Fara í efni
Körfuknattleikur

KA vann í Eyjum eftir tvær framlengingar!

Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í marki KA í Eyjum í kvöld. Mynd: Hafliði Breiðfjörð

KA sigraði ÍBV 34:33 í mögnuðum leik í Eyjum í kvöld, miðvikudagskvöld, fyrsta leik átta liða úrslitakeppni Olísdeildar karla í handbolta. Jafnt var eftir hinar hefðbundnu 60 mínútur, 26:26, og þar sem jafntefli eru ekki í boði í úrslitakeppninni var gripið til framlengingar. Að loknum 10 aukamínútum var enn jafnt, 31:31, því var aftur framlengt og á síðustu 10 mínútum þessarar maraþonviðureignar gerði heimaliðið tvö mörk en gestirnir þrjú. 

  • Liðin mætast á ný í KA-heimilinu á sunnudaginn kemur og nái KA-strákarnir að vinna aftur komast þeir í undanúrslit keppninnar um Íslandsmeistaratitilinn.
  • Vinni ÍBV á sunnudaginn mætast liðin hins vegar í þriðja og síðasta sinn í Eyjum á skírdag, fimmtudaginn 2. apríl.

Fyrri hálfleikur var hnífjafn en KA nær allan tímann með yfirhöndina og hafði tveggja marka forystu í hálfleik, 13:11. KA-strákarnir héldu sínu striki, höfðu frumkvæðið lengstum seinni hálfleiks og voru til dæmis þremur mörk yfir, 21:18, um hálfleikinn miðjan. Nákvæmlega þá fékk Erlingur Richardsson þjálfari ÍBV rautt spjald vegna mótmæla – var rekinn af bekknum, en aðstoðarmenn hans tóku þá leikhlé og í kjölfarið gerðu lærisveinar hans þrjú mörk í röð og jöfnuðu. Eyjamenn komust svo yfir, 24:23, þegar fimm mín voru eftir og höfðu þá ekki haft forystu síðan í stöðunni 9:8 á 20. mínútu.

Æsispennandi

Spennan var mikil í lok venjulegs leiktíma. KA-maðurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson, sem lék á ný eftir nokkurt hlé vegna meiðsla, jafnaði 26:26 þegar hálf mín. var eftir og Ágúst Elí Björgvinsson, sem var frábær í marki KA, tryggði liðinu framlengingu þegar hann varði glæsilega á lokasekúndunni.

Jafnt var á öllum tölum í fyrri framlengingunni en í þeirri seinni virtist þreytan farin að segja til sín hjá báðum liðum – og skyldi engan undra því gríðarlega hart hafði þá verið barist í 70 mínútur. Markverðirnir höfðu báðir leikið gríðarlega vel og voru í aðalhlutverkum síðustu 10 mínúturnar; Bjarni Ófeigur gerði eina mark fyrri fimm mínútna seinni framlengingarinnar og þegar Morten Linder gerði fyrsta markið í seinni hlutanum kom hann KA í 33:31. ÍBV minnkaði muninn en Magnús Dagur Jónatansson kom aftur tveimur mörkum yfir, 34:32. Nökkvi Snær Óðinsson gerði síðasta mark leiksins þegar tæpar þrjár mín. voru eftir en það reyndist síðasta mark leiksins; markverðirnir sáu til þess.

Miklu munaði fyrir KA að stórskyttan Bjarni Ófeigur léki með á ný. Þá var Norðmaðurinn Morten Linder einnig mættur til leiks aftur og lék í hægra horninu í stað Giorgi Dikhaminjia sem meiddist á dögunum. Linder hefur bæði leikið þar og fyrir utan í vetur en hélt sig í horninu að þessu sinni og Einar Rafn Eiðsson lék sem skytta. Hann var lengi frá í vetur en hefur verið mjög drjúgur undanfarið.

Ágúst Elí frábær

Ágúst Elí Björgvinsson var besti maður KA. Hann var frábær í markinu, varði 41% þeirra skota sem hann fékk á sig og átti aðdáunarverðar sendingar fram völlinn í fyrri hálfleik strax eftir að hafa varið. Annars á allt KA-liðið hrós, varnarjaxlar skiluðu sínu og margt var gott í sókninni. Leikurinn var hnífjafn og hvort liðið sem var gat í raun farið með sigur af hólmi, svo mjótt var á munum. Spennandi verður að fylgjast með viðureigninni í KA-heimilinu á sunnudaginn.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 8 (þar af 6 víti), Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Morten Linder 4, Magnús Dagur Jónatansson 4, Einar Birgir Stefánsson 3, Dagur Gautason 3, Arnór Ísak Haddsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 2.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 21, þar af 2 víti (41,2%), Bruno Bernat 0.

Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 10 (þar af 5 víti), Elís Þór Aðalsteinsson 7, Sveinn José Rivera 5, Daníel Þór Ingason 3, Anton Frans Sigurðsson 3, Nökkvi Snær Óðinsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 20 (38,5%), Morgan Goði Garner 0.

Öll tölfræðin frá HB Statz