Fara í efni
MA – VMA

Þórsarar í sjöunda sæti eftir tap í Njarðvík

Juan Guardia Hermida kom Þór í 1:0 með laglegu skallamarki. Þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar töpuðu 3:1 fyrir Njarðvíkingum fyrir sunnan í gær í Lengjudeildinni í knattspyrnu, næst efstu deild Íslandsmótsins. Þórsliðið er nú í áttunda sæti að átta leikjum loknum með 11 stig; hefur unnið þrjá leiki, gert tvö jafntefli og tapað þremur leikjum.

Leikurinn í Njarðvík var jafn og býsna opinn; bæði lið fengu góða möguleika til þess að skora en það tókst ekki fyrr en klukkutími var liðinn.  Hægra bakvörðurinn Juan Guardia Hermida kom Þór þá í 1:0. með föstum skalla úr markteignum eftir hornspyrnu.

Adam var ekki lengi í Paradís eins og stundum vill verða og Njarðvíkingar jöfnuðu leikinn aðeins hálfri annarri mínútu eftir að Hermida skoraði fyrir Þór. Tómas Bjarki Jónsson skallaði að marki eftir klafs í vítateignum en Oumar Diouck breytti stefnu boltans; stóð framan við Aron Birki markvörð og skallaði í netið. Þórsarar töldu Diouck rangstaðan en svo var ekki. 

Tíu mínútum síðar komust Njarðvíkingar í 2:1. Valdimar Jóhannsson skoraði þá með skalla eftir fyrirgjöf; Þórsarar steingleymdu sér og Valdimar var dauðafrír á markteignum.

Litlu munaði að Þórsarar næðu að jafna þegar nokkrar mínútur lifðu leiks. Ragnar Óli Ragnarsson skallaði að marki af stuttu færi eftir aukaspyrnu en Aron Snær Friðriksson varði frábærlega. Þegar Þórsarar lögðu allt í sölurnar til þess að jafna í lokin náðu heimamenn skyndisókn og Viggó Valgeirsson skoraði rétt áður en flautað var til leiksloka.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni