Fara í efni
Körfuknattleikur

Háspenna í lokin þegar KA féll úr leik

Einar Rafn Eiðsson í dauðafæri í Hafnarfirði í kvöld. Hann gerði sex mörk í leiknum, þar af sex af vítalínunni. Mynd: J.L.Long

KA og ÍR áttust við í undanúrslitum bikarkeppni karla í handknattleik í Hafnarfirði í kvöld. Eftir að ÍR-ingar höfðu leitt allan leikinn náðu KA-menn loks að jafna og komast yfir þegar rúmar þrjár mínútur voru til leiksloka. Síðustu mínúturnar voru gríðarlega spennandi en svo fór að ÍR náði að tryggja sér sigur í blálokin og þar með sæti í úrslitaleiknum gegn Haukum. Lokatölur urðu 32:31.

Liðin komu dálítið löskuð til leiks – Morten Linder og Bjarni Ófeigur Valdimarsson gátu ekki verið með í síðasta leik KA vegna meiðsla og Morten var enn fjarri góðu gamni í dag. Bjarni Ófeigur var með en greinilega ekki orðinn alheill. Hjá ÍR kom langbesti maður liðsins í vetur, Baldur Fritz Bjarnason, aðeins við sögu í upphafi leiks en þurfti síðan frá að hverfa vegna meiðsla. En fjarvera slíks lykilmanns, og sú staðreynd að ÍR er í neðsta sæti Olísdeildarinnar á meðan KA er í toppbaráttunni, hefur ekkert að segja í svona bikarslag.

Giorgi Dikhaminjia fer inn úr horninu í kvöld. Honum voru mislagðar hendur á ögurstundu undir lokin. Mynd: J.L.Long

ÍR skrefinu á undan í fyrri hálfleik

Enda voru það ÍR-ingar sem byrjuðu talsvert betur í leiknum og skoruðu þrjú fyrstu mörkin. KA átti í stökustu vandræðum með líflega 5-1 vörn ÍR og tókst aldrei að ógna forystu þeirra í fyrri hálfleik. ÍR var alltaf 2-4 mörkum á undan og eftir að Giorgi Dikhaminjia skoraði síðasta mark hálfleiksins var staðan 16:13 í leikhléi, ÍR í vil.

Seinni hálfleikur hélt áfram að þróast á svipaðan hátt, ÍR-ingar voru skynsamir, léku agað og nýttu færin vel. KA náði lítið að ógna fyrir utan og greinilegt að Bjarni Ófeigur og Einar Rafn Eiðsson gátu lítið beitt sér í langskotum. Flest mörk KA-manna komu úr hornunum eða af línunni og var Bjarni Ófeigur mjög drjúgur í stoðsendingunum.

Góður kafli hjá KA og allt jafnt

ÍR-ingar hertu tökin og um miðjan seinni hálfleik náðu þeir í fyrsta sinn fimm marka forskoti, 26:21. En þá kom góður kafli hjá KA, Ágúst Elí fór að verja betur í markinu og sóknarleikurinn varð áræðnari. Á liðlega 10 mínútna kafla náði KA að naga niður forskot ÍR, skoruðu níu mörk gegn þremur og komust yfir, 30:29, og ekki nema rúmar þrjár mínútur eftir af leiknum. Þarna varð mörgum KA-manninum hugsað til deildarleiksins gegn ÍBV um nýliðna helgi, þegar KA elti allan tímann en náði að skríða framúr í blálokin og tryggja sér sigur.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson brýst í gegnum vörn ÍR í kvöld Hann gerði nokkur mörk eftir gegnumbrot, gaf 10 stoðsendingar og fiskaði þrjú víti. Mynd: J.L.Long

Síðustu 3 mínúturnar voru sannarlega æsispennandi. ÍR náði að jafna 30:30 en KA komst strax aftur yfir. ÍR jafnaði um leið í 31:31 og enn voru tvær og hálf mínúta eftir af leiknum. Þá lét Giorgi verja frá sér úr horninu en KA en Dagur náði frákastinu fyrir KA. Aftur fór Giorgi inn úr horninu en skaut í stöngina. KA náði boltanum og hélt sókninni áfram. Henni lauk með því að Giorgi fékk þriðja færið sitt í þessari sömu sókn en óheppnin elti hann og aftur var varið.

Afdrifaríkar brottvísanir í blálokin

ÍR fór í sókn þegar enn var jafnt og ein mínúta til leiksloka. Daði Jónsson braut á Jökli Blöndal, stórskyttu ÍR, og dómararnir ákváðu að fara í skjáinn og skoða atvikið betur. Niðurstaðan var rautt spjald á Daða og ÍR hélt sókninni áfram. Ágúst Elí varði glæsilega úr horninu þegar 25 sekúndur voru eftir en ÍR náði sóknarfrákastinu og reyndu gegnumbrot. Bjarni Ófeigur stöðvaði það en fékk tveggja mínútna brottvísun. ÍR -ingar nýttu liðsmuninn og náðu að skora sigurmarkið í blálokin og sekúndurnar þrjár sem eftir voru dugðu ekki fyrir KA.

Sannarlega svekkjandi niðurstaða fyrir KA, eftir að hafa náð að vinna upp forskot ÍR og komast yfir þegar stutt var eftir af leiknum. Bikardraumurinn er því úti í ár og leikmenn voru að vonum svekktir að leik loknum – ásamt vaskri stuðningsmannasveitinni sem fylgdi liðinu suður.

Þrátt fyrir að Bjarni Ófeigur virtist lítið geta beitt sér í skotum fyrir utan náði hann að gera nokkur mörk eftir gegnumbrot og gefa heilar 10 stoðsendingar og fiska 3 víti. Einar Rafn Eiðsson skoraði 6 af 7 mörkum sínum af vítalínunni en hornamenn og línumenn liðsins gerðu 19 af mörkum liðsins.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 7 (6 víti), Giorgi Dikhaminjia 7, Dagur Gautason 5, Jens Bragi Bergþórsson 4, Einar Birgir Stefánsson 3, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 3, Magnús Dagur Jónatansson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 13 (2 víti), Bruno Bernat 2.

Mörk ÍR: Jökull Blöndal Björnsson 10 (2 víti), Róbert Snær Örvarsson 6, Elvar Otri Hjálmarsson 5, Baldur Fritz Bjarnason 3 (2 víti), Bernard Kristján Owusu Darkoh 3, Patrekur Smári Arnarsson 2, Sveinn Brynjar Agnarsson 2, Eyþór Ari Waage 1.

Varin skot: Alexander Ásgrímsson 10, Ólafur Rafn Gíslason 0.