Fara í efni
Knattspyrna

Handbolti: Fram vann KA/Þór örugglega

Herdís Eiríksdóttir skoraði 4 mörk af línunni gegn Fram. Mynd: Ármann Hinrik.

Fram sótti KA/Þór heim í gær í efstu deild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, og fór með öll stigin með sér suður yfir heiðar eftir öruggan 30:24 sigur. Þegar deildarkeppnin er hálfnuð er KA/Þór í 7.-9. sæti af 10 liðum í deildinni með 4 stig úr 9 leikjum.

Fram skoraði fyrsta mark leiksins og náði snemma 2-4 marka forystu sem hélst út fyrri hálfleikinn. Gestirnir gerðu tvö síðustu mörk hálfleiksins og breyttu stöðunni úr 12:10 í 14:10 og þannig stóð í leikhléi.

Framarar skoruðu síðan tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik og sex marka forskot þeirra var of stórt til að KA/Þór næði að ógna því að einhverju ráði. Minnstur varð munurinn þrjú mörk, 26:23, þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum en nær komust heimastúlkur ekki.

KA/Þór gekk illa að ráða við hraða miðju og hraðar sóknir Fram, sem skiluðu oftar en ekki marki, og gekk á sama tíma bölvanlega að ráða við vörn og markvörslu Framara. Enda voru gestirnir með 25 lögleg stopp í vörninni á móti 5 hjá KA/Þór og tvöfalt fleiri varin skot.

Vörn Fram reyndist leikmönnum KA/Þórs erfið og hér á Lydía Gunnþórsdóttir við ofurefli að etja. Mynd: Ármann Hinrik.

Þegar níu umferðum er lokið af deildarkeppninni, og hún þar með hálfnuð, er KA/Þór með 4 stig úr tveimur sigurleikjum. HK og Grótta hafa jafnmörg stig og Stjarnan er á botninum með tvö stig. Næstu lið fyrir ofan eru með 9 stig þannig að þessi fjögur lið virðast ætla að berjast í neðri hlutanum.

Næsti leikur KA/Þórs er gegn ÍBV á heimavelli næstkomandi laugardag en ÍBV er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig.

Mörk KA/Þórs: Lydía Gunnþórsdóttir 6 (3 víti), Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Herdís Eiríksdóttir 4, Joan Rúnadóttir Johannessen 3, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 1.

Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 7, Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 0.

Mörk Fram: Lena Margrét Valdimarsdóttir 5 (1 víti), Hanna Guðrún Hauksdóttir 4, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4 (1 víti), Kristrún Steinþórsdóttir 4, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 4, Harpa María Friðgeirsdóttir 3, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2, Ebba Guðríður Ægisdóttir 1, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 1.

Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 14, Arna Sif Jónsdóttir 0.