Fara í efni
Knattspyrna

Þriðji sigur KA-manna í röð í Bestu deildinni

Jakob Snær Árnason var maður dagsins með því að skora sigurmarkið á 86. mínútu. Myndir: Ármann Hinrik

KA vann sinn þriðja leik í röð í Bestu deild karla í fótbolta þegar liðið sigraði FH 2-1 í sjöundu umferðinni á grasvellinum í Kaplakrika í Hafnarfirði síðdegis í dag.

KA er þar með komið með 10 stig í sjötta sæti deildarinnar og hefur heldur betur rétt sinn hlut eftir að hafa fengið eitt stig í fyrstu fjórum leikjum sínum í vor. FH er hins vegar enn án sigurs og er næstneðst með aðeins tvö stig. Það eru erfiðir tímar hjá ungu liði í Hafnarfirði um þessar mundir.

Lið FH kom hálf vængbrotið til leiks í Kaplakrika í dag, án nokkurra meiddra lykilmanna og beint úr vondum skelli í bikarleik þar sem liðið steinlá fyrir 1. deildarliði Fylkis, 5-0. KA hafði svo sem líka upplifað talsverða niðurlægingu í bikarkeppninni á dögunum þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Ægi, botnliði 1. deildarinnar.

Ljóst var því að bæði lið höfðu fulla ástæðu til að nýta leik dagsins til að sýna sig og sanna á ný.

Steinþór Már Auðunsson markvörður KA kom í veg fyrir að tíu FH-ingar kæmust tveimur mörkum yfir þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en þá varði hann vel frá Benjamín Bæring úr dauðafæri Hafnfirðinga.

FH-ingar náðu forystunni eftir ríflega hálftíma leik þegar Benjamín Bæring Þórsson, einn af ungu strákunum í Hafnarfjarðarliðinu, fylgdi á eftir í markteig KA eftir skot Tómasar Orra Róbertssonar að markinu, 1-0.

Markið kom heldur gegn gangi leiksins miðað við mínúturnar á undan þar sem KA hafði smám saman náð yfirhöndinni á vellinum. Litlu munaði svo að Birgir Baldvinsson jafnaði strax tveimur mínútum síðar þegar hann átti skalla af stuttu færi í hliðarnetið á marki FH.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks dró heldur betur til tíðinda. Hallgrímur Mar Steingrímsson slapp innfyrir miðja vörn FH í miðjuhringnum og brunaði upp að markinu. Kristján Snær Frostason bakvörður FH elti hann og skellti honum rétt utan vítateigs. Kristján fékk að sjálfsögðu rauða spjaldið og Hallgrímur aukaspyrnu á besta stað, í vítaboganum og fyrir miðju marki. En hann nýtti ekki tækifærið, skaut í varnarvegginn, og í sömu svifum flautaði Arnar Þór Stefánsson dómari til loka fyrri hálfleiks.

Steinþór Már Auðunsson markvörður KA kom í veg fyrir að tíu FH-ingar kæmust tveimur mörkum yfir þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en þá varði hann vel frá Benjamín Bæring úr dauðafæri Hafnfirðinga.

En KA jafnaði metin á 54. mínútu. Jeppe Pedersen fékk boltann frá Samuel Kroon og skaut hörkuskoti af 20 metra færi upp undir þverslána vinstra megin, 1-1. Fyrsta markið sem Daninn skorar fyrir KA í deildinni en margir muna eftir mögnuðu sigurmarki hans fyrir Vestra gegn Val í úrslitaleik bikarkeppninnar á síðasta ári.

Jeppe Pedersen skoraði fyrra mark KA með hörku skoti af 20 metra færi upp undir þverslána vinstra megin. Fyrsta markið sem Daninn skorar fyrir KA í deildinni „en margir muna eftir mögnuðu sigurmarki hans fyrir Vestra gegn Val í úrslitaleik bikarkeppninnar á síðasta ári,“ skrifar Víðir Sigurðsson í umfjölluninni. 

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA gerði þrefalda skiptingu skömmu síðar og blés til meiri sóknar þegar hann sendi Jakob Héðin Róbertsson, Diego Montiel og Snorra Kristinsson inn á völlinn.

KA sótti mun meira það sem eftir var leiks og Jakob Héðinn var nærri því að koma KA yfir á 73. mínútu þegar Jökull Andrésson í marki FH varði skalla hans glæsilega í horn. Sóknarþunginn skilaði hins vegar ekki mörgum marktækifærum gegn baráttuglöðum FH-strákum og það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Hallgrím þjálfara hve hægt gengur að koma Danijel Dejan Djuric og Oliver Heiðarssyni á skrið með KA-liðinu. Danijel fór enn og aftur snemma af velli, er ekki ennþá farinn að sýna nema brot af því sem vonast var til, og Oliver sást lítið þar til honum var skipt af velli seint í leiknum.

En það var fjórði varamaður KA, Jakob Snær Árnason, sem var maður dagsins. Hann skoraði sigurmarkið, 2-1, á 86. mínútu en þá var hann vel vakandi þegar Snorri Kristinsson átti skot frá vítateig, í varnarmann og upp í loftið. Jakob stakk sér inn fyrir og skoraði einn gegn markverðinum. Frábær innkoma hjá Jakobi sem missti af fyrstu fjórum leikjum KA í deildinni í vor vegna meiðsla.

Í uppbótartímanum gekk mikið á í markteig KA eftir hornspyrnu en Steinþór markvörður náði að góma boltann eftir talsverða orrahríð þar sem FH-ingar hefðu hæglega getað jafnað metin.

Það tókst þeim ekki og KA vann eftir atvikum verðskuldaðan sigur en þurfti heilmikla þolinmæði til að knýja fram stigin þrjú, manni fleiri allan síðari hálfleikinn. Staða liðsins hefur heldur betur breyst til hins betra og næstu mótherjar eru Valsmenn, næsta lið fyrir ofan KA í deildinni, en þeir mæta til Akureyrar í áttundu umferðinni á föstudagskvöldið kemur.

Lið KA: Steinþór Már Auðunsson - Kári Gautason (Snorri Kristinsson 59.), Markús Máni Pétursson, Hans Viktor Guðmundsson, Birgir Baldvinsson (Diego Montiel 59.) - Samuel Kroon (Breki Hólm Baldursson 80.), Hallgrímur Mar Steingrímsson, Jeppe Pedersen - Sveinn Margeir Hauksson, Oliver Heiðarsson (Jakob Snær Árnason 78.), Danijel Dejan Djuric (Jakob Héðinn Róbertsson 59.)

Eftir sjö umferðir eru Víkingur og KR með 19 stig á toppnum, Fram 14, Breiðablik 12, Valur 12, KA 10, Keflavík 8, Akranes 8, Stjarnan 7, Þór 6, FH 2 og ÍBV 1 stig. Öll áttunda umferðin verður leikin á föstudaginn.

Leikskýrslan á vef KSÍ