Fara í efni
Menntamál

120 MA-ingar sviðsetja lögmannsljóskuna

Verkið er mannmargt, en á sviði eru u.þ.b 40 leikarar og dansarar þegar mest lætur. Mynd: Malen Áskelsdóttir

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri frumsýnir leikverkið Ljóska í gegn í Hofi í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.00. Verkið er byggt á söngleiknum Legally blonde - The Musical, leikgerð kvikmyndarinnar Legally blonde sem sló í gegn árið 2001 og fjallar um ljósku sem leynir á sér, þegar hún brýtur staðalímyndina um að glæsilegar konur sem hafa gaman af tísku og bleikum lit stigi ekki í vitið.

Okkur hefur gengið mjög vel, og krakkarnir eru ótrúlega metnaðarfull og hæfileikarík

Sem fyrr er öflugur hópur í kring um uppsetningu LMA úr hópi nemenda, en í ár eru um það bil 120 ungmenni sem sjá um alla umgjörð, tónlist og leik. Leikaraparið Benóný Arnórsson og Birta Sól Guðbrandsdóttir leikstýra, en þau eru nýútskrifuð úr leiklistarskóla í Danmörku og flutt heim með 13 mánaða son sinn. Benóný er fyrrum nemandi í MA. Blaðamaður akureyri.net heyrði í Benóný og Birtu.

 

Birta Sól og Benóný. Mynd: RH

Frá æfingu á sviðinu í Hamraborg. Mynd: Malen Áskelsdóttir

Óvænt á réttri hillu

„Við fylgjum aðalpersónunni Elle Woods á hennar ferðalagi að finna sjálfa sig, en hún býr í Malibu í Flórída og sagan hefst þegar hún eltir fyrrverandi kærastann í lagadeild Harvardháskóla til þess að freista þess að ná honum aftur til sín,“ segir Benóný. „Mörgum þykir lagadeildin ekki vera staður fyrir hana, en svo kemur í ljós að það var öðru nær.“ 

„Leikgerð sögunnar um Elle Woods er söngleikur, þó að bíómyndin sé ekki söngvamynd. Tónlistin er samin fyrir þennan söngleik, og í sumum tónlistaratriðunum er í raun verið að bæta við atriðum í söguna sem eru ekki í bíómyndinni. Hljómsveit nemenda spilar alla tónlistina, sem eru u.þ.b. 30 lög. Dansteymið okkar hefur svo samið alla dansana við tónlistina,“ segir Birta.

Frumraun í leikstjórastólnum

„Okkur hefur gengið mjög vel, og krakkarnir eru ótrúlega metnaðarfull og hæfileikarík. Þetta verk krefst metnaðar, og þau standast allar kröfur og vel það. Ferlið hefur gengið vonum framar,“ bætir Birta við, en verkið er frumraun þeirra beggja í leikstjórastólnum. „Þetta er í rauninni allt mjög nýtt fyrir okkur, svona nýútskrifuð,“ segir Benóný að lokum, en hann var sjálfur í LMA á sínum Menntaskólaárum.

 

Kvikmyndin Legally blonde sló í gegn árið 2001 og hefur haldið stöðu sinni sem vinsæl nútíma kvenhetjusaga. Benóný og Birta segja að leikgerðin sé nokkuð trú söguþræðinum í myndinni, en alls ekki eins.