Fara í efni
Körfuknattleikur

Spánverjarnir þjálfa meistaraflokka Þórs

Þjálfararnir Lidia Mirchandani og Richi González sem körfuknattleiksdeild Þórs réð til starf á dögunum.

Ricardo González Dávila verður aðalþjálfari meistaraflokks karla í körfuknattleik hjá Þór í vetur og Lidia Mirchandani aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Tilkynnt var um ráðningu þeirra til Þórs á dögunum – sjá frétt hér. Þá var nefnt að González myndi þjálfa kvennaliðið og verða aðstoðarþjálfari karlaliðsins, en eftir að ákveðið var að kvennalið félagsins myndi ekki leika í efstu deild í vetur hafa forsendur breyst.

Í tilkynningunni í dag segir:

Körfuknattleiksdeild Þórs tilkynnir með stolti um breytingar á þjálfarateymi meistaraflokka félagsins fyrir komandi tímabil. Um er að ræða mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu körfuboltans á Akureyri.

  • Richi González hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari meistaraflokks karla. „Richi er reyndur þjálfari með víðtæka reynslu af þjálfun bæði á Spáni og víðar, og hefur sýnt framúrskarandi hæfileika í að þróa leikmenn og byggja upp samkeppnishæf lið. Við hlökkum til að sjá hvernig fagmenska hans og metnaður mun nýtast liðinu á næstu misserum.“
  • Jafnframt hefur Lidia Mirchandani verið ráðin sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. „Lidia er fyrrverandi landsliðskona Spánar og hefur á undanförnum árum komið sterkt inn sem þjálfari. Hún býr yfir mikilli leikskilningi og brennandi áhuga á að efla kvennakörfuna. Við trúum því að hún muni leiða liðið með krafti og fagmennsku inn í nýjan og spennandi tíma fyrir kvennakörfuna.“
  • „Bæði Richi og Lidia munu jafnframt taka leiðandi hlutverk í þjálfun og skipulagi yngri flokka deildarinnar. Með því viljum við tryggja samfellu í þjálfun, styrkja tengsl milli flokka og leggja grunn að öflugri framtíð körfuboltans hjá Þór.“

„Við bjóðum Richi og Lidia hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins. Þessi ráðning er liður í markvissri stefnu félagsins um að efla bæði karla- og kvennalið Þórs og tryggja áframhaldandi vöxt og árangur á vellinum.“