Fara í efni
Körfuknattleikur

Fjörugt fram undan en flest lið á útivöllum

Í dag og næstu daga er nóg af íþróttakappleikjum í boði, flestir þeirra þó að heiman. Aðeins einn heimaleikur, mikilvægur leikur Þórs í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu. Þrjú handboltalið, tvö íshokkílið, tvö körfuboltalið, eitt blaklið og eitt fótboltalið verða hins vegar á faraldsfæti í dag og næstu daga.

  • Kvennalið KA í blaki hóf keppni í Unbroken-deildinni með 3-0 útisigri gegn Þrótti R./Blakfélagi Hafnarfjarðar og í dag er komið að öðrum útileik, en þó styttra að fara. KA sækir Völsung heim í öðrum leik sínum í deildinni í kvöld.
  • KA hefur farið vel af stað í Olísdeildinni í handbolta í haust, situr í 2. sæti deildarinnar með átta stig úr fyrstu fimm leikjunum, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka. KA sækir Víking heim í sjöttu umferðinni á föstudag.
  • Karlalið Þórs í körfubolta hóf keppni í 1. deildinni um liðna helgi með tapi, líklega gegn sterkasta liði deildarinnar, Þór frá Þorlákshöfn. Á föstudag er komið að útileik gegn Hamri í Hveragerði.
  • Lið KA/Þórs hefur ekki náð sér í stig í fyrstu fjórum umferðum Olísdeildar kvenna í handbolta, en vonandi breytist það á föstudagskvöldið þegar KA/Þór sækir Gróttu heim á Seltjarnarnesið í fimmtu umferð mótsins.
  • SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, sækja Fjölni heim í Egilshöllina á föstudagskvöldið í fimmta leik sínum í Toppdeildinni á tímabilinu. Hingað til hefur liðið unnið U20 liðið tvívegis, en tapað bæði fyrir Fjölni og SR á útivelli.
  • Senn dregur til tíðinda í Bestu deild karla í knattspyrnu. Akureyrarliðin eru í harðri baráttu við að forðast fall úr deildinni og nú eru níu stig eftir í pottinum. KA sækir Stjörnuna heim í 25. umferðinni, en Þór tekur á móti ÍBV. Valur og Stjarnan hafa nú þegar tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni, en í fjórum neðstu sætunum eru FH með 27 stig, KA með 23, Þór með 21 og ÍBV með 19. 
  • Bikarkeppnin í handbolta, Powerade-bikarinn, er komin í gang og komið að 16 liða úrslitunum. Lið Þórs heldur til Vestmannaeyja og mætir ÍBV-2 á laugardag.
  • Kvennalið SA í íshokkí hefur byrjað tímabilið af krafti og unnið bæði Reykjavíkurliðin einu sinni. Á laugardag er komið að heimsókn í Laugardalinn þar sem búast má við hörkuleik gegn Íslandsmeisturum SR.
  • Kvennalið Þórs í körfubolta tapaði naumlega fyrir nöfnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn í fyrsta leik sínum í 1. deildinni á tímabilinu. Á sunnudag er komið að heimsókn í Borgarnes, en Skallagrímur teflir nú aftur fram kvennaliði í Íslandsmótinu.

MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER - blak

Annar leikur KA í Unbroken-deild kvenna á tímabilinu.

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    GPG höllin á Húsavík kl. 19
    Völsungur - KA

FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER - handbolti

KA sækir Víkinga heim í sjöttu umferð Olísdeildar karla í handbolta. 

  • Handbolti
    Powerade-bikarinn, 8 liða úrslit
    Virkið í Safamýri kl. 19
    Víkingur - KA

Eftir stórt tap í fyrstu umferðinni er komið að útileik hjá karlaliði Þórs í körfuboltanum, heimsókn til Hamars í Hveragerði.

  • Körfubolti
    1. deild karla, 2. umferð
    Hveragerði kl. 19:15
    Hamar - Þór

KA/Þór þarf sárlega á sigri að halda í Olísdeild kvenna í handbolta. Vonandi krækja þær í sín fyrstu stig á Seltjarnarnesinu.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 5. umferð
    Hertz-höllin á Seltjarnarnesi kl. 19:30
    Grótta - KA/Þór

Emil Alengård, þjálfari hokkíliða SA, heimsækir sinn gamla vinnustað, skautasvellið í Egilshöllinni, með SA Víkingum.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautasvellið í Egilshöll kl. 19:45
    Fjölnir - SA

LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER - fótbolti, handbolti, Íshokkí

Baráttan við að forðast fall úr Bestu deild karla í knattspyrnu er að ná hámarki. 

  • Fótbolti
    Besta deild karla, 25. umferð, neðri hluti
    Samsungvöllurinn í Garðabæ kl. 14
    Stjarnan - KA

Heimaleikur Þórs gegn ÍBV í baráttu neðstu liða Bestu deildar karla í knattspyrnu er á dagskrá á laugardag. Svo gæti farið að úrslit leikja laugardagsins þýði að ÍBV falli úr deildinni.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, 25. umferð, neðri hluti
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á Ásnum) kl. 14
    Þór - ÍBV

Eyjamenn geta verið erfiðir heim að sækja í handboltanum, jafnvel þó liðið heiti ÍBV-2, þar sem vænta má blöndu af reyndum kempum og ungum, sprækum Eyjamönnum.

  • Handbolti
    Powerade-bikarinn, 8 liða úrslit
    Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja kl. 16:30
    ÍBV 2 - Þór 

Hörkuslagur í boði í Skautahöllinni í Laugardalnum þegar SA sækir lið Íslandsmeistaranna heim.

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
    SR - SA

SUNNUDAGUR 11. OKBÓTER - körfubolti

Borgarnes er aftur komið á kortið í meistaraflokki kvenna í körfubolta. Kvennalið Þórs sækir Skallagrím heim á sunnudag.

  • Körfubolti
    1. deild kvenna, 2. umferð
    Íþróttamiðstöðin Borgarnesi kl. 16
    Skallagrímur - Þór

Stöður í deildum og leikjadagskrár 

Blak

Fótbolti

Handbolti

Íshokkí

Körfubolti


Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.