Fara í efni
Körfuknattleikur

Emma og Nile öflugar í sigri Þórs á KV

Emma Karólína Snæbjarnardóttir umkringd leikmönnum KV. Sextán sinnum fengu gestirnir villu fyrir brot á Emmu, sextán sinnum skoraði hún úr 19 vítaskotum og stigin samtals 37 þegar upp var staðið. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Þór vann KV með 20 stiga mun, 90-70, í þriðju umferð 1. deildar kvenna í körfubolta þegar liðin mættust í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær. Tveimur stigum munaði eftir fyrri hálfleikinn, en frábærir kaflar í seinni hálfleiknum skiluðu Þórsliðinu öruggum sigri. Emma Karólína Snæbjarnardóttir og Nile Miller voru öflugar í Þórsliðinu, Emma með 37 stig, en Nile tók 16 fráköst og stal 13 boltum.

Leikurinn var nokkuð jafn í upphafi, en Þór náði tíu stiga forskoti á lokamínútum fyrsta leikhlutans. Annar leikhluti byrjaði afleitlega og náðu gestirnir forystunni með 15-2 áhlaupi í fyrri hluta hans. Ekkert gekk upp hjá Þórsliðinu á þessum kafla, skotin rötuðu ekki niður og annað eftir því. Tíu stiga forskotið úr fyrsta leikhlutanum hvarf og KV með þriggja stiga forskot, 29-32, þegar Þórsliðið náði vopnum sínum að nýju. Tveimur stigum munaði að loknum fyrri hálfleiknum, 41-39, Þór í vil.

Skildu slæma kaflann eftir

Frábær seinni hálfleikur skilaði hins vegar góðri forystu og öruggum sigri þegar upp var staðið. Þórsliðið seig hægt og bítandi fram úr í þriðja leikhlutanum, náði góðum tökum á leiknum og 17 stiga forskoti. Áhlaup eins og í öðrum leikhlutanum var hins vegar ekki í kortunum hjá KV heldur voru það Þórsarar sem keyrðu yfir gestina í upphafi fjórða leikhlutans. Þór skoraði ellefu fyrstu stigin í fjórða leikhlutanum, sem var rúmlega hálfnaður þegar KV tókst að skora sín fyrstu stig. Þór vann þriðja leikhlutann með 15 stiga mun og náði mest 28 stiga forskoti, 85-57, um miðjan fjórða leikhlutann. Lokatölur 90-70.

Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl, sextán ára leikmaður sem kom til Þórs frá Snæfelli í haust, tók tíu fráköst í leiknum. Þrátt fyrir ungan aldur er hún á sínu þriðja ári í meistaraflokki. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Þó svo munurinn hafi á endanum orðið 20 stig verður að hrósa baráttuglöðu liði KV sem samanstóð af átta íslenskum leikmönnum. Þær nýttu þriggja stiga skotin mun betur en Þórsliðið, skoruðu úr 11 slíkum á meðan fimm þriggja stiga skot heppnuðust hjá Þórsliðinu. 

Magnaðar tölur hjá Emmu og Nile

Þegar rýnt er í tölfræðina má finna nokkra áhugaverða punkta:

  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir fékk 19 vítaskot í leiknum og skoraði úr 16 skotum. Af 37 stigum sem hún skoraði í leiknum voru því 21 úr opnum leik, en 16 af vítalínunni.
  • Sextán sinnum fengu leikmenn KV villu fyrir brot á Emmu Karólínu. 
  • Nile Miller var með þrefalda tvennu í stigum, fráköstum og stolnum boltum! Hún skoraði 12 stig, tók 16 fráköst og stal 13 boltum.
  • Nile Miller var með hæsta framlagið í Þórsliðinu, þó svo Emma Karólína hafi verið langstigahæst. Nile var með 43 framlagspunkta og Emma 41.
  • Sú yngsta í Þórsliðinu, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl, sem er 16 ára, tók tíu fráköst, auk þess að skora átta stig.
  • Fjórar af átta, helmingur leikmanna KV, voru komnar í fjórar villur í leiknum þegar yfir lauk. KV fékk samtals 25 villur í leiknum, en Þór 14.

Nile Miller var með athygliverða tölfræði í leiknum, skoraði 12 stig, tók 16 fráköst og stal 13 boltum! Niðurstaðan var 43 framlagspunktar. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Þór - KV (27-17) (14-22) 41-39 (33-18) (16-13) 90-70 

Þetta var annar sigur Þórsliðsins í þremur leikjum. Fimm lið eru jöfn með tvo sigra; Breiðablik, Selfoss, Þór Þ., Þór A. og Keflavík-b, en Keflavíkurliðið þó ósigrað, hefur aðeins spilað tvo leiki.

Helstu tölur, stig/fráköst/stoðsendingar:

Þór

Emma Karólína Snæbjarnardóttir 37/9/6, Nile Miller 12/16/5 (13 stolnir boltar), Ksenija Kuzmanovic 11/8/0, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl 8/10/2, Sigurlaug Eva Jónasdóttir 6/1/0, Hrefna Ottósdóttir 6/0/0, Kristný Halla Bragadóttir 4/0/0, Karen Lind Helgadóttir 3/2/1, Vaka Bergrún Jónsdóttir 3/1/1,  María Sól Helgadóttir 0/1/1.

KV

Elfa Falsdóttir 21/4/2, Ingunn Erla Bjarnadóttir 17/5/5, Klara Líf Pálsdóttir 15/8/3, Kristrún Edda Kjartansdóttir 8/5/4, Anna Lóa Óskarsdóttir 6/5/0, Telma Lind Bjarkadóttir 2/6/2, Katrín Huld Káradóttir 1/5/0, Jannika Jónsdóttir 0/4/1.

Leikskýrslan og tölfræði

Staðan í deildinni

Næst:

  • Laugardagur 24. október
    1. deild kvenna, 4. umferð
    Skógarsel í Breiðholti kl. 18
    ÍR - Þór

Armar Nile Miller geta gert ýmislegt annað en að skora stig, hirða fráköst og stela boltum. Hér fá Kristrún Edda Kjartansdóttir úr KV og María Sól Helgadóttir úr Þór aðstoð frá Nile eftir byltu. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.