Fara í efni
Knattspyrna

Nánast ólýsanlegt ævintýri í Þorpinu

Liðsfélagar Arons Birkis Stefánssonar fögnuðu honum innilega eftir að Aron kom Þór í 3:0 með marki af um það bil 70-75 metra færi! Á mynd Sævars Geirs Sigurjónssonar faðmar Bjarni Guðjón Brynjólfsson markvörðinn að sér og þeir Einar Freyr Halldórsson og Ragnar Óli Ragnarsson nálgast brosandi út að eyrum eins og gefur að skilja. Aðrar myndir: Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson

Leikur Þórs og KR í Bestu deildinni í knattspyrnu er einhver sá ótrúlegasti sem fram hefur farið óralengi. Leikurinn endaði 3:3 eins og fram kom í gær og boðið var upp á hvert lygilega atvikið af öðru. Þórsarar tóku forystu eftir rúma mínútu, komust í 2:0 með marki beint úr horni og þriðja markið – eftir tæpar 13 mínútur – verður áberandi í sögubókum um ókomna framtíð; Aron Birkir Stefánsson markvörður skoraði frá miðjum vallarhelmingi Þórs!

Eftir jafnteflið er KR áfram í öðru sæti deildarinnar með 29 stig en Þór fór upp í næst neðsta sæti; er með átta stig, einu meira en FH sem leikur við Stjörnuna í dag.


Þórsarar léku í sérstakri keppnistreyju að þessu sinni; hún var hönnuð og seld til styrktar Gesti Arasyni og fjölskyldu hans eftir að Gestur greindist með bráðahvítblæði í vor – sjá hér:


  • 1:0 eftir 65 sekúndur

Ekki kom sérstaklega á óvart að mörkin yrðu sex því liðin er þau sem höfðu fengið á sig langflest mörk, KR 31 og Þór 32. En gangur leiksins kom á óvart.

Ágúst Eðvald Hlynsson gerði fyrsta markið þegar 65 sekúndur voru liðnar þegar hann nýtti sér ótrúleg mistök í vörn KR. Boltanum var spyrnt fram hægri kantinn, Ágúst sótti að Finni Tómasi Pálssyni sem náði boltanum og hugðist senda til baka á Sigurpál Sören Ingólfsson markvörð sem kominn var langt út í teig en sendingin var slök. Boltinn fór framhjá markverðinum og í markstöngina, Ágúst Eðvald var mættur á vettvang og skoraði auðveldlega.


  • 2:0 – Mark beint úr hornspyrnu

Einar Freyr Halldórsson gerði annað mark Þórs beint úr hornspyrnu þegar tæpar 10 mín. voru búnar. Spyrna þessa sparkvissa stráks var mögnuð; hann skrúfaði boltann efst í markhornið fjær. Þórsarar fögnuðu ótrúlegri byrjun, en leikmenn KR héldu stuttan fund!


  • 3:0 – Magnaðasta mark Íslandsmótsins

Boltinn lenti þriðja sinni í marki KR þegar 12 mínútur og 55 sekúndur voru liðnar. Það eitt og sér er stórmerkilegt en markið sjálft er án efa eitt það glæsilegasta í efstu deild, og þótt víðar væri leitað, síðustu áratugi! Þórsarar fengu dæmda aukaspyrnu á miðjum eigin vallarhelmingi og Bjarni Guðjón Brynjólfsson hugðist nýta sér það að markvörður KR var mjög framarlega, langt frá marki sínu, og tók aukaspyrnuna strax. Annað hvort var dómarinn ekki tilbúinn ellegar boltinn á ferð, altént lét Jóhann Ingi Jónsson endurtaka spyrnuna – sem betur fer fyrir Þórsara, því spyrnan var ekki góð.



