Fara í efni
Körfuknattleikur

Íshokkí: SA Víkingar með tvo sigra gegn U20

Tveir leikir, tveir sigrar hjá SA-Víkingum um helgina. Myndirnar eru fengnar af Facebook-síðu íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar.

SA Víkingar mættu úrvali U20 landsliðsins tvívegis í Toppdeild karla í íshokkí um helgina og unnu báða leikina örugglega.

Fyrri leikurinn fór fram á laugardag og lauk með 9-3 sigri SA þar sem Jóhann Már Leifsson skoraði fernu og Arnar Kristjánsson átti fimm stoðsendingar. Markvörður U20 liðsins hafði í nógu að snúast, en hann fékk á sig 73 skot á 60 leikmínútum, varði 64 þeirra. Tíu leikmenn Skautafélags Akureyrar spiluðu með U20 landsliðinu í fyrri leik helgarinnar, þar á meðal þeir þrír sem skoruðu mörkin, Alex Máni, Bjartur og Mikael. 

  • Fjórða liðið sem tekur þátt í Toppdeild karla í íshokkí vetur er skipað landsliðsmönnum U20. Þátttaka þess hefur þó raunar tvíþættan tilgang, því auk þess að uppfylla skilyrði IIHF um fjögurra liða deild gefst U20 landsliðinu tækifæri á að spila meira saman en verið hefur áður en liðið heldur í landsliðsverkefni í janúar. Þjálfarar U20 landsliðsins geta því valið leikmenn úr öllum félögunum í sína leiki, en þó með þeim takmörkunum að félagsliðið sem þeir mæta hverju sinni tilkynnir fyrst sinn leikmannahóp.

U20 - SA 3-9 (2-3, 0-3, 1-3)

U20

Mörk/stoðsendingar: Alex Máni Ingason 1/1, Bjartur Westin 1/1, Mikael Eiríksson 1/0, Helgi Bjarnason 0/1, Gabríel Egilsson 0/1, Egill Þorsteinsson 0/1, Aron Freyr Gautason 0/1.
Varin skot: Þórir Aspar 64 af 73 (87,7%)
Refsingar: 8 mínútur

SA

Mörk/stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson 4/1, Arnar Kristjánsson 1/5, Hafþór Andri Sigrúnarson 1/3, Gunnar Arason 1/2, Baltasar Hjálmarsson 1/0, Pétur Sigurðsson 1/0, Sigurður Þorsteinsson 0/1, Heiðar Gauti Jóhannesson 0/1, Unnar Hafberg Rúnarsson 0/1, Stefán Guðnason 0/1, Matthías Már Stefánsson 0/1.
Varin skot: Róbert Steingrímsson 11 af 14 (78,6%)
Refsingar: 8 mínútur.

Leikskýrslan


Seinni leikurinn var spilaður í gær og aftur höfðu SA Víkingar öruggan sigur, lokatölur 8-0. Markaskorun skiptist jafnar niður á leikmenn en í fyrri leiknum, samtals sjö leikmenn sem skoruðu mörkin og Unnar Hafberg Rúnarsson sá eini með tvö mörk. Eins og í fyrri leiknum var nóg að gera hjá markverði U20, en Elvar Ingi Sigurðsson varði markið í seinni leiknum og fékk á sig 59 skot á 60 leikmínútum.

SA - U20 8-0 (3-0, 4-0, 1-0)

SA

Mörk/stoðsendingar: Unnar Hafberg Rúnarsson 2/0, Jóhann Már Leifsson 1/2, Gunnar Arason 1/1, Arnar Kristjánsson 1/1, Ormur Jónsson 1/1, Gabríel Benjamínsson 1/0, Matthías Már Stefánsson 1/0, Baltasar Hjálmarsson 0/2, Bjarki Jóhannesson 0/2, Heiðar Gauti Jóhannsson 0/2, Pétur Elvar Sigurðsson 0/2, Sigurður Þorsteinsson 0/1, Hafþór Andri Sigrúnarson 0/1, 
Varin skot: Jakob Jóhannesson 13 af 13 (100%).
Refsingar: 14 mínútur.

U20

Varin skot: Elvar Ingi Sigurðsson 51 af 59 (86,4%)
Refsingar: 12 mínútur

Leikskýrslan.