Fara í efni
Körfuknattleikur

Þrír íþróttatengdir samningar endurnýjaðir

Jóna Jónsdóttir, formaður Íþróttabandalags Akureyrar, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, handsala nýjan samstarfssamning. Mynd: akureyri.is.

Þrír rekstrar- og samstarfssamningar Akureyrarbæjar og á sviði íþrótta voru undirritaðir í liðinni viku; endurnýjaður samstarfssamningur við Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA), endurnýjaður rekstrarsamningur við Siglingaklúbbinn Nökkva og viðauki við rekstrarsamning við Skautafélag Akureyrar í tengslum við nýja aðstöðu í Skautahöllinni.

Nýr samstarfssamningur við ÍBA til þriggja ára

Samstarfssamningur Akureyrarbæjar og ÍBA gildir út árið 2029. Skilgreining á hlutverki bandalagsins er í stuttu máli að það „vinnur með íþróttahreyfingunni innan Akureyrarbæjar og bæjaryfirvöldum að eflingu og útbreiðslu íþróttamála. Hlutverk ÍBA er m.a. að halda utan um fjármuni sem bandalaginu eru veittir og úthluta þeim til aðildarfélaga, staðfesta og varðveita lög aðildarfélaga og skila árlegu yfirliti til ÍSÍ auk þess að fylgjast með því að aðildarfélög starfi samkvæmt eigin lögum og lögum íþróttahreyfingarinnar.“

Framlag Akureyrarbæjar til ÍBA á ársgrundvelli Nemur samtals tæpum 1,5 milljörðum króna. Framlagið skiptist í rekstur skrifstofu upp á 23,5 milljónir króna á ári, þar með talin laun framkvæmdastjóra, 12,8 milljónir á ári til Afrekssjóðs Akureyrar og í kvennastyrk/jafnréttisstyrk, en langstærsti hluti upphæðarinnar, eða rúm 99,6% hennar, er styrkur sem reiknaður er vegna húsaleigu og æfinga. Kveðið er á um það í samningnum þar sem meðal annars segir: „ÍBA hefur umsjón með að úthluta aðildarfélögum æfingatímum í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar í samstarfi við forstöðumann íþróttamála Akureyrarbæjar. ... Æfingatímar félaga í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar reiknast sem styrkur til íþróttafélaga og skal þess getið í bókhaldi félaganna. ÍBA hefur eftirlit með að svo verði gert. Með því á að tryggja að ekki falli kostnaður á iðkendur vegna húsnæðis til æfinga og keppni í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar.“

Endurnýjaður rekstrarsamningur Siglingaklúbbsins

Akureyrarbær hefur einnig endurnýjað og undirritað rekstrarsamning við Siglingaklúbbinn Nökkva. Nýr samningur byggir á fyrri samningi frá 2021 þegar nýtt aðstöðuhús á félagssvæði Nökkva var tekið í notkun. Klúbburinn sér um rekstur og hefur umsjón með félagssvæðinu, þar með töldum aðtsöðumannvirkjum og íþróttatengdri starfsemi. Samningurinn gildir út árið 2031.

Tryggvi Jóhann Heimisson, formaður Siglingaklúbbsins Nökkva, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, handsala endurnýjaðan rekstrarsamning klúbbins. Mynd: akureyri.is.

Árlegur rekstrarstyrkur Akureyrarbæjar til Siglingaklúbbsins er samkvæmt samningnum tæpar 5,4 milljónir króna og nær yfir laun starfsmanna íþróttamannvirkisins miðað við hálft stöðugildi, yfirstjórn, skrifstofukostnað, rekstrarvörur og minniháttar viðhald. Klúbburinn fær að auki í sinn hlut allar tekjur sem félagssvæðið kann að gefa af sér, svo sem vegna útleigu til almennins, auglýsinga, veitingasölu og aðrar tekjur af rekstri.

Breyttar aðstæður í Skautahöllinni

Vegna aukins umfangs og reksturs í Skautahöllinni í kjölfar breytinga á aðstöðu í höllinni sem tekin var í notkun síðla árs 2024 hefur verið undirritaður viðauki við rekstrarsamning Akureyrarbæjar og Skautafélags Akureyrar. Kveðið var á um endurskoðun samningsins frá 2024 haustið 2026 þegar reynsla væri komin á rekstur hallarinnar eftir breytingarnar.

Sigurður Sveinn Sigurðsson, formaður Skautafélags Akureyrar, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, handsala endurskoðaðan rekstrarsamning við Skautafélagið. Mynd: akureyri.is.

Framlag Akureyrarbæjar til Skautafélagsins reiknast út frá þremur stöðugildum frá og með 1. janúar 2026 í stað 2,67 stöðugilda áður, hækkar þannig um 4,5 milljónir á yfirstandandi ári. Árlegur rekstrarstyrkur eins og hann reiknast á þessu ári er því rúmar 42,4 milljónir króna. Þar af eru laun upp á rétt tæpar 36 milljónir, yfirstjórn og skrifstofa upp á 5,4 milljónir og rekstrarvörur og minniháttar viðhald upp á rúma milljón.