Kveðja til Þórsara frá Aroni Einari
Aron Einar Gunnarsson samdi við Þór eftir að félagaskiptaglugginn var opnaður um miðjan síðasta mánuð og tók þátt í sigurleiknum á Íslandsmeisturum Víkings á heimavelli laugardaginn 18. júlí. Aron sneri síðan óvænt á ný til Katar þar sem hann hefur leikið undanfarin ár, fékk því ekki tækifæri til að kveðja Þórsara og bað akureyri.net því að birta eftirfarandi orðsendingu til þeirra.
Sælir mínir kæru Þórsarar!
Hlutirnir gerðust alltof hratt í erfiðustu ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum – að fara aftur til Katar eftir aðeins einn leik með Þór í þetta skipti. Margt spilar þar inn í sem við förum yfir á pallinum við Hamar við gott tækifæri.
Ákvörðunin var mjög erfið og það sýnir mér hve ég er tengdur þessum klúbbi sterkum böndum; þetta er mitt lið, það er mitt fólk sem sér um liðið og mitt fólk sem styður það.
Ég náði styttra stoppi en ég átti von á, fékk tilboð í kringum Víkingsleikinn og náði ekki að njóta mín eftir hann, en þetta kemur ekki fyrir aftur þegar ég kem heim. Þegar ég kem heim næst verður það til þess að klára ferilinn með mínu fólki.
Ég vona að þið, kæru Þórsarar, berið virðingu fyrir ákvörðuninni sem ég tók fyrir fjölskylduna og sjálfan mig.
Höldum áfram að berjast saman í þessu og fögnum að lokum!
Kveðja,
Aron Einar

Aron Einar Gunnarsson í sigurleiknum gegn Víkingi laugardaginn 18. júlí á VÍS-velli Þórs. Til vinstri er Einar Freyr Halldórsson og hægra megin Víkingurinn Sveinn Gísli Þorkelsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson