Fara í efni
Knattspyrna

Sanngjarn sigur Völsungs á Þór

Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar féllu á prófinu í kvöld þegar þeir fengu Völsunga frá Húsavík í heimsókn í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þórsliðið byrjaði ágætlega og náði forystu snemma leiks en síðan hallaði býsna hratt undan fæti og gestirnir unnu sanngjarnan sigur – 3:1. Gestirnir voru baráttuglaðari, grimmari og kraftmeiri, sem er sjaldgæft þegar lið Þórs á í hlut á heimavelli.

Reikna mátti með miklum baráttuleik þessara nágrannaliða og byrjunin sveik engan! Fyrsti Völsungurinn fékk áminningu á annarri mínútu,  fyrsti Þórsarinn tveimur mínútum síðar og hraustleg barátta hélt áfram um stund.

Það var Hermann Helgi Rúnarsson sem braut ísinn á 17. mínútu. Kom Þór þá í 1:0, ef til vill ólíklegasti maður vallarins til þess! Þetta var 92. leikur Hermanns á Íslandsmótinu og fyrsta markið sem hann skorar. Ibrahima Balde sendi á Hermann sem lék inn í vítateiginn hægra megin og skoraði framhjá Ívari.

Þórsarar fögnuðu að vonum vel og þögguðu um stund niður í fjölmennum og háværum stuðningsmannahópi Völsungs. Hópurinn sá arna hresstist þó fljótt, studdi sína menn af miklum móð og komið var að Húsvíkingum að fagna þegar rúmur hálftími var liðinn. Rafnar Máni Gunnarsson skoraði þá og markið kom ekki á óvart. Gestirnir höfðu verið betri og það kom heldur ekki á óvart, miðað við gang leiksins, að þeir komust yfir fyrir lok hálfleiksins. Þar var Arnar Pálmi Kristjánsson að verki. Það var svo Jakob Héðinn Róbertsson sem gerði þriðja mark Völsungs eftir klukkutíma leik.

Þórsarar tefla fram spennandi leikmannahópi sem mikils er vænst af, þónokkrir eru frá vegna meiðsla eins og er, en liðið á þó að geta miklu betur en í kvöld. Það er gömul saga og ný að ekkert gerist af sjálfu sér, góð frammistaða í leik skiptir ekki máli þegar stigið er inn á völlinn næst. Hugsanlega brenndu Þórsarar sig á því í kvöld.

Gestirnir voru baráttuglaðari, börðust eins og ljón allan tímann og létu finna vel fyrir sér. Engum getur hafa komið á óvart að nýliðarnir mættu þannig til leiks á móti nágrönnum sínum á Akureyri enda tóku Þórsarar vel á móti þeim framan en síðan var eins og mótlætið drægi úr þeim mesta móðinn.

Þess verður að geta að Völsungar léku ljómandi vel langtímum saman og greinilega er mun meira  spunnið í lið þeirra en margir gerðu ráð fyrir, miðað við spár. Vel var að verki staðið í mörkunum sem Völsungar gerðu, frá þeirra sjónarhóli, en varnarleikur Þórs var hins vegar slakur í öll þrjú skiptin.

Eftir leiki kvöldsins er ÍR í efsta sæti Lengjudeildarinnar með 14 stig að loknum sex leikjum, Njarðvík er með 12 stig, HK 11 og bæði Þór og Þróttur 10.
 
 
 
Nánar á morgun