Fara í efni
Leikskólar

Þór/KA í Boganum í dag – bikar og deild í vikunni

Þór/KA tekur á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks í Boganum í dag kl. 17 í 9. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Þórsarar fara til Ísafjarðar og mæta Vestra í Mjólkurbikarnum á miðvikudag og bæði Þór og KA eiga heimaleiki á sunnudag. KA fær Víking í heimsókn og Þórsarar taka á móti Selfyssingum.

MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ - fótbolti

Keppni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu er opin upp á gátt eftir að efsta liðið, Þróttur, tapaði sínum fyrsta leik í deildinni í gær. FH og Breiðablik geta náð Þrótti á toppnum með sigrum í dag, en leikmenn Þórs/KA vilja örugglega hafa eitthvað um það að segja því Þór/KA tekur á móti Breiðabliki í Boganum í dag og með sigri getur Þór/KA aftur nálgast toppliðin eftir tap í síðasta deildarleik. FH tekur á móti Tindastóli í dag, en aðrir leikir 9. umferðarinnar voru spilaðir í gær.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    Boginn kl. 17:00
    Þór/KA - Breiðablik

Leikurinn í dag er næststíðasti leikur Þórs/KA áður en gert verður tæplega sex vikna hlé á deildarkeppninni vegna þátttöku Íslands á EM.

MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ - fótbolti

Karlalið Þórs er eina Akureyrarliðið sem enn er með í Mjólkurbikarkeppninni og fær tækifæri á miðvikudag til að koma sér í undanúrslit keppninnar. Þórsarar sækja þá Vestramenn heim á Ísafjörð. 

  • Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu, átta liða úrslit
    Kerecic-völlurinn á Ísafirði kl. 17:30
    Vestri - Þór

Vestri gerði 3-3 jafntefli við HK í 32ja liða úrslitum keppninnar og fór áfram eftir vítaspyrnukeppni. Vestramenn mættu svo hinu Kópavogsliðinu, Breiðabliki, í 16 liða úrslitum á Kópavogsvelli og unnu 2-1.

Þórsarar unnu 7-0 sigur á Magna í 2. umferð bikarkeppninnar, 3-1 sigur á ÍR í 32ja liða úrslitum og unnu svo 4-1 útisigur á Selfyssingum í 16 liða úrslitunum í maí.

SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ - fótbolti

Það er stutt á milli leikja hjá Þórsliðinu þessa vikuna því eftir ferðalag til Ísafjarðar tekur við undirbúningur fyrir leik í 9. umferð Lengjudeildarinnar á sunnudag. 

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Boginn kl. 16:00
    Þór - Selfoss

Selfyssingum hefur gengið illa það sem af er deildarkeppninni, hafa unnið tvo leiki og sitja í næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig. Þórsarar eru í 7. sæti með 11 stig, jafn mörg stig og Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík, sem eru ofar á markamun.

- - -

KA-menn fá verðugt verkefni næsta sunnudag þegar þeir fá Víkinga í heimsókn norður. Eftir tvo sigra KA í röð og nokkra hækkun í töflunni kom tapleikur á Ísafirði og situr KA nú í 10. sæti deildarinnar með 12 stig úr 11 leikjum, þremur stigum ofan við ÍA sem er í neðsta sætinu og þremur stigum neðan við Fram sem er í 6. sætinu. Víkingar eru hins vegar í toppbarátunni, eru í 2. sæti deildarinnar með 20 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllurinn kl. 19:15
    KA - Víkingur