Fara í efni
Körfuknattleikur

Sérfræðingar fjölmiðla spá Þór/KA 4.-7. sæti

Bandaríski framherjinn Erin Flurey og varnarjaxlinn Arna Sif Ásgrímsdóttir verða mjög líklega í lykilhlutverkum hjá Þór/KA í sumar. Myndir: Ármann Hinrik

Þór/KA hefur leikið samfleytt frá árinu 2006 í efstu deild kvenna í knattspyrnu. Liðið varð Íslandsmeistari árin 2012 og 2017 og hefur auk þess oft verið í toppbaráttu. Á síðasta ári gekk liðinu verr en oftast áður og endaði í 7. sæti af 10 liðum. Það er næsta víst að liðið ætlar sér ofar í töfluna á þessu ári en helstu spámenn fjölmiðla eru ekki á einu máli um hvort það muni takast.

Heldur færri fjölmiðlar höfðu fyrir því að spá um gengi liðanna í efstu deild kvenna heldur en karla. Þegar gluggað er í spádóma fotbolti.net, sem sérhæfir sig í umfjöllun um knattspyrnu, kemur í ljós að þar á bæ er talið að Þór/KA hafni í 7. sætinu líkt og í fyrra. Spámenn hjá visir.is eru talsvert bjartsýnni og gera ráð fyrir að liðið verði í 4. sætinu þegar upp verður staðið í haust.

Arna Sif og Erin Flurey verða lykilmenn

Hjá báðum þessum fjölmiðlum gera sérfræðingarnir ráð fyrir að Fram og Grindavík/Njarðvík falli úr deildinni og að ÍBV haldi sæti sínu. Þá er samhljómur meðal spámanna um að Breiðablik verði Íslandsmeistari og FH verði í öðru sætinu. Hins vegar er mismunandi hvernig liðunum fimm sem talið er að verði einhvers staðar um miðja deild er raðað í spánni. Meginástæða þess að spámenn Vísis setja Þór/KA í 4. sætið er að Arna Sif Ásgrímsdóttir er snúin aftur heim og muni binda vörnina saman en liðið hafi fengið allt of mörg mörk á sig í fyrra. Þá hafi Þór/KA einnig fengið til sín liðsauka frá Tindastóli, sem öll liðin í deildinni sóttust eftir. Bandaríski framherjinn Erin Flurey á svo að fylla skarð Söndru Maríu Jessen og sjá um markaskorun.

Sérfræðingar fotbolti.net eru sammála því að Arna Sif og Erin verði lykilmenn í sumar. Þá er einnig talað um að ferskir straumar fylgi nýjum þjálfara og að hópurinn sé áhugaverð blanda af reynslumiklum og ungum leikmönnum, sem gætu sprungið út ef hlutirnir falla rétt með þeim. Gangi það eftir er líklegt að Þór/KA endi frekar í efri hluta deildarinnar en þeim neðri, eins og gerðist í fyrra.