Fara í efni
Knattspyrna

Bikarinn: Vestri - Þór og Þór/KA - FH

Ibrahima Balde mætir sínum gömlu félögum í Vestra á Ísafirði. Hann gerði tvö mörk í sigri Þórs á liði Selfoss í 16 liða úrslitunum. Sandra María Jessen í deildarleiknum gegn FH á dögunum; þá vann FH en Sandra gerði öll fjögur mörkin í ógleymanlegum 4:0 sigri Þórs/KA á FH í Bestu deildinni í Hafnarfirði í fyrra. Myndir: Ármann Hinrik

Þór/KA mætir FH á heimavelli í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu og karlalið Þórs fer til Ísafjarðar og mætir Vestra. Dregið var í höfuðstöðvum Knattspyrnusambandsins í hádeginu.

Leikirnir í kvennaflokki verða 11. og 12. júní en bikarleikir karla 18. og 19. júní. Ekki er ljóst hvenær Þór og Þór/KA leika en ætti að liggja fyrir seinna í dag.

Drátturinn í kvennaflokki er sem hér segir:

  • Valur - Þróttur
  • Þór/KA - FH
  • Tindastóll - ÍBV
  • Breiðablik - HK

Þór/KA þurfti aðeins einn sigur til að komast í átta liða úrslitin, burstaði KR 6:0 í 16 liða úrslitum í Boganum 11. maí.

Þór/KA og FH mættust í Bestu deildinni í Boganum 3. maí og þá sigruðu gestirnir 3:0. Stelpurnar okkar fá því heldur betur tækifæri til að hefna fyrir það slæma tap.

FH er í efst sæti Bestu deildarinnar með 13 stig að loknum fimm leikjum ásamt Breiðabliki og Þrótti. Þór/KA er með níu stig.

Erfiður útileikur hjá Þórsurum

Þórsarar ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur; Vestri er á toppi Bestu deildar Íslandsmótsins ásamt Víkingi og Breiðabliki með 13 stig að loknum sex leikjum; hefur unnið fjóra leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum. Þór er ásamt fjórum öðrum liðum með fjögur stig á toppi Lengudeildarinnar, næst efstu deildar Íslandsmótsins.

Átta liða úrslit í karlaflokki:

  • Afturelding - Fram
  • ÍBV - Valur
  • Stjarnan - Keflavík
  • Vestri - Þór

Þór vann Magna 7:0 í 2. umferð bikarkeppninnar í vor í Boganum, í 32 liða úrslitum sigruðu Þórsarar lið ÍR 3:1, einnig í Boganum, og í 16-liða úrslitunum fögnuðu Þórsarar 4:1 sigri gegn Selfyssingum fyrir sunnan.