Fara í efni
Körfuknattleikur

Þurfum að hefna fyrir fyrri leikinn gegn KA

Aron Birkir Stefánsson, markvörður og fyrirliði Þórs. Mynd: Ármann Hinrik

„Ég viðurkenni fúslega að þegar leikjaplanið fyrir Bestu deildina kom út í vetur þá leit ég fyrst á dagsetningarnar á leikjunum tveimur gegn KA!“

Þetta segir Aron Birkir Stefánsson fyrirliði og markvörður knattspyrnuliðs Þórs sem nú býr sig ásamt liðsfélögum sínum undir Akureyrarslaginn gegn KA í kvöld en hann hefst á nýja KA-vellinum klukkan 19.15.

Félögin höfðu ekki mæst í deildaleik eftir að Aron hóf að verja mark Þórs árið 2017 og áttust við í fyrsta skipti í tólf ár á Íslandsmótinu í byrjun maí, þegar KA krækti sér í þrjú stig með marki Hallgríms Mars Steingrímssonar rétt fyrir leikslok á nýja heimavellinum hjá Þór.

Aron Birkir hefur leikið mjög vel í marki Þórs í sumar. Hér ver hann vítaspyrnu Skagamannsins Viktors Jónssonar með tilþrifum. Mynd: Ármann Hinrik

Þeir stálu fyrri leiknum

„Tilfinningin fyrir leiknum er góð, sérstaklega eftir sterka frammistöðu og góðan sigur gegn Víkingi í síðasta leik. Svo þurfum við að hefna fyrir það sem gerðist í fyrri leiknum gegn KA. Þeir stálu honum, 1-0, sem var ansi sárt,“ sagði Aron þegar akureyri.net ræddi við hann eftir æfingu Þórsliðsins.

Aron á von á svipaðri stemningu þegar liðin mætast aftur, í fyrsta leiknum á nýjum velli KA þar sem von er á um tvö þúsund áhorfendum. Hann sagðist ekki kvíða því að spila þar.

Ekki upplifað svona stemningu áður

„Nú komast fleiri á leikinn, það er það besta. Það voru næstum því tvö þúsund manns á fyrri leiknum á okkar heimavelli, sem var frábært, og það stefnir í svipaðan fjölda á þessum leik. KA-menn eru að fá flotta aðstöðu, sem er bara geggjað, og það gefur leiknum meira áhorf og vægi. Því fleiri sem komast á leikinn, því betra.

Þetta var einstaklega skemmtilegt þegar liðin mættust í vor, þá var stemning sem maður hafði ekki upplifað áður. Allt í einu voru komnir áhorfendur frá KA fyrir aftan markið hjá manni, og það var ákveðið verkefni að eiga við það. En þeir voru bara flottir og þetta var gaman.“

- Þetta verður eins á KA-vellinum, en núna verða stuðningsmenn Þórs fyrir aftan annað markið!

„Já, það verður sennilega aðeins skemmtilegra! Þetta verður geggjað, ég er hrifinn af þessu. Það mættu fleiri vellir vera svona.“

Daninn Christian „Greko“ Jakobsen, leikmaður Þórs, og KA-maðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson í viðureign liðanna á Þórsvellinum í maí. Mynd: Ármann Hinrik

Notum Víkingsleikinn sem bensín

Aron vonast til þess að sigurinn óvænti gegn Víkingi um síðustu helgi sé vendipunktur tímabilsins hjá Þórsurum sem höfðu fram að honum ekki unnið í ellefu leikjum í röð og mæta til leiks í tólfta og neðsta sæti en eru þó aðeins þremur stigum á eftir KA sem situr í tíunda sætinu.

„Já, ég vona að við höfum náð að hrista þessa taphrinu af okkur. Við ákváðum að núllstilla okkur eftir landsleikjapásuna, tókum þá stig gegn FH og svo sterkt stig á móti KR skömmu síðar. Síðan kom þessi Víkingsleikur og nú þurfum við að taka hann með okkur inn í framhaldið og nota hann sem bensín. Það var virkilega sætt að sigra Víkingana og ná loksins að vinna leik. Við höfðum ekki unnið í einhverja tvo mánuði, síðan við lögðum Fram að velli. Þetta var klárlega mjög góð tilfinning og gefur okkur meira.“

Þarna viljum við vera næstu árin

Aron hefur varið mark Þórs í níu ár, eins og áður hefur komið fram, og segir að upplifunin af því að leika loksins með uppeldisfélaginu í efstu deild sé frábær.

Þórsarar tryggðu sér sæti í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins, í lokaumferð Íslandsmótsins í fyrra með sigri á Þrótti í Reykjavík. Og þá var gleðin sannarlega við völd ... Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Ég viðurkenni að það var markmiðið á sínum tíma að spila með Þór í efstu deild og það tókst loksins í fyrra þegar við unnum 1. deildina og fórum upp. Gengið hefur ekki verið frábært í sumar en samt er þetta búið að vera gaman og öðruvísi en áður. Maður var búinn að vera lengi að spila við sömu liðin ár eftir ár en núna hafa þetta verið nýir vellir og nýir mótherjar, umgjörðin er stærri en áður og þetta er miklu skemmtilegra allt saman. Þarna viljum við vera áfram næstu árin. Það er planið,“ sagði Aron Birkir.

- Þú hefur aldrei verið að velta því fyrir þér að fara annað á þessum níu árum?

„Nei, aldrei af neinni alvöru. Aðal markmiðið var alltaf að komast upp með Þór og festa liðið í efstu deild. Mig langaði aldrei að breyta til fyrr en því markmiði væri náð. Núna njótum við þess að vera hérna í þessari deild og málið númer eitt, tvö og þrjú er að halda liðinu uppi.“

Risaleikur með þrjú stig í boði

- Og þessi leikur við KA er lykilleikur fyrir ykkur í þeirri baráttu. Þið þurfið virkilega þrjú stig úr þessum leik, ekki satt?

„Jú, það er enginn feluleikur með það. Sama á móti hverjum við hefðum verið að spila í næsta leik, þá var ljóst að þetta yrði risaleikur með mikilvæg þrjú stig í boði. En ég held að það verði fyrst og fremst skemmtileg upplifun að mæta KA og vonandi endar leikurinn með Þórssigri, sem er auðvitað markmiðið,“ sagði Aron Birkir Stefánsson, markvörður og fyrirliði Þórs.