Seinni blakslagurinn – tvíhöfði í körfunni
Körfuboltinn rúllar af stað með hvelli. Pollamót Þórs í körfubolta, það fjölmennasta hingað til, var haldið um helgina og í beinu framhaldi er komið að fyrstu leikjum Þórsliðanna í 1. deildinni. Boðið er upp á tvíhöfða, Þór Akureyri gegn Þór Þorlákshöfn, bæði í kvenna- og karlaflokki. Í dag er einnig á dagskrá seinni viðureign KA og Hamars í Unbroken-deild karla í blaki.
Seinni viðureign KA og Hamars á dagskrá í dag. Búast má vð hörkuleik. Akureyri.net hitaði upp fyrir blakið með innskotum frá þjálfara og fyrirliða karlaliðsins í gær - sjá hér.
- Blak
Unbroken-deild karla
KA-heimilið kl. 15
KA - Hamar
Keppnistímabilið hjá liðum Þórs í 1. deild kvenna og karla í körfubolta hefst formlega í dag þegar bæði liðin taka á móti nöfnum sínum úr Þór í Þorlákshöfn. Þorlákshafnar-Þórsarar féllu úr efstu deild, Bónusdeild karla, í vor. Kvennalið Þórs úr Þorlákshöfn keppir nú aftur undir eigin merkjum eftir að samstarfi Hamars úr Hveragerði og Þórs var slitið að loknu tímabilinu í vor. Hamar og Þór höfðu teflt fram sameiginlegu liði frá því á tímabilinu 2020-21. Leikur Þórsliðanna er fyrsti opinberi leikur þessara félaga í kvennaflokki.
Körfuknattleiksdeild Þórs hefur tilkynnt að ókeypis aðgangur verði á leikina í boði Skógarbaðanna. Upphitun fyrir körfuboltatímabilið má finna í sér grein - sjá hér.
- Körfubolti
1. deild kvenna
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 15:30
Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn
- Körfubolti
1. deild karla
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:00
Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn