Fara í efni
Leikskólar

Þríleikurinn og tvær að auki um Hungurleikana

AF BÓKUM – 66

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir_ _ _

Ég ætla að tala um bækur Suzanne Collins sem þið finnið í ungmennadeild Amtsbókasafnsins, en þar er nóg af góðum bókum fyrir fullorðna líka. Frægustu bækur Collins eru Hungurleikarnir sem var þríleikur; Hungurleikarnir, Eldar kvikna og að lokum Hermiskaði. Ég las þríleikinn um Hungurleikana á sínum tíma (fyrir 12-15 árum sirka) og var mjög hrifin af þeim. Kvikmyndirnar komu svo út og ég var einnig mjög hrifin af þeim.

Hungurleikarnir gerast í framtíðarríkinu Panem þar sem er ein höfuðborg sem stjórnar 12 umdæmum. Á hverju ári eru stúlka og drengur úr hverju umdæmi fyrir sig dregin til að keppa í hungurleikunum, þar sem þau keppast upp á líf og dauða í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Aðeins einn sigurvegari stendur svo uppi í lokin. Þetta er leið höfuðborgarinnar til að sýna umdæmunum að þau stjórna þeim, minna þau á hver ræður og hvað þau eru fær um að gera. Þau hafa þó sigurvegara til að halda einhverri örlítilli von í hjörtum fólksins og að þau gefist ekki alveg upp. Þetta er bæði refsing fyrir uppreisn og stjórnunartæki til kúgunar.

Í fyrstu bókinni fylgjumst við með Katniss Everdeen úr 12. umdæmi sem býður sig fram þegar yngri systir hennar er dregin í 74. hungurleikana. Katniss er sterk og góðhjörtuð en málin þróast þannig að hún verður táknmynd uppreisnar umdæmanna. Ég vil nú ekki segja of mikið. En bækurnar þrjár fjalla allar um hennar líf og baráttu umdæmanna við höfuðborgina og forsetann Snow.

Síðan þríleikurinn kom úr hafa tvær nýjar bækur komið út úr sama heimi og las ég þær báðar í fyrra. Þær enduðu með að vera tvær af mínum uppáhalds bókum af þeim fjörutíu sem ég las 2025. Fyrri bókin Danskvæði um söngfugla og slöngur fjallar um æsku illa forsetans Snow, hvernig hann varð eins og hann er og hvernig hann komst til valda. Sú bók hefur einnig verið kvikmynduð og kom myndin út árið 2023. Ég var virkilega ánægð með þá kvikmynd líka og fannst vel til tekist.

Í fyrra kom svo nýjasta bókin út, Sól rís á sláttudegi, en hún gerist einnig í fortíðinni og segir frá 50. hungurleikunum, þegar Haymitch sem er í fyrri bókunum ráðgjafi Katniss keppir sjálfur í leikunum. Þar sem hann er eini lifandi sigurvegari 12. umdæmis dæmist það sjálfkrafa á hann að fylgja öllum keppendum 12. umdæmis á leikana. Hann er þunglyndur og drykkfelldur í fyrri bókunum og fáum við í þessari nýjustu bók að lesa hvað hann sjálfur þurfti að þola á sínum yngri árum. Kvikmynd upp úr bókinni kemur svo út í nóvember á þessu ári, svo nú er tíminn til að lesa eða rifja upp bækurnar.

Mér þótti þessar bækur allar sem ein mjög góðar og var svo spennt að lesa þessar nýrri bækur í fyrra, að þekkja sjónarsviðið en fá dýpri skilning á öllu sem var að gerast í fyrstu bókunum. Þær eru auðlesnar og einfaldar þó þær fjalli um erfið mál. Ég mæli heilshugar með seríu Suzanne Collins. Mæli líka með að skoða bækurnar í ungmennadeildinni.