Knattspyrna
Ívar Örn seldur frá KA til Breiðabliks
16.02.2026 kl. 13:03
Ívar Örn Árnason og Fjóla Sigurðardóttir með soninn Bjarka Bent í Boganum í gær, þar sem þau fylgdust með leik KA og Víkings í Lengjubikarkeppninni. Mynd: Ármann Hinrik
Knattspyrnudeild KA hefur selt Ívar Örn Árnason til Breiðabliks í Kópavogi. Þetta var tilkynnt á samfélagsmiðlum KA rétt í þessu.
Ívar, sem leikur sem miðvörður og er fyrirliði liðsins, lék alls 181 keppnisleik fyrir uppeldisfélagið, að því er segir í tilkynningunni; á Íslandsmóti, í bikarkeppni, Evrópukeppni og meistarakeppni KSÍ. „Hann var í liði KA sem vann sigur í Inkassodeildinni sumarið 2016 sem tryggði félaginu sæti í deild þeirra bestu þar sem liðið hefur leikið allar götur síðan auk þess að vera fyrirliði KA sem varð Bikarmeistari 2024. Þá var faðir hans, Árni Freysteinsson, leikmaður í Íslandsmeistaraliði KA sumarið 1989,“ segir í tilkynningu KA.
- Frétt akureyri.net í gærkvöldi: Ívar nær örugglega seldur til Breiðabliks

Mynd sem birtist á heimasíðu KA í dag.