Aron Birkir Stefánsson markmaður Þórs sá sér leik á borði þegar hann áttaði sig á því að starfsbróðir hans hjá KR, Sigurpáll Sören, var enn langt frá markinu; tók aukaspyrnuna og skoraði með stórglæsilegu skoti af um það bil 70-75 metra færi. Þórsarar léku undan sterkum vindi í fyrri hálfleik, Aron Birkir nýtti sér það snilldarlega og eitt af því furðulega við fyrri hálfleikinn var að Þórsarar skyldu ekki nokkrum sinnum reyna markskot af eigin vallarhelmingi þegar tækifæri var til vegna þess að KR-ingar héldu sig við það að láta markvörðinn leika langt úti á velli þegar þeir voru með boltann, til að hann gæti tekið þátt í spilinu ef með þyrfti. Það hlytur að teljast stórundarlegt í ljósi aðstæðna en það má telja heppni KR-inga að Þórsarar virtust ekki átta sig á möguleikunum sem þetta skapaði.

Tilþrif Arons Birkis voru slík að það er hreinlega spurning hvort það gæti orðið hlutskipti hans að verða sparkari í amerískum fótbolta eftir að knattspyrnuskórnir fara á hilluna!

Staðan var sem sagt orðin 3:0 og það kallaði á annan fund; að þessu sinni ræddust þeir við út við hliðarlínu, Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, og leikmaðurinn þrautreyndi, Arnór Ingvi Traustason.


KR-ingar minnkuðu muninn á 30. mín. þegar Galdur Guðmundsson skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá hægri. Þórsarar töldu að Galdur hefði brotið á Aroni markverði en Jóhann dómari hlustaði ekki á þá.

Aron Sigurðarson gerði annað mark KR úr vítaspyrnu á 70. mín. Eftir sendingu inn í teig skallaði Eiður Gauti Sigurbjörnsson boltann í hönd Bjarna Guðjóns, sem sneri baki í hann. Óheppinn þar, Þórsarinn, og Aron skoraði af öryggi hjá nafni sínum.


  • Amir komst upp með fólskubrot

Með réttu hefði átt að reka KR-inginn Amir Cosic af velli þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum, stundarfjórðungi eftir að honum var skipt inná. Beðið var eftir því að KR-ingar tækju hornspyrnu þegar Cosic traðkaði viljandi á rist Danans Christians „Greko“ Jakobsen og gaf honum létt olnbogaskot í leiðinni. Daninn hafði stuggað við KR-ingnum sem svaraði með þessu lúalega bragði. Ömurlegt á að horfa og Cosic var heppinn að hvorki dómari né aðstoðardómari tóku eftir traðkinu sem sést greinilega á myndbandi. Skammarleg kveðjustund leikmannsins sem heldur senn utan í atvinnumennsku


Aðeins fjórum mínútum eftir hið fólksulega brot Amir Cosic jafnaði Gabríel Hrannar Eyjólfsson metin fyrir KR með föstu skoti vinstra megin úr vítateignum eftir sendingu Arons Sigurðarsonar. Títtnefndur Cosic kom við boltann næstur á undan Aroni – en hefðu með réttu ekki átt að vera innan vallar.


Leikurinn verður lengi í minnum hafður. Þórsarar komust í draumastöðu stöðu en gegn KR er reyndar aldrei á vísan að róa eins og kom í ljós. Gestirnir voru mun meira með boltann og gerðu harða hríð að marki Þórs í seinni hálfleik. Þórsarinn Sigfús Fannar átti að vísu skot í stöng KR-marksins strax í byrjun hálfleiksins en síðan tóku KR-ingar völdin. Þórsarar vörðust af miklum móð og héldu sig að miklu leyti í vörn, hvort sem það var meðvitað eða þeir áttu ekki annarra kosta völ gegn erfiðum og óútreiknanlegum andstæðingi.

Á lokamínútunum lyfti Jóhann dómari rauða spjaldinu tvisvar. Fyrst leit markaskorarinn Gabríel Hrannar gula spjaldið öðru sinni fyrir brot og þar með rautt; var rekinn af velli. Skömmu síðar var Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Þórs, rekinn af varamannabekknum fyrir mótmæli.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni