Fara í efni
Körfuknattleikur

Leiðtoginn – límið í „gullaldarliðinu“

LEIKJAHÆSTIR – Akureyringarnir Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson fyrir leik Íslands og Portúgal á Laugardalsvelli sumarið 2023. Birkir lék ekki með landsliðinu eftir það. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

ARON EINAR – LANDSLIÐSFERILLINN

Fyrir rétt ríflega 20 árum, í júlímánuði 2006, var ég staddur á Akureyrarvelli, þeim gamla og sögufræga aðalleikvangi höfuðstaðar Norðurlands, þar sem mínir menn í HK öttu kappi við Þórsara í fyrstu deildinni í fótbolta.

Áður en leikurinn hófst var ungur leikmaður í Þórsliðinu, sautján ára gutti, kvaddur með virktum og skýrt frá því í hátalarakerfi vallarins að þetta væri kveðjuleikur hans því núna tæki við atvinnumennska í Hollandi. Þar hafði pilturinn, Aron Einar Gunnarsson að nafni, samið við AZ Alkmaar, eitt af stærri félögum landsins.

Eitthvað hafði ég heyrt af þessum strák, m.a. að hann væri líka bráðefnilegur í handbolta og litlu hefði munað að hann hefði tekið þá grein fram yfir fótboltann, rétt eins og stóri bróðir hans.

2005 OG 2006 – Aron Einar í leik með 3. flokki Þórs sumarið 2005 og með meistaraflokki gegn KA á Akureyrarvelli 14. maí 2006, í fyrstu umferð 1. deildar, næst efstu deildar Íslandsmótsins. Aron kom við sögu í fimm leikjum 1. deildar 2005 og sex leikjum 2006, áður en henn hélt utan í atvinnumennsku. Myndir: Skapti Hallgrímsson og Þórir Tryggvason

Ekki man ég sérstaklega eftir frammistöðu Arons í þessum leik, enda meira upptekinn af mínum mönnum úr Kópavogi sem þetta sumar unnu sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti og flugu suður með dýrmætt stig eftir 1-1 jafntefli. En næst þegar ég sá til hans, tæplega tveimur árum síðar, lék enginn vafi á því að þessi ungi Akureyringur ætlaði sér að ná langt í boltanum.

Átján ára lykilmaður

Það var vináttulandsleikur gegn Færeyjum sem leikinn var í Kórnum í Kópavogi, þá splunkunýju knattspyrnuhúsi, 16. mars árið 2008, en þetta var einn af fyrstu leikjum Íslands undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Aron var yngsti leikmaður íslenska liðsins, 18 ára gamall, en um leið eini atvinnumaðurinn sem spilaði þennan leik því hinir voru allir leikmenn íslenskra liða. Ísland vann 3-0, svo því sé haldið til haga.

Aron lét mikið að sér kveða í leiknum, stjórnaði eldri og reyndari leikmönnum í kringum sig, sagði þeim að hlaupa hingað og þangað, og gaf sjálfur ekkert eftir. Það var augljóst að þessi strákur hafði leiðtogahæfileika og var skolli góður í fótbolta.

MEÐ ANNAN FÓTINN Á EM – Ísland vann Holland 1:0 í Amsterdam fimmtudaginn 4. september 2015 og vantaði eftir það aðeins eitt stig til að gulltryggja sæti á stórmóti í fyrsta sinn; Evrópumótinu í Frakklandi árið eftir. Aron sendir boltinn inn á vítateig í Amsterdam þetta eftirminnilega kvöld og fagnar sigrinum í leikslok með Gylfa Þór Sigurðssyni. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Stjórnsamur og skapaði usla

Félagi minn á Morgunblaðinu, Guðmundur Hilmarsson, skrifaði m.a. í umsögn sinni um leikinn sem birtist í blaðinu daginn eftir: „Aron Einar Gunnarsson, eini atvinnumaðurinn í liðinu, lét mikið til sín taka á miðjunni en þessi 18 ára gamli leikmaður AZ Alkmaar var stjórnsamur og skapaði usla í vörn Færeyinga í hnitmiðuðum sendingum.“ Sjálfur sagði Aron við Guðmund: „Ég er ungur, á eftir að læra mikið, en líður vel þegar ég er með boltann.“

Fleiri norðanmenn komu við sögu í þessum leik í Kórnum því Akureyringurinn Atli Sveinn Þórarinsson var fyrirliði Íslands þennan dag og Húsvíkingarnir Baldur Aðalsteinsson, Hallgrímur Jónasson og Pálmi Rafn Pálmason léku allir með íslenska liðinu.

