Menntamál
Hús BSO fæst gefins, rifið ef enginn þiggur
07.05.2026 kl. 15:10
Mynd: Þorgeir Baldursson
Viltu eignast húsið margumtala þar sem Bifreiðastöð Oddeyrar – leigubílastöðin BSO – hafði aðsetur í um 70 ár, þar til í síðustu viku? Akureyrarbær auglýsir í dag að húsið fáist gefins en flutningur þess af lóðinni við Strandgötu verður á ábyrgð og kostnað þess sem eignast húsið. Þigg enginn húsið að gjöf verður það rifið.
Svohljóðandi tilkynning birtst á vef Akureyrarbæjar í dag:
Akureyrarbær auglýsir húsnæði til flutnings
Um er að ræða húsnæði sem hefur hýst rekstur Bifreiðastöðvar Oddeyrar í um 70 ár, stærð húsnæðis er 70 m² og var byggt árið 1956 ásamt viðbyggingum.
- Húsnæðið er afhent án endurgjalds en flutningur hússins er á ábyrgð og kostnað þess sem valin er.
- Allar nánari upplýsingar eru gefnar í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is.
- Bjóðandi skal skila inn upplýsingum rafrænt á sama netfang eigi síðar en kl. 11:00 fimmtudaginn 21. maí 2026. Fram þarf að koma hvað húsnæðið yrði notað fyrir, hvort húsnæðið yrði nýtt til almenningsnota og hvar húsnæðið yrði staðsett.
- Bjóðendum verðu kynnt niðurstaðan eftir að mat tilboða liggur fyrir.
- Húsnæðið verður afhent í því ástandi sem það er í og er það á ábyrgð bjóðanda að kynna sér aðstæður húsnæðis áður en tilboð er gert.
- Húsnæðið þarf að vera farið úr Strandgötu eigi síðar en 15. júní 2026 að öðrum kosti verður húsnæðið rifið og því fargað.
- Við mat á tilboðum er horft til þess hvort húsnæðið verði nýtt til almenningsnota (80%) og fyrirhugaðrar staðsetningar (lóðar) (20%).