Fara í efni
Knattspyrna

Kvennalið KA komið í úrslit bikarkeppninnar

KA-stelpurnar fagna í Kópavogi í kvöld. Mynd: Blaksamband Íslands

Kvennalið KA í blaki tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik bikarkeppninnar, Kjörísbikarsins, með öruggum sigri á liði Þróttar R./Blakfélags Hafnarfjarðar, 3-1. KA mætir deildarmeisturum HK í úrslitaleiknum á laugardag.

KA byrjaði fyrstu hrinuna mun betur og skoraði fimm fyrstu stigin áður en andstæðingarnir komust á blað. Þessi munur hélst svo fram eftir hrinunni þar til KA-konur bættu enn í og náðu 11 stiga forskoti. Síðasta stig hrinunnar lét aðeins bíða eftir sér, en KA vann hana að lokum örugglega, 25-17.

Önnur hrinan var jafnari og Þróttur/BH með forystuna framan af, en náðu þó aðeins einu sinni þriggja stiga forystu. Hrinan var jöfn alveg til enda og jafnt á næstum öllum tölum frá 10-10 og næstum alla leið, eða þar til Þróttur/BH náði að skora tvö síðustu stigin og tryggja sér sigur í hrinunni, 25-23.

Leikmenn KA fagna stigi í leiknum í kvöld. Mynd: BLÍ

Þróttur/BH hóf svo þriðju hrinuna með því að skora fimm fyrstu stigin áður en KA komst á blað. KA-konur náðu þó vopnum sínum áður en langt um leið og jöfnuðu í 8-8. Liðin skiptust síðan á að leiða fram eftir hrinunni, munurinn aldrei meiri en þrjú stig á annan hvorn veginn þar til undir lokin að KA náði sex stiga forskoti, 24-18, og kláraði loks hrinuna með 25-21 sigri.

KA tók svo forystuna strax í upphafi fjórðu hrinunnar, hélt henni og bætti jafnt og þétt við og vann hana að lokum örugglega með sjö stiga mun. KA náði 11 stiga forskoti, 24-13, en eins og fyrr í leiknum lét síðasta stigið bíða eftir sér. Þróttur/BH náði fimm stigum í röð og minnkaði muninn í sex stig áður en KA náði að klára og tryggja sér sigur í hrinunni, 25-18, og þar með í leiknum, 3-1.

Þróttur R./Blakfélag Hafnarfjarðar - KA 1-3 (17-25, 25-23, 21-25, 18-25)

Leikskýrslan

Fyrr í dag vann HK lið Aftureldingar örugglega í hinni undanúrslitaviðureigninni, 3-0. Hrinurnar enduðu 25-14, 25-19 og 25-22. Úrslitaleikurinn verður í Digranesi í Kópavogi laugardaginn 14. mars kl. 13. 

Vonandi verður gengi KA-kvenna betra í úrslitaleiknum gegn HK en það hefur verið gegn Kópavogsliðinu í deildinni í vetur. Fjórar viðureignir og fjögur töp. KA og HK mættust tvisvar á Akureyri í desember og vann HK báðar viðureignirnar, 3-1 og 3-0. Innan við vika er síðan þessi lið mættust í lokaleikjum Unbroken-deildarinnar í Digranesi þar sem efsta sætið og deildarmeistaratitillinn var í húfi. HK vann báðar viðureignirnar, 3-2 og 3-1. 

Sterkir andstæðingar á laugardaginn

Miguel Mateo, þjálfari KA, kvaðst ánægður með sigurinn þegar akureyri.net heyrði í honum hljóðið eftir leik, sagði KA-liðið hafa náð að slaka á og spila sinn leik eftir að Þróttur/BH jafnaði í 1-1. Þegar upp var staðið hafi sigurinn verið nokkuð öruggur og nú taki við undirbúningur fyrir úrslitaleikinn á laugardaginn. Hann viðurkennir þó að sá leikur verði erfiður.

„Við höfum tapað fjórum sinnum fyrir þeim í vetur þannig að ég á von á erfiðum leik, en leikirnir um síðustu helgi voru nokkuð jafnir þar til þær náðu stiginu sem þær þurftu. HK er með mjög sterkt lið, byrjunarliðið þeirra er í grunninn íslenska landsliðið og þær eru mjög erfiðar við að eiga, en við gefumst ekkert upp,“ sagði Miguel Mateo og samsinnti tíðindamanni þegar hann benti á að allt gæti gerst í bikarúrslitum.