FYRSTI LEIKUR Á STÓRMÓTI – Byrjunarlið Íslands gegn Portúgal, í fyrsta leik liðsins á EM, í frönsku borginni St. Etienne 14. júní 2016. Aftari röð frá vinstri: Ragnar Sigurðsson, Jón Daði Böðvarsson, Kolbeinn Sigþórsson, Kári Árnason, Birkir Már Sævarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Fremri röð frá vinstri: Jóhann Berg Guðmundsson, Ari Freyr Skúlason, Hannes Þór Halldórsson, Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson. - Til hægri, Aron Einar og Cristiano Ronaldo eftir leikinn; Portúgalinn reyndist  ekki í nógu góðu skapi til að skipta á keppnistreyjum fyrst leikurinn endaði með jafntefli... Myndir: Skapti Hallgrímsson

Þetta var annar A-landsleikur Arons sem tveimur mánuðum áður var í byrjunarliði Íslands þegar það beið lægri hlut fyrir Hvíta-Rússlandi á móti á Möltu. Hann varð strax fastamaður í liðinu hjá Óla Jó þrátt fyrir ungan aldur og tók því ekki eins mikinn þátt og margir aðrir í fyrsta ævintýri hans kynslóðar þegar 21-árs landsliðið komst í lokakeppni EM í Danmörku árið 2011.

Aron lék ekkert í undankeppninni, hann var fyrst og fremst A-landsliðsmaður og spilaði þar alla leiki, en var kallaður inn í umspilsleikina mikilvægu gegn Skotlandi og lék svo með liðinu í lokakeppninni í Danmörku.

NICE 27. JÚNÍ 2016 – Einn eftirminnilegasti landsleikur Íslands er 2:1 sigurinn á Englandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í Frakklandi. Efst til vinstri eru Aron Einar og móðir hans, Jóna Arnórsdóttir eftir leikinn og myndin við hliðina er tekin eftir að fyrirliðinn kom hlaupandi yfir endilegan völlinn, þangað sem flestir stuðningsmenn voru saman komnir, og renndi sér í grasinu. Úrslitin vöktu að vonum gríðarlega athygli; gott dæmi um það er forsíða franska íþróttadagblaðsins L'Equipe daginn eftir. Að Ítalía sló út Evrópumeistara Spánar kemst bara að sem tilvísun efst á síðunni en aðalmálið er sigur Íslands og fyrirliðinn með víkingaskeggið er þar fremstur í flokki. GÉNIAL, segir L'Equipe í fyrirsögn – FRÁBÆRT. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Getur slegið landsleikjamet Birkis

Í dag hefur Aron Einar leikið 110 landsleiki fyrir Íslands hönd og sá eini sem gert hefur betur af íslenskum landsliðskörlum er annar Akureyringur, Birkir Bjarnason, uppalinn á Brekkunni en með sterkar rætur í Þorpinu svo það sé tekið fram. Birkir hafði leikið 113 landsleiki þegar hann lagði skóna á hilluna á síðasta ári.

Aron er í íslenska landsliðshópnum sem Arnar Gunnlaugsson valdi fyrir fjóra leiki í Þjóðadeildinni sem fram fara á næstu dögum og vikum, en íslenska liðið leikur síðan tvo síðustu leiki sína í riðlakeppninni um miðjan nóvember. Andstæðingarnir eru Eistland, Lúxemborg og Búlgaría, heima og heiman.

HALDIÐ Á HM – Aron Einar Gunnarsson og Ragnar Sigurðsson í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 9. júní 2018, á leið út í Herðubreið, þotu Icelandair sem flutti leikmenn, starfsfólk Knattspyrnusambands Íslands og íslenska fjölmiðlamenn til Rússlands. Mynd: Skapti Hallgrímsson


Á þriðjudaginn tilkynnti Aron að leikirnir í Þjóðadeildinni í haust yrðu hans síðustu leikir með íslenska landsliðinu, enda orðinn 37 ára gamall og á sínu 21. ári sem A-landsliðsmaður Íslands. Hann getur því orðið leikjahæsti landsliðsmaðurinn þegar upp verður staðið í nóvember en með því að koma við sögu í fjórum af þessum sex leikjum myndi Aron slá landsleikjamet Birkis.

