Fara í efni
Körfuknattleikur

Daði sleit hásin, Hafþór og Bjarni hvorugur með

Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Hafþór Vignisson og Daði Jónsson. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Tveir lykilmenn handboltaliðs KA og einn af burðarásum Þórs eru meiddir og missa af stórleik Akureyrarliðanna í lokaumferð Olísdeildarinnar í kvöld.

  • Daði Jónsson fyrirliði KA og grjótharður varnarmaður sleit hásin á æfingu í gærkvöldi og verður lengi frá.
  • Stórskyttan Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur glímt við meiðsli undanfarið. Hann kom örlítið við sögu í síðasta leik KA en spilar ekki í kvöld.
  • Hafþór Vignisson, örvhenta skyttan frábæra í Þór, meiddist á ökkla í fyrri hálfleiknum í sigurleiknum gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Hann lauk þó leiknum en spilar ekki í kvöld.
  • Þá er Norðmaðurinn Morten Boe Linder ekki með KA frekar en undanfarið. Hann fór úr axlarlið í leik fyrir skömmu.