Fara í efni
Knattspyrna

Þór leikur í Litháen í dag – Bein textalýsing

Byrjunarlið Þórs í fyrri leiknum gegn FK Zalgiris sem fram fór á VÍS-velli Þórs um miðjan september. Mynd: Ármann Hinrik.

Seinni leikur Þórs og litháísku meistaranna í FK Zalgiris í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar ungmenna í knattspyrnu – UEFA Youth League, fer fram í Vilnius í dag. Litháarnir unnu fyrri leikinn 4:3 á VÍS-velli Þórs um miðjan september. Þórsarar þurfa því sigur í dag til að komast áfram, en það lið sem hefur betur í viðureigninni mætir St. Patrick's Athletic frá Írlandi.

Þórshópurinn hélt utan á mánudaginn, 20 leikmenn og fimm manna starfslið. Strákarnir æfðu á leikvangnum í gær og eru allir klárir í slaginn, eins og það er orðað á vef Þórs í morgun. Leikurinn hefst klukkan 19:00 að staðartíma – kl. 16:00 að íslenskum tíma.

„Því miður verður leikurinn ekki sýndur beint en reglur UEFA heimila ekki að leikir í Youth League séu sendir út í beinni útsendingu þegar verið er að spila í Meistaradeild Evrópu á sama tíma,“ segir á vef Þórs en bent er á að bein textalýsing verður frá leiknum á vef Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.

  • MYNDIN AÐ OFAN – Byrjunarlið Þórs í fyrri leiknum gegn FK Zalgiris sem fram fór á VÍS-velli Þórs um miðjan september. Aftari röð frá vinstri: Peter Ingi Helgason, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Lucas Vieira Thomas, Hákon Kári Jónsson, Kári Jónsson og Kjartan Ingi Friðriksson. Fremri röð frá vinstri: Jósef Orri Axelsson, Natan Dagur Fjalarsson, Óliver Sesar Bjarnason, Smári Signar Viðarsson og Sverrir Páll Ingason. 

  • Smellið á UEFA auglýsinguna hér að neðan til að fylgjast með textalýsingunni