Fara í efni
Listasafnið á Akureyri

Segir frá skreytingum í handritum síðari alda

Kjartan Atli Ísleifsson sagnfræðingur segir frá rannsóknum sínum og leit að skreyttum handritum í handritasafni Landsbókasafns, í fyrirlestri á Minjasafninu á Akureyri á morgun, fimmtudag. Þetta er síðasti fyrirlestur í röðinni Fortíðin í nýju ljósi!, vel heppnuðu samstarfi safnsins, Sagnfræðingafélags Íslands og AkureyrarAkademíunnar.
 
Í fyrra kom út bókin Skrifarar sem skreyttu handrit sín. Alþýðulist og skreytingar í handritum síðari alda eftir Kjartan Atla en bókin er afrakstur rannsókna sem Kjartan hefur unnið að undanfarin ár á skreytingum og myndrænu efni í íslenskum pappírshandritum frá lokum 17. aldar til upphafs þeirrar 20.
 
„Á 16. öld var byrjað að prenta bækur á Íslandi. Þar með var nýr textamiðill kominn til sögunnar en öldum saman höfðu Íslendingar skrifað upp handritaðan texta á skinn. Þrátt fyrir tilkomu hins nýja miðils lifði handritið góðu lífi fram yfir aldamótin 1900,“ segir í tilkynningu frá Minjasafninu í tilefni fyrirlestursins.
 
Í erindinu mun Kjartan segja frá rannsóknum sínum og leit sinni að skreyttum handritum í handritasafni Landsbókasafns. Greint verður frá helstu flokkum skreytinga sem birtast í handritum síðari alda og ræddar verða mögulegar fyrirmyndir þeirra. Þar að auki verður til umfjöllunar einn listaskrifari, Geir Vigfússon (1813–1880) sem bjó lengst af í Fjörunni á Akureyri. Geir var tómthúsmaður en í frítíma sínum sinnti hann ýmsum fræðimannsstörfum og liggur eftir hann töluvert af fagurlega skeyttum handritum.
 
Bókin Skrifar sem skreyttu handrit sín var tilnefnt til verðlauna Hagþenkis árið 2026, fagfélags höfunda fræðirita og kennslugagna og skylds efnis.
 
  • Hvar: Aðalstræti 58
  • Hvenær: fimmtudaginn 19. mars
  • Klukkan: 17:00-17:50
  • Aðgangur ókeypis