Fara í efni
Knattspyrna

Þór endar í 10. sæti að mati sérfræðinga

Nokkrir uppaldir Þórsarar, sem leika nú í efstu deild í fyrsta skipti, fagna sigri í næst efstu deild í fyrrahaust. Frá vinstri: Ingimar Arnar Kristjánsson, Vilhelm Ottó Biering Ottósson, Ragnar Óli Ragnarsson, Aron Ingi Magnússon, Sigfús Fannar Gunnarsson og Kristófer Kristjánsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar leika í efstu deild karla í knattspyrnu í fyrsta sinn í tólf ár og spenningurinn í Þorpinu hefur stigmagnast eftir því sem upphaf Íslandsmótsins færist nær. Eins og nýliða er háttur er fyrsta markmiðið að sjálfsögðu að halda sætinu í deildinni og samkvæmt sérfræðingum og spámönnum fjölmiðla mun það markmið nást.

Reyndar er það svo að fáheyrður samhljómur er í spádómum fjölmiðlanna hvað varðar gengi Þórsliðsins í sumar. Sérfræðingar fotbolti.net og 433.is, sem sérhæfa sig í umfjöllun um knattspyrnu, spá því að Þór endi í 10. sæti deildarinnar af 12 liðum og sleppi þannig við fall. Það sama má segja um spána hjá visir.is og hjá Morgunblaðinu og mbl.is – tíunda sætið verður hlutskipti nýliðanna úr Þorpinu, þegar öll stig hafa verið talin í haust.

Margir uppaldir Þórsarar í hópnum og mikil stemmning kringum liðið

Sérfræðingarnir eru varfærnir í umsögnum sínum um Þórsliðið og e.t.v. hafa þeir ekki allir fylgst mikið með næstefstu deildinni undanfarin ár. En þeir benda réttilega á að í leikmannahópi Þórsara er mjög hátt hlutfall uppalinna Þórsara og margir þeirra hafi ekki reynslu úr efstu deild og þar með dálítið spurningarmerki hvernig þeir muni spjara sig gegn bestu liðum landsins. Þá hafa sumir sérfræðinganna áhyggjur af því að breiddin í leikmannahópnum sé ekki nægileg.

Þá er oft minnst á stemmninguna í kringum Þór og gríðarlega góða tengingu milli liðsins og stuðningsmannanna. Þessi einhugur er ekki síst vegna þess hversu margir uppaldir Þórsarar eru í leikmannahópnum og að „gamlir“ Þórsarar hafi snúið heim. Nauðsynlegt sé fyrir liðið að virkja þessa stemmningu og að heimavöllurinn skili stigum.

Sigurður Heiðar Höskuldsson er á sínu þriðja ári með Þórsliðið og hann hefur reynslu af því að koma „litlu“ liði upp í efstu deild og halda því þar. Það afrekaði hann með Leikni fyrir nokkrum árum og sérfræðingarnir telja að þessi reynsla muni nýtast vel fyrir Þór í svipaðri baráttu nú í ár.