Landsbankahúsið við Ráðhústorg
Þór/KA tekur á móti Stjörnunni í bikarnum
15.05.2026 kl. 06:00
Arna Sif Ásgrímsdóttir og Hulda Hrund Arnarsdóttir í baráttu í deildarleik Þórs/KA og Stjörnunnar í liðinni viku, leik sem lauk með 2-2 jafntefli. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.
Bikaræðið í fótboltanum heldur áfram og komið að 16 liða úrslitum hjá konunum. Meirihluta leikjanna var raðað á daginn í dag vegna anna fjölmiðlafólks í kringum kosningar og aðra viðburði. Þór/KA fékk heimaleik og tekur á móti Stjörnunni, í annað skiptið á rúmri viku því þessi sömu lið mættust á Akureyri í 3. umferð Bestu deildarinnar í liðinni viku.
- Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu
16 liða úrslit
Þórsvöllurinn (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 18
Þór/KA - Stjarnan
Bæði liðin eru að koma inn í bikarkeppnina í 16 liða úrslitunum, eins og reglan er með liðin í Bestu deildinni. Þór/KA fór lengra en Stjarnan í bikarkeppninni í fyrra, féll úr keppni í átta liða úrslitum, eftir tap á heimavelli fyrir FH, en Stjarnan féll út í 16 liða úrslitum þegar liðið tapaði fyrir Tindastóli á heimavelli.