Fara í efni
Knattspyrna

Selja treyju til styrktar Gesti og fjölskyldu

Gestur Arason, liðsstjóri knattspyrnuliðs Þórs síðustu ár – og ötull sjálfboðaliði í félaginu að ýmsu öðru leyti – greindist með bráða hvítblæði í byrjun mánaðarins og Þórsarar kynntu í gær fallegt framtak til styrktar fjölskyldunni. Útbúin hefur verið sérstök treyju sem merkt er FYRIR GEDDA, hún er seld á 15.000 krónur og allur ágóði rennur til fjölskyldunnar.

Gestur, sem er verslunarstjóri Símans á Akureyri, fór strax í meðferð á Landspítalanum. Þar verður hann „næstu vikur eða mánuði, maður veit aldrei tímann á þessu öllu saman,“ skrifaði Gestur á Facebook síðu sína 6. maí. 

  • Smellið hér til að panta treyju:

https://macron.is/vara/fyrirgedda/

Gestur Arason og eiginkona hans, Erla Bryndís Jóhannsdóttir; Gestur birti þessa mynd á Facebook daginn sem hann hóf meðferð á Landspítalanum 6. maí.