Fara í efni
Körfuknattleikur

Geta forsetahjónin gengið á höndum?

Gengið á höndum! Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, svaraði játandi þeirri spurningu úr sal hvort hann gæti gengið á höndum - og sannaði mál sitt! Myndir: Axel Þórhallsson

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, tóku þátt í útskriftarhátíð Vísindaskóla unga fólkins í hátíðarsal Háskólans á Akureyri á föstudaginn og segja má að þau hafi slegið í gegn. Halla flutti ræðu og forsetahjónin svöruðu fjölda spurninga sem nemendur Vísindaskólans höfðu sent embættinu, m.a. þeirri spurningu hvort þau gætu gengið á höndum – og því er hægt að ljóstra upp hér að annað hjónanna svaraði spurningunni játandi!

Vísindaskólinn var starfræktur alla síðustu viku. Þetta var 11. starfsár skólans, sem rekinn er af Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, og þessu sinni voru 85 börn í skólanum. Það er aldurshópurinn 11-13 ára sem getur skráð sig í Vísindaskóla unga fólksins og eru flestir nemendur af Eyjafjarðarsvæðinu. Hins vegar koma nemendur alls staðar að, sumir frá útlöndum.

Að venju var boðið upp á fjölbreytt þemu í skólanum. Að sögn Sigrúnar Stefánsdóttur, skólastjóra, og Dönu Ránar Jónsdóttur, verkefnastjóra, er alltaf erfitt að spá fyrir um hvaða þemu njóta mestrar hylli. Meðal verkefna sem boðið var upp á að þessu sinni var fræðsla um störf Alþingis og féll það í mjög góðan jarðveg. Gömul vinnubrögð voru líka vinsæl og ekki síður gervigreindin sem er að verða allsráðandi í samfélaginu.

Að sögn Sigrúnar og Dönu er mikil áhersla lögð á lifandi kennslu, að opna augu nemenda fyrir nýjum áskorunum og að reyna að láta þá stíga út fyrir þægindarammann. Kennarar koma víða að og segja þær stöllur að þar sé valinn maður í hverju rúmi. Skólinn er styrktur fjárhagslega af mögum aðilum, m.a. Akureyrarbæ, Samherja, Norðurorku og fjölda annarra fyrirtækja og félaga. Sigrún og Dana vilja sérstaklega þakka kennurum og styrktaraðilum fyrir að gera skólann að því sem hann er í dag.

Kærleikurinn mikilvægur

Forsetinn hélt ræðu við útskriftarathöfnina og var Höllu tíðrætt um kærleikann. Hún myndaði margoft hjarta með höndunum, en hjartamerkið er orðið að alþjóðlegu tákni fyrir jákvæðar tilfinningar. Í ræðu sinni ræddi Halla bæði efasemdir og hugrekki en bað krakkana síðast en ekki síst um að vera riddarar kærleikans. „Við þurfum á Íslendingum að halda sem langar að bæta sitt samfélag. Það síðasta sem mig langar til að biðja ykkur um að gera er að vera riddarar kærleikans, að muna að alveg sama við hvað þið vinnið, hvað þið lærið, hvar þið eruð, þá höfum við það öll á færi okkar að búa til kærleiksríkara samfélag,“ sagði Halla.

Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar við Háskólann á Akureyri, var einn kennara í Vísindaskólanum að þessu sinni. 

Forsetamakinn gekk á höndum

Nemendur Vísindaskólans höfðu undirbúið spurningar til forsetahjónanna og snerist ein spurningin um það hvort hjónin gætu gengið á höndum. Halla neitaði en Björn gerði sér lítið fyrir, snaraði sér úr jakkanum og gekk á höndum um sviðið. Fyrr um daginn hafði hann einnig gert það þegar hann heimsótti krakka í vinnuskólanum.

Hér fyrir neðan má sjá brot af spurningum krakkanna í Vísindaskólanum til forsetahjónanna og þeirra svörum og svörum:

- Varstu stressaður þegar Halla varð forseti?

Björn: „Nei, ég vissi að hún yrði frábær forseti og ég var bara mjög spenntur. Kvöldið sem fyrstu tölur komu þá fór ég að gráta um leið, ég var svo stoltur.“

Það vakti mikla lukku viðstaddra þegar Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur – forsetamaki, eins og hann hefur verið kallaður – fór úr jakkanum og gekk á höndum um sviðið.

- Hvað gerið þið í frítíma ykkar?

Björn: „Við förum út að labba og í sund. Ég elda mjög oft fyrir hana. Þegar við vorum úti í Svíþjóð þá spurði sænska krónprinsessan hvað við værum með marga kokka á Bessastöðum. Þau eru bara með sjö. Ég sagði að það væri bara einn, sem er ég. Þannig ég elda fyrir forsetann.“

- Hver er uppáhaldsmaturinn ykkar?

Björn: „Íslenskt lambakjöt og fiskur.“

Halla: „Allt sem syndir í sjónum og pitsan sem Bjössi býr til heima hjá okkur á föstudögum.“

- Færðu þér ananas á pitsu?

Halla: „Ég fæ mér ekki ananas á pitsu en ég vil alveg leyfa fólki að fá sér ananas á pitsu og börnin mín gera það gjarnan.“

 

Margir fengu mynd af sér með forsetahjónunum að útskriftarhátíðinni lokinni .

- Er Halla skemmtileg?

Björn: „Ótrúlega skemmtileg“.

- Er Björn skemmtilegur?

Halla: „Sjáið þið það ekki? Björn er skemmtilegasti maður sem ég hef nokkurn tímann hitt og ég held að það séu allir sammála því sem fá að kynnast honum.“

- Hvernig er venjulegur dagur í lífi þínu?

Halla: „Það er enginn venjulegur dagur í starfi forseta. Það hefur enginn dagur verið eins í næstum þrjú ár. En það er mjög gaman að búa á Bessastöðum, það er ótrúleg náttúrufegurð þó að Akureyri slái öllu við þegar kemur að náttúrufegurð en fuglalífið þar er algjörlega einstakt.

- Hvað finnst þér um börn?“

Björn: „Sagðir þú börn eða Björn?“

Halla: „Börn eru best og Bjössi er bestur.“

- Hver er uppáhalds bíómyndin þín?

Halla: „Líklega Forrest gump því lífið er dálítið eins og konfektkassi. Þú veist aldrei hvað þú færð og allir molar eru ólíkir en alltaf eitthvað gott í hverjum og einum.“

- Hatarðu einhvern?

Halla: „Nei. Ég hata bara hatrið.“

- Æfðir þú íþróttir þegar þú varst lítil?

Halla: Já, bæði handbolta og fótbolta. Og ég reyndi fyrir mér í fimleikum en var vinsamlegast beðin um að fara fljótt heim.

- Geturðu talað dönsku?

Halla: „Já, ég get talað dönsku en ég tala betur ensku og spænsku en dönsku og Danir skilja mig ekki endilega.“

- Ertu hrædd um að það komi stríð á Íslandi?

Halla: „Nei en ég hef áhyggjur af því að við tölum ekki nógu mikið um frið á Íslandi og í heiminum.“