Markús Máni semur á ný – út leiktíðina 2028
Markús Máni Pétursson, miðvörðurinn tvítugi í knattspyrnuliði KA, skrifaði í dag undir nýjan samning við félagið. Hann er nú samningsbundinn út sumarið 2028.
Markús Máni hefur tekið þátt í öllum leikjum KA í sumar. Hann hefur verið viðloðandi liðið síðustu ár en var kallaður til meiri ábyrgðar þegar Ívar Örn Árnason, fyrirliði KA síðustu ár, var óvænt seldur til Breiðabliks skömmu áður en Íslandsmótið hófst í vor og hefur fyllt skarð hans með ágætum.
„Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA sumarið 2025 er hann tók þátt í leik KA og Breiðabliks í Meistarakeppni KSÍ og lék svo í kjölfarið 6 leiki í Bestu deildinni,“ segir um Markús Mána heimasíðu KA í dag.
„Markús Máni er afar spennandi leikmaður sem er einnig mikill leiðtogi á vellinum. Hann hefur einnig gegnt lykilhlutverki í sterku liði 2. flokks KA sem varð Íslandsmeistari sumarið 2024 og keppti loks í Evrópukeppni síðasta sumar. Markús er mikill íþróttamaður, hann er sterkur í návígjum, með góðan stökkkraft og fljótur. Þá er hann einnig mikill liðsmaður sem gefur alltaf allt í leikinn,“ segir í tilkynningu KA-mann.