Tvisvar byrjað í tólf leikjum

Ekki er þó á vísan að róa með það, því Aron hefur ekki verið í lykilhlutverki innan vallar eftir að Arnar Gunnlaugsson tók við starfi landsliðsþjálfara. Hann hefur frekar horft á Aron sem áhrifavald í leikmannahópnum og notað hann sparlega en freistað þess að Aron gæti miðað af sinni miklu reynslu til ungu mannanna í liðinu.

VIÐ SVARTAHAF – Aron Einar stígur á rússneska jörð að kvöldi 9. júní 2018 á flugvellinum í borginni Gelendzhik við Svartahaf. Meðan á HM stóð hafði landsliðið bækistöð skammt frá, í smábænum Kabardinka. Fyrsta æfingin var daginn eftir og þá var heitt í veðri eins og sjá má á fyrirliðanum lengst til vinstri! Fjöldi heimamanna fylgdist með æfingunni og á myndinni í miðjunni kastar Aron Einar bolta til eins þeirra sem hann hafði áritað. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Í tólf leikjum þar sem Aron hefur verið í hópnum hjá Arnari hefur hann aðeins tvisvar verið í byrjunarliðinu, fjórum sinnum komið inn á sem varamaður og sex sinnum setið á bekknum án þess að koma við sögu. Ef reiknað er út hlutfall af því eru um það bil helmings líkur á að met Birkis verði slegið. Reyndar er Arnar í vandræðum með miðvarðarstöðurnar, þar hefur Aron af og til leikið í seinni tíð og það eykur kannski líkurnar á að hann spili.

FYRIR FYRSTA LEIK Á HM – Fundur með blaðamönnum  15. júní 2018, daginn fyrir fyrsta leikinn á HM, gegn Argentínu í Moskvu. Ómar Smárason starfsmaður KSÍ, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari og Aron Einar Gunnarsson fyrirliði. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fyrirliðinn og leiðtoginn

En landsliðsferill Arons verður ekki skilgreindur út frá því hvort hann endar á að spila 110, 114 eða 116 landsleiki fyrir Íslands hönd. Auðvitað yrði landsleikjametið glæsilegur endapunktur og sá sem er handhafi þess á hverju tímaskeiði er ávallt nefndur til sögunnar á hátíðastundum og þegar einhver annar gerir sig líklegan til að ýta honum úr hásætinu.

Stóra arfleiðin sem Aron mun skilja eftir fyrir sögubækurnar, fyrir utan alla tölfræði, er hins vegar sú að hann var fyrirliðinn og leiðtoginn í íslenska landsliðinu sem sló í gegn á öðrum áratug 21. aldarinnar með því að komast í lokakeppni EM í Frakklandi 2016 og lokakeppni HM í Rússlandi 2018. 

Hann var hjartað í íslenska liðinu sem heillaði heimsbyggðina sumarið 2016, skeggjaði víkingurinn sem fór fyrir sínum mönnum og stjórnaði víkingaklappinu eftir leikina í Frakklandi. Hann fullkomnaði nánast hlutverk varnartengiliðs í þeirri mögnuðu liðsheild sem Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson náðu að móta og lagði hverja stórþjóðina að velli á fætur annarri. Sigrar gegn Hollandi (heima og heiman), Englandi, Austurríki, Króatíu, Úkraínu og magnaðir leikir gegn mörgum fleirum – að ógleymdu jafnteflinu gegn Argentínu og Messi í Moskvu.

Aron og félagar færðu íslensku fótboltaáhugafólki og fjölmörgum sem annars höfðu aldrei fylgst sérstaklega með landsliðinu ómældar gleðistundir á þessum árum og uppselt var á Laugardalsvöllinn á hverjum einasta heimaleik um nokkurra ára skeið.

Á STÆRSTA SVIÐINU – Aron Einar, Lionel Messi og Emil Hallfreðsson í fyrsta leik Íslands á HM, gegn Argentínu í Moskvu 16. júní 2018. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hélt í alla þræðina

Íslendingar upplifðu það, tvisvar, að karlalandsliðið kæmist á stórmót. Nokkuð sem hafði aldrei gerst áður og fáir létu sig dreyma um, og óvíst er að gerist nokkurn tíma aftur. Kannski var stærsta afrekið í því að vinna firnasterkan undanriðil fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi.

Þáttur Arons var stór, hann var límið sem hélt þessum hæfileikaríka og andlega sterka hópi saman. Rétt eins og í Kórnum árið 2008 var Aron leiðtoginn inni á vellinum í þessu „gullaldarliði Íslands“. Hann myndaði með miðvörðunum, oftast Ragnari Sigurðssyni og Kára Árnasyni, nánast fullkomið varnartríó fyrir framan Hannes Halldórsson í markinu og hélt í alla þræðina.

Liðið hreyfði sig fram og aftur á vellinum sem ein heild, hvort sem það var í vörn eða sókn, betur en nokkurt annað íslenskt landslið hefur gert, fyrr eða síðar, og þar var Aron Einar í algjöru lykilhlutverki.

HAMINGJA – Aron Einar og Kristbjörg Jónasdóttir eiginkona hans eftir jafntefli við Argentínu í Moskvu.


Aðvörun í Albaníu

Auðvitað hefur landsliðsferill Arons ekki verið áfallalaus. Lagerbäck gerði hann kornungan að fyrirliða landsliðsins og litlu munaði að Akureyringurinn klúðraði því þegar hann lét ógætileg orð falla um gestgjafana fyrir erfiðan útileik í Albaníu.

En Svíinn séði lét aðvörun nægja, vissi greinilega hvers konar leiðtoga hann var með í höndunum, og ég efast ekki um að Aron hafi sett þetta atvik í reynslubankann þar sem það hafi nýst honum til góðra verka á næstu árum.

Þá gat Aron ekki spilað með landsliðinu um skeið þegar kæra á hendur honum var til rannsóknar. Eins hafa meiðsli af og til sett strik í reikninginn hjá honum í seinni tíð.

ÞRENNA Í LIECHTENSTEIN – Aron Einar Gunnarsson hefur skoraði fimm mörk í 110 landsleikjum. Þrjú þeirra gerði hann í einum og sama leiknum, gegn Liechtenstein í undankeppni EM, 26. mars 2023; hér fagnar hann einu markanna í þeim leik. Mynd: KSÍ

Ein þrenna og fimm mörk

Aron hefur sjaldan verið í hlutverki markaskorarans í íslenska landsliðinu, enda þótt hann hafi ávallt skorað nokkuð reglulega með sínum félagsliðum á ferlinum. Mörkin í 110 landsleikjum eru fimm talsins og þar er innifalin óvænt þrenna sem Aron skoraði í stórsigri, 7-0, á Liechtenstein á útivelli árið 2023.

Hin tvö mörkin komu bæði í undankeppninni fyrir EM 2016, gegn Lettlandi í Ríga haustið 2014 og gegn Tékkum á Laugardalsvellinum sumarið 2015. Bæði í sigurleikjum og markið gegn Tékkum á Laugardalsvellinum var sérlega mikilvægt.

Af 110 landsleikjum Arons hefur rétt ríflega helmingurinn, 56 leikir, verið í undankeppni eða lokakeppni stórmótanna tveggja, Evrópukeppninnar og heimsmeistaramótsins. Þar með taldir allir átta leikirnir á lokamótunum tveimur árin 2016 og 2018. Í seinni tíð hafa bæst við sjö leikir í Þjóðadeildinni. Hinir 47 landsleikirnir eru vináttuleikir eða leikir í minni háttar alþjóðlegum mótum.

AKUREYRSKIR 100-KALLAR! Samkvæmt reglugerð KSÍ skal veita þeim leikmönnum sem ná 100 A-landsleikjum heiðursviðurkenningu, sérhannað listaverk. Vanda Sigurgeirsdóttir, þáverandi formaður KSÍ, afhenti Birki Bjarnasyni og Aroni Einari Gunnarssyni málverkin 13. júní 2023 á hóteli liðsins í Reykjavík í aðdraganda tveggja leikja í undankeppni EM. Birkir lék 100. landsleikinn hálfu öðru ári áður en Aron Einar í nóvember 2022. Mynd: KSÍ.

Leikirnir í Þjóðadeildinni

En nú liggur fyrir að skammt er í kveðjustundina. Aron og félagar hans í íslenska landsliðinu hefja þessa óvenjulegu landsleikjatörn á morgun, laugardag, klukkan 16 og leikjadagskrá Íslands í Þjóðadeildinni er þannig:

  • Laugardagur 26. september: Ísland – Eistland kl. 16.00
  • Þriðjudagur 29. september: Lúxemborg – Ísland kl. 18.45
  • Laugardagur 3. október: Ísland – Búlgaría kl. 16.00
  • Þriðjudagur 6. október: Eistland – Ísland kl. 18.45
  • Föstudagur 13. nóvember: Búlgaría – Ísland kl. 19.45
  • Mánudagur 16. nóvember: Ísland – Lúxemborg kl. 17.00