Fara í efni
Knattspyrna

KA tekur á móti Þrótti í úrslitum karla í blaki

Karlalið KA í blaki vann alla titlana sem í boði voru í fyrra, meistarar meistaranna, bikarmeistarar, deildarmeistarar og Íslandsmeistarar. Mynd: Ármann Hinrik.

Úrslitaeinvígi KA og Þróttar R. um Íslandsmeistaratitil karla í blaki hefst í kvöld. Það verða liðin sem enduðu í 2. og 4. sæti Unbroken-deildar karla sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn. KA sló Aftureldingu út í undanúrslitunum og Þróttur sló út deildarmeistara Hamars. Það þýðir að KA er komið með oddaleiksréttinn og byrjar á heimavelli í úrslitaeinvíginu.

  • Úrslitakeppni Unbroken-deildar karla í blaki
    KA-heimilið kl. 18:30
    KA - Þróttur R.
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Í Unbroken-deild karla var spiluð þreföld umferð. Þróttur kom einu sinni norður, en KA fór tvisvar suður. Þróttur og KA mættust tvisvar í deildarkeppninni í Reykjavík í nóvember. Þróttur vann fyrri viðureignina 3-1, en KA þá seinni 3-2. KA vann þriðju viðureign liðanna 3-1 á sínum heimavelli í byrjun janúar.

Vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Annar leikur liðanna fer fram í Laugardalshöllinni sunnudaginn 19. apríl.