Fara í efni
Knattspyrna

Bæði lið þurfa sigur í bæjarslag kvöldsins

Þessir kappar munu væntanlega takast hraustlega á í kvöld. KA-mennirnir Daníel Matthíasson og Einar Birgir Stefánsson hafa þarna góðar gætur á Þórsaranum Kári Kristjáni Kristjánssyni í fyrri leik liðanna í vetur. Þórsarinn Hákon Ingi Halldórsson með boltann. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Lokaumferð Olísdeildar karla í handknattleik verður leikin í kvöld og þar skiptir hver einasti leikur máli fyrir lokastöðuna í deildinni. Akureyrarliðin Þór og KA mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri og eins og í hinum leikjum kvöldsins er mikið undir. Með sigri í leiknum eygja Þórsarar von um að komast í 8-liða úrslit deildarinnar og KA þarf einnig á sigri að halda í baráttunni um 4. sæti deildarinnar, sem gefur heimaleikjarétt í fyrstu umferð 8-liða úrslitanna.

Mörg ár eru síðan svona mikið hefur verið í húfi fyrir síðustu umferð deildarinnar. Enn er ekki ljóst hvaða lið verður deildarmeistari eða í hvaða sæti efstu sjö liðin raðast. Þá er ekki ljóst hvert verður áttunda liðið í úrslitakeppninni og sömuleiðis ræðst það í lokaumferðinni hvaða lið fellur úr deildinni og hvaða lið þarf að fara í umspil við lið úr næstefstu deild um sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.

Markverðirnir mikilvægir! Þórsarinn Nikola Radovanovic og KA-maðurinn Ágúst Elí Björgvinsson standa væntanlega vaktina lengstum í kvöld og miklu máli skiptir hvernig þeir standa sig. Myndir: Skapti Hallgrímsson og Hafliði Breiðfjörð.

Bæði lið þurfa að vinna – og „montrétturinn“ einnig í húfi

Fyrir lokaumferðina er KA í 5. sæti deildarinnar með 26 stig, einu stigi á eftir ÍBV í fjórða sætinu. Fyrir neðan KA eru síðan Afturelding með 25 stig og Fram með 24. ÍBV á erfiðan leik fyrir höndum en andstæðingar þeirra eru Valsmenn, sem eru efstir í deildinni og þurfa á sigri að halda til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Sigur gegn Þór í kvöld er því býsna líklegur til að duga KA til að skjótast upp fyrir Eyjamenn og hreppa 4. sætið.

Þórsarar héldu vonum sínum um sæti í úrslitakeppninni á lífi með seiglusigri á útivelli gegn Aftureldingu í næstsíðustu umferðinni. Liðið er í 9. sæti, aðeins stigi á eftir HK sem er í því áttunda. Kópavogsliðið leikur gegn Haukum í síðustu umferðinni en Haukarnir eru í harðri baráttu á toppi deildarinnar, aðeins stigi á eftir FH og tveimur stigum á eftir toppliði Vals. Þórsarar geta því komið sér bakdyramegin inn í úrslitakeppnina ef þeir ná að leggja KA að velli í kvöld – en að sama skapi þurfa þeir að treysta á að HK tapi sínum leik. Nái HK jafntefli og liðin enda jöfn að stigum standa HK-ingar betur að vígi en þeir unnu báða leikina gegn Þór í deildinni.

Það er því ýmislegt undir í viðureign Þórs og KA í lokaumferðinni, til viðbótar við „montréttinn“ sem fylgir auðvitað sigri í nágrannaslag sem þessum.

Daniel Birkelund þjálfari Þórs, til vinstri, og Andri Snær Stefánsson þjálfari KA segjast báðir fullir tilhlökkunar. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Andri Snær ætlar að endurtaka leikinn

Fyrri leik liðanna í deildinni í nóvember sl. lauk með 32:28 sigri KA, þar sem Bjarni Ófeigur Valdimarsson fór á kostum og skoraði 14 mörk. Vegna meiðsla hefur Bjarni Ófeigur lítið getað beitt sér með KA-liðinu í undanförnum leikjum og það er svo sannarlega skarð fyrir skildi. Að auki hefur Norðmaðurinn Morten Linder verið frá vegna meiðsla en þeir félagar hafa verið helsta ógnin fyrir utan í sóknarleik liðsins í vetur.

Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA er að sjálfsögðu farinn að hlakka til að mæta í Höllina og kljást við Þórsara. „Við unnum fyrri leikinn og ætlum okkur að upplifa það aftur,“ segir Andri Snær. „Stemningin í liðinu er góð og það verður gaman að spila aftur í þessari stemningu sem þessir leikir bjóða upp á. Við erum í baráttu um að koma okkur í heimavallarrétt í úrslitakeppninni, þannig að þetta verður veisla,“ segir Andri Snær og er hvergi banginn. „Þessir leikir við Þór eru skemmtilegustu leikirnir fyrir leikmenn beggja liða, við erum spenntir að spila fyrir framan okkar fólk,“ segir Andri Snær. Hann er á heildina litið sáttur við gengi liðsins í vetur. „Veturinn er búinn að vera í heildina góður og við ætlum að halda áfram að bæta okkur,“ segir Andri Snær og nokkuð ljóst að það að ná 4. sætinu myndi skipta talsverðu máli upp á framhaldið.

Stuðningsmenn Þórs eldhressir í fyrri leik liðanna í vetur í KA-heimilinu. Þeir verða án efa fjölmargir í Höllinni í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar hafa engu að tapa og allt að vinna

Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, er líka orðinn spenntur fyrir Akureyrarslagnum. „Við hlökkum að sjálfsögðu mjög til leiksins í kvöld. Leikir nágrannaliða eru alltaf sérstakir og hafa sína eigin þýðingu, óháð því hvernig staðan í töflunni er. Bara það að fá tækifæri til að spila fyrir framan fullt hús er eitthvað sem skiptir alla leikmenn (og þjálfara) miklu máli,“ segir Daniel. Sigur Þórs á Afureldingu í síðasta leik gerir þessa viðureign við KA ennþá þýðingarmeiri, því Þór á enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina. „Fyrir okkur var það auðvitað mjög þýðingarmikið að vinna Aftureldingu og tryggja sætið í Olís-deildinni á næsta tímabili. Við förum því einfaldlega inn í þennan leik með engu að tapa, allt að vinna hugarfar. Síðan verður bara að koma í ljós hversu mikla orku við eigum eftir í tankinum og hversu mikið síðasti leikur tók úr okkur. Þetta var erfiður leikur, við fengum nokkra pústra, þannig að það eru enn nokkur spurningarmerki varðandi hópinn okkar fyrir þennan leik. Auk þess vorum við ekki komin heim fyrr en klukkan fjögur um nóttina eftir leikinn, þannig að undirbúningurinn er ekki alveg ákjósanlegur þegar næsti leikur er innan 72 klukkustunda,“ segir Daniel.

Hann er ekki alveg tilbúinn að gera upp tímabilið í heild alveg strax. „Það er eiginlega efni í sér umræðu og erfitt að svara því í stuttu máli! En fyrir nýtt lið held ég að mikilvægasta markmiðið sé að festa sig í sessi í deildinni og við sögðum það líka fyrir tímabilið. Við erum mjög ánægðir með að hafa náð því. Í heildina held ég að við höfum staðið okkur nokkuð vel miðað við væntingar og það sem við erum með í höndunum. Ef við vinnum í kvöld og komumst í úrslitakeppnina þá væri það rúsínan í pylsuendanum. En óháð því tel ég að við höfum átt tímabil sem við getum verið stoltir af og ánægðir með,“ segir Daniel Birkelund.

  • Leikur Þórs og KA í Íþróttahöllinni hefst kl. 19:30 í kvöld og hafa flestir aðgöngumiðar selst upp í forsölu. Einhverjir miðar gætu þó verið til í Höllinni fyrir leik.
  • Þess má geta, fyrir Akureyringa búsetta á borgarhorninu, að leikurinn verður sýndur á risaskjá í Minigarðinum við Skútuvog, „heimavelli Akureyringa í Reykjavík“ eins og Vilhelm Einarsson vert þar á bæ orðaði það við akureyri.net í dag.
  • Staðan í deildinni
     

Stuðningsmenn KA skemmtu sér konunglega í fyrri leik Akureyrarliðanna í vetur og ljómuðu af gleði þegar lokaflautið gall. Mynd: Skapti Hallgrímsson