Fara í efni
Knattspyrna

KA/Þór tapaði gegn ÍR í Breiðholtinu

Sólveig Lára Kristjánsdóttir, sem hér hleypir af í leik gegn HK í KA-heimilinu, var markahæst í liði KA/Þórs í Breiðholti í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson

ÍR hafði betur gegn KA/Þór í viðureign liðanna í efstu deild kvenna í handknattleik í dag. Leikurinn fór fram á heimavelli ÍR og lokatölur urðu 32:28 heimaliðinu í vil. KA/Þór situr áfram í 6. sæti deildarinnar þegar tveimur umferðum er ólokið.

KA/Þór byrjaði leikinn aðeins betur en hann jafnaðist þó fljótt og jafnt var á flestum tölum fram í miðjan fyrri hálfleik. Þá fóru ÍR-ingar að síga framúr og höfðu fjögurra marka forskot í leikhléi, 17:13.

Forskot heimaliðsins jókst í upphafi seinni hálfleiks en þegar hann var hálfnaður tók KA/Þór við sér og fór að saxa á forskotið. Svo fór að munurinn var kominn niður í eitt mark, 24:23, þegar um tíu mínútur voru til leiksloka og spenna komin í leikinn. En næstu þrjú mörk voru ÍR-inga og þær sigldu sigrinum að lokum örugglega heim, 32:28.

Norðanstúlkum gekk illa að eiga við Söru Dögg Hjaltadóttur í liði gestanna en hún skoraði tólf mörk. Sólveig Lára Kristjánsdóttir var drjúg í vinstra horninu hjá KA/Þór og gerði sex mörk og þær Trude Blestrud Hakonsen og Susanne Denise Pettersen gerðu fimm hvor.

Næsti leikur KA/Þórs er gegn toppliði Vals næstkomandi miðvikudagskvöld og liðið sækir síðan Framara heim í lokaumferðinni um næstu helgi.

Mörk KA/Þórs: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 6, Trude Blestrud Hakonsen 5, Susanne Denise Pettersen 5, Tinna Valgerður Gísladóttir 3 (3 víti), Hafrún Linda Guðmundsdóttir 3, Elsa Björg Guðmundsdóttir 3, Lydía Gunnþórsdóttir 2 (1 víti), Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1.

Varin skot: Bernadett Leiner 8 (1 víti), Ástrós Anna Bender 0.

Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 12 (2 víti), Matthildur Lilja Jónsdóttir 6, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 4, Anna María Aðalsteinsdóttir 3, Solveig Lára Kjærnested 2, Sif Hallgrímsdóttir 2, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 1, Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 1, María Leifsdóttir 1.

Varin skot: Sif Hallgrímsdóttir 5, Ingunn María Brynjarsdóttir 2.

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild kvenna