Byrjunarlið Íslands. Aftari röð frá vinstri: Ragnar Sigurðsson, Jón Daði Böðvarsson, Kári Árnason, Kolbeinn Sigþórsson, Birkir Már Sævarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Fremri röð frá vinstri: Jóhann Berg Guðmundsson, Ari Freyr Skúlason, Birkir Bjarnason, Hannes Þór Halldórsson og Aron Einar Gunnarsson fyrirliði.

Neðst fyrir miðri er kunnugleg fjölskylda; Rúnar Sigtryggsson, í svörtum bol, honum á vinstri hönd sonurinn Andri Már Rúnarsson – nú atvinnumaður og landsliðsmaður í handbolta, þá Eva Ingibjörg Rúnarsdóttir og síðan Heiða Erlingsdóttir.

Orri Sigurjónsson, lengst til vinstri, og Baldvin heitinn Rúnarsson með Nike húfuna.

Birkir Bjarnason var gjarnan í grenndinni þegar landsliðið skoraði á stórmótum, ef hann skoraði ekki sjálfur. Þarna ber hann við stöngina andartaki eftir að Ragnar Sigurðsson (númer 6) jafnaði 1:1 gegn Englendingum.

Birkir Bjarnason og enski bakvörðurinn Kyle Walker.

Roy Hodgson þjálfari Englendinga og Birkir Bjarnason, númer 8. Birkir steig fyrstu alvöru skrefin í meistaraflokki 17 ára gamall með norska liðinu Viking í Stavangri þegar Hodgson var þjálfari þar á bæ.

Varamenn og starfsmenn Íslands voru spenntir eins og aðrir á síðustu andartökum leiksins. Haukur Heiðar Hauksson lengst til vinstri, þá Hörður Björgvin Magnússon, Hjörtur Hermannsson, Kolbeinn Sigþórsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Jón Daði Böðvarsson og Sverrir Ingi Ingason.

Hvað er mikið eftir? Birkir Bjarnason og Damir Skomina dómari. Englendingurinn Gary Cahill lengst til hægri.

Lokaflautið! Ari Freyr Skúlason (23) áttar sig fyrstur á að Skomina dómari hefur flautað leikinn af og sigur á Englandi er staðreynd. Frá vinstri: Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson, Kyle Walker, Gary Cahill, Ari Freyr, Joe Hart markvörður Englands sér í sóknina, Birkir Már Sævarsson, Birkir Bjarnason, Hannes Þór Halldórsson og Arnór Ingvi Traustason.

Þegar dómarinn flautaði til leiksloka tóku íslensku leikmennirnir á rás yfir endilangan völlinn því flestir stuðningsmanna Íslands á áhorfendasvæðinu þær. Aron Einar kom þangað á harðaspretti og renndi sér í grasinu.

Hvar eru þær? Aron Einar skimar eftir konu sinni og móður, Kristbjörgu Jónasdóttur og Jónu Arnórsdóttur.

Aron Einar og Kristbjörg faðmast. Við hlið þeirra eru Akureyringarnir Haukur Heiðar Hauksson og Gísli Páll Helgason; Haukur Heiðar tekur mynd af þeim vinunum með símanum.

Til hamingju sonur! Jóna móðir fyrirliðans fagnar syninum.

Kolbeinn Sigþórsson og Birkir Bjarnason. Jón Daði Böðvarsson og Haukur Heiðar Hauksson á milli þeirra, Emil Hallfreðsson lengst til vinstri.

Aron Einar biður íslensku stuðningsmennina um hljóð áður en hann tók sig til og stjórnaði víkingaklappinu fræga!


Það var súrrealískt að leik loknum, þegar forkólfar KSÍ, núverandi og fyrrverandi, ásamt forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaeff, gengu út á völlinn til að klappa fyrir stuðningsmönnunum að sjá Dorrit og Eggert Magnússon, heiðursformann KSÍ, stíga trylltan dans! Lokadansinn var ekki stiginn innan vallar þetta kvöld, öfugt við það sem flestir bjuggust við.

Íslendingar voru á forsíðu franska íþróttadagblaðsins L'Equipe tvo daga í röð eftir Englandsleikinn; GÉNIAL var fyrirsögnin morguninn eftirleikinn, sem þýða mætti sem frábært eða jafnvel afburðasnilld. „Hinir dásamlegu Íslendingar slógu Englendinga úr leik og spila næst í fjórðungsúrslitum gegn „þeim bláu“ komandi sunnudag,“ sagði blaðið.

Degi síðar var fyrirsögnin svo GARE AUX VIKINGS; Varið ykkur á víkingunum. Frakkar lentu þó ekki í neinum vandræðum gegn Íslendingum í París; þeir voru númeri of stórir fyrir víkingana og unnu 5:2.