Fara í efni
Kjarnaskógur

Hörmungarkafli og tap hjá Þórsurum

Christian Caldwell var eins og oftast áður stigahæstur Þórsara í leiknum, skoraði 19 stig og tók níu fráköst. Mynd: Páll Jóhannesson - thorsport.is.

Þórsarar töpuðu fyrir Skallagrími með 14 stiga mun í 18. umferð 1. deildar karla í körfuknattleik í fyrrakvöld. Lokatölur urðu 75-89, en staðan í leikhléi var 39-55 eftir að Þórsarar höfðu jafnað í 37-37. Hörmungarkafli undir lok fyrri hálfleik varð þeim að falli. 

Gestirnir úr Borgarnesi byrjuðu betur og voru komnir með 11 stiga forskot áður en fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þórsarar hleyptu þeim þó ekki lengra frá sér í bili, munurinn sjö stig eftir fyrsta fjórðunginn. Þórsarar náðu svo að saxa á forskotið og jafna í 37-37 þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum, en þá hljóp allt í baklás og Skallagrímur skoraði 15 stig í röð, Þórsarar náðu að svara með tveimur stigum, en þá kom þriggja stiga karfa í andlitið á þeim í lok fyrri hálfleiks, 2-18 kafli á þremur mínútum og 42 sekúndum. Munurinn 16 stig í leikhléi.

Upphaf seinni hálfleiksins var eiginlega í takti við lok þess fyrri. Skallagrímur jók muninn upp í 24 stig undir lok þriðja leikhlutans, en Þórsarar náðu aðeins að klóra í bakkann í lokafjórðungnum, munurinn að lokum 14 stig eins og áður sagði. 

Finnbogi Páll Benónýsson sækir að körfu Skallagríms. Mynd: Páll Jóhannesson - thorsport.is.

Fimmtánda tapið í 18 leikjum staðreynd og Þórsarar áfram í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Liðin tvö fyrir neðan, Hamar og Fylkir, mættust í gærkvöld og þar hafði Hamar sigur og laumaði sér upp að hlið Þórs. Þór heldur þó 10. sætinu vegna sigurs gegn Hamri í fyrri leik liðanna í Hveragerði. 

Segja má að það veki bæði von og ótta að Þórsarar eigi eftir að mæta báðum þessum liðum, Hamri heima og Fylki úti, og þar má auðvitað ekkert út af bregða. Frammistaðan á löngum köflum í leiknum í gær gefur ekki endilega tilefni til bjartsýni þó þetta séu tvö af þeim þremur liðum sem Þórsarar hafa unnið í vetur.

Þór - Skallagrímur (18-25) (21-30) 39-55 (18-21) (18-13) 75-89

Christian Caldwell skorði 19 stig og tók níu fráköst fyrir Þórsara, en Finnbogi Páll Benónýsson var með hæsta framlagið 21 punkt. Hann skoraði 12 stig og tók sex fráköst. Hjá Skallagrími voru það Milorad Sedlarevic og Jermaine Vereen sem voru mest áberandi, með 20 stig hvor.

Helstu tölur hjá Þórsliðinu, stig/fráköst/stoðsendingar: 

  • Christian Caldwell 19/9/2
  • Finnbogi Páll Benónýsson 12/6/1 - 21 framlagspunktur
  • Axel Arnarsson 12/3/5
  • Eíríkur Frímann Jónsson 10/4/2
  • Pétur Cariglia 9/3/2
  • Paco Del Aquilla 7/6/0
  • Páll Nóel Hjálmarsson 4/0/0
  • Smári Jónsson 2/0/3
  • Hákon Hilmir Arnarsson 0/2/1
  • Týr Óskar Pratiksson 0/0/1

Tölfræði leiksins.

Staðan í deildinni.

Leikir sem þrjú neðstu liðin eiga eftir:

  • Þór: Fjölnir (ú), Hamar (h), Fylkir (ú), Selfoss (ú)
  • Fylkir: Sindri (h), Selfoss (ú), Þór (h), Breiðablik (ú)
  • Hamar: Selfoss (h), Þór (ú), Breiðablik (h), Snæfell (ú)