Fara í efni
Körfuknattleikur

Einn lykilleikja í harðnandi fallbaráttu

Þórsarinn Kristófer Kristjánsson og KA-maðurinn Samuel Kroon í deildarleiknum á heimavelli Þórs í byrjun maí. Þeir verða væntanlega báðir í eldlínunni í kvöld. Mynd: Ármann Hinrik

Baráttan um Akureyri á nýja KA-vellinum í kvöld snýst ekki bara um stoltið og montréttinn í bæjarfélaginu því viðureign KA og Þórs er sannkallaður lykilleikur í síharðnandi botnbaráttu Bestu deildar karla í fótbolta.

Í gærkvöld urðu sviptingar í neðri hluta deildarinnar þegar Skagamenn tóku upp á því að valta yfir Stjörnuna, 5-1, og skildu Garðabæjarliðið eftir í vondri stöðu. FH-ingar náðu í frekar óvænt stig á útivelli með markalausu jafntefli við Fram og nú er hægt að segja að átta af tólf liðum deildarinnar séu annars vegar í mikilli fallhættu og hins vegar í harðri keppni um tvö síðustu sætin í efri hlutanum, þegar deildinni verður skipt í tvennt að 22 umferðum loknum.

Valur er með 19 stig, Keflavík 19, ÍA 18, ÍBV 16, Stjarnan 15, KA 14, FH 13 og Þór 11 stig í sætum fimm til tólf í deildinni. Fyrir utan Akureyrarslaginn sem hefst klukkan 19.15 á KA-vellinum mætast í kvöld Breiðablik og ÍBV, og að þessum tveimur leikjum loknum hafa öll liðin í deildinni leikið 16 leiki.

Mikil spenna er í bænum fyrir rimmu Akureyrarfélaganna í kvöld. KA-menn gerðu 2:2 jafntefli við ÍBV í síðustu umferð en Þórsarar unnu mjög óvæntan sigur á Íslandsmeisturum Víkings á heimavelli. Mynd: Ármann Hinrik 

KA getur komist upp í áttunda sæti

Fyrir KA er leikurinn í kvöld tækifæri til að klifra upp í áttunda sætið með 17 stig, svo framarlega sem Eyjamenn vinna ekki í Kópavogi. KA-menn mæta til leiks með fjögur stig úr síðustu tveimur leikjunum, ásamt því að hafa þar á undan tapað afar naumlega fyrir toppliði Víkings. Þeir hafa því rétt sinn hlut nokkuð eftir að hafa tapað sex leikjum í röð á erfiðum kafla fyrr í sumar.

Eins færi KA upp fyrir Stjörnuna með jafntefli, á hagstæðari markatölu, og yrði þá í níunda sætinu að sextán umferðum loknum. Þrír næstu leikir KA eru gegn Keflavík, FH og Val.

Þór getur farið upp fyrir FH

Fyrir Þórsara dugir ekkert annað en sigur í kvöld. Þeir fengu mikinn byr í seglin með því að vinna Víking óvænt í síðasta leik og höfðu þar á undan lagað sína stöðu aðeins með jafnteflum við KR og FH. Sigur í kvöld myndi fleyta Þórsurum upp fyrir FH og í ellefta sætið, auk þess sem þeir næðu KA að stigum. Þá yrðu KA og Þór með 14 stig hvort og FH 13, með Stjörnuna og ÍBV rétt fyrir ofan.

Jafntefli væri að sjálfsögðu betra en ekkert fyrir Þór. Þá væru KA með 15, Stjarnan með 15, FH með 13 og Þór með 12 stig í fjórum neðstu sætunum. Þrír næstu leikir Þórs eru gegn Breiðabliki, ÍA og Keflavík.

Fjarri góðu gamni. Þeir eru í leikbanni og því ekki með í kvöld, frá vinstri: Ágúst Eðvald Hlynsson, Birgir Baldvinsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Jeppe Pedersen. Myndir: Ármann Hinrik

Fjórir í banni og talsverð forföll

Bæði liðin koma löskuð til leiks í kvöld. Hjá KA eru Birgir Baldvinsson og Jeppe Pedersen í banni, lánsdvölinni hjá Sveini Margeiri Haukssyni lauk á dögunum þegar Víkingar kölluðu hann til baka, auk þess sem meiðslalistinn er langur.

Ívar Arnbro Þórhallsson ver mark KA í fjarveru hins þrautreynda Steinþórs Más Auðunssonar, sem er handarbrotinn, en Ívar stóð sig vel í fyrsta heila leik sínum í efstu deild gegn ÍBV í Eyjum á dögunum og Hallgrímur Jónasson þjálfari hefur sagt að engin ástæða sé til að sækja annan markvörð.

Dvöl Arons Einars Gunnarssonar í herbúðum Þórs varð styttri en vonast hafði verið eftir. Hann hafði augljóslega mjög góð áhrif á liðið í sigurleiknum gegn Víkingi og það er því áfall fyrir Þór í þessari stöðu að hann sé horfinn á braut á ný eftir aðeins einn leik. Hann hefði verið liðinu ákaflega dýrmætur í þessum mikilvæga Akureyrarslag.

Ágúst Eðvald Hlynsson, sem hefur skorað í þremur leikjum leikjum í röð og fimm mörk í síðustu sjö leikjum Þórs, tekur út leikbann í kvöld, rétt eins og Bjarni Guðjón Brynjólfsson. Þeir Christian Jakobsen og Ragnar Óli Ragnarsson eru tæpir vegna meiðsla og Ingimar Arnar Kristjánsson er farinn til Danmerkur.

Hvorugt liðanna getur því stillt upp því sem þjálfarar þeirra myndu telja sitt besta byrjunarlið og það má því kannski segja að tiltölulega jafnt sé á með þeim komið eins og staðan er á leikmannahópum þeirra.

Frábær stemning var þegar liðin mættust í byrjun á nýjum gervigrasvelli Þórs og ekki þarf að efast um að mikið fjör verður á KA-svæðinu í kvöld. Mynd: Ármann Hinrik 

Ekki besta veðrið en fullur völlur

Samkvæmt veðurspánni verður níu stiga hiti og strekkingsvindur af norðnorðaustri þegar flautað verður til leiks klukkan 19.15 í kvöld. Ekki alveg sú sumarblíða sem Akureyringar hafa átt að venjast undanfarnar vikur. En það hefur engin áhrif á aðsóknina, það er löngu ljóst að þetta verður einn af bestu sóttu leikjum tímabilsins í Bestu deildinni og gert er ráð fyrir að áhorfendur verði nálægt tveimur þúsundum, talsverður meirihluti þeirra á bandi KA, og þar af um eitt þúsund í nýju stúkunni.

Við fengum forsmekkinn að stemningunni í fyrri leik liðanna á Þórsvellinum í byrjun maí þegar KA knúði fram sigur með marki á lokamínútum leiksins, 1-0, og ef að líkum lætur má búast við alls konar dramatík á KA-vellinum í kvöld, innan vallar sem utan.