Fara í efni
Knattspyrna

Þór tekur á móti Breiðabliki í dag

Þórsararnir Kristófer Kristjánsson og Yann Emmanuel Affi í leiknum gegn KA á dögunum. Mynd: Ármann Hinrik.

Leikmenn karlaliðs Þórs í Bestu deildinni í knattspyrnu fengu ekki mikið æfingafrí um helgina enda er komið að næsta leik í deildinni strax í dag þegar Þór tekur á móti Breiðabliki í 17. umferð mótsins.

Markalaust jafntefli gegn KA í Akureyrarslagnum í Bestu deild karla færði liði Þórs eitt stig í pokann, en ekki nýja stöðu í töflunni. Þór er áfram í 12. sæti deildarinnar, nú með 12 stig að loknum 16 leikjum. Breiðablik er í 4. sæti deildarinnar með 29 stig. Breiðablik vann ÍBV 1-0 í síðasta leik sínum, en Þór gerði markalaust jafntefli við KA.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 17. umferð
    VÍS-völlurinn (gervigras á Ásnum) kl. 18:30
    Þór - Breiðablik

Þór teflir fram nýjum leikmanni sem samdi við félagið núna í félagaskiptaglugganum, Kevin Vazquez, sem hefur reynslu úr La Liga, efstu deild Spánar, en kemur til félagsins frá Sporting Gijon í næstefstu deild spænsku knattspyrnunnar. Auk Vazquez hafa þrír leikmenn bæst í hópinn í glugganum; landi hans Victor Bertumeo, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, lánsmaður frá KR, og Þorri Ingólfsson, lánsmaður frá Víkingi.