Fara í efni
KA/Þór

Þór refsað fyrir að nýta ekki færin

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þór og KA eiga alltaf að vera í sömu deild. Helst í Bestu deildinni. Hvað svo sem fólk vill segja um gæðin sem Akureyrarliðin buðu upp á þegar þau mættust á nýja Þórsvellinum í dag, laugardag, þá er þetta það sem við viljum sjá í íslenska fótboltanum.

Löngu uppselt á leikinn, gríðarleg stemning, upphitun hjá stuðningsfólki, áhorfendur búnir að koma sér fyrir 30-45 mínútum fyrir leik, kítingur á milli fylgismanna liðanna. Þórsara í nýju stúkunni og viðbótum við hana og KA-manna á áhorfendapöllunum sem settir voru upp til bráðabirgða fyrir aftan syðra markið. Þetta var eiginlega „erlendis.”

Stuðningsmenn Þórs voru mættir snemma í Hamar og áhorfendastúkan var orðin full af syngjandi Þórsurum löngu fyrir leik. Mynd: Ármann Hinrik

Það var mjög sérstakt að koma í þétt setinn Hamarinn hjá Þórsurum tæplega 90 mínútum fyrir leik og finna þar stemninguna og eftirvæntinguna fyrir þessum fyrsta leik liðanna í efstu deild í 24 ár.

Veðrið var meira að segja skárra en spár höfðu gefið til kynna. Vissulega var nokkur vindur hluta leiksins og 5 stiga hiti en þetta gat vel verið verra. Meira að segja sáust nokkrir sólargeislar yfir Hlíðarfjalli af og til og vindurinn hægði á sér í þeim síðari.

Viðbrögð Þórsara bentu til þess að þeir væru ekki algjörlega sammála dómaranum! Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Kristófer Kristjánsson og Yann Emmanuel Affi gefa það a.m.k. sterklega í skyn en Aron Birkir markvörður tekur ákvörðuninni með jafnaðargeði. Mynd: Ármann Hinrik

Hallgrímur tryggði sigurinn

Og þetta var sannkallaður baráttuleikur frá upphafi til enda. Ekkert gefið eftir í návígjum út um allan völl og talsvert af marktækifærum þrátt fyrir markaleysi lengi vel. Að lokum var það KA sem stóð uppi sem sigurvegari, og auðvitað á dramatískan hátt. Hallgrímur Mar Steingrímsson var felldur eftir snögga sókn KA á 86. mínútu og skoraði sjálfur sigurmarkið af vítapunktinum, 1-0.

Hallgrímur Mar Steingrímsson skorar af öryggi úr vítaspyrnunni. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fyrir vikið er KA loksins komið á blað með fyrsta sigurleikinn í deildinni í ár og lyfti sér upp í níunda sætið með fjögur stig. Þórsarar eru áfram með sex stig í sjöunda sætinu.

Þórsarar mega vel vera vonsviknir með úrslitin því þeir voru sterkari aðilinn meiri hluta leiksins en nýttu ekki góð marktækifæri sem þeir fengu.

Stumrað yfir Isaac Atanga sem meiddist hræðilega strax á fyrstu mínútu. Hann fótbrotnaði mjög illa og verður varla meira með á þessu keppnistímabili. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Slys eftir 28 sekúndur

Dramatíkin byrjaði strax eftir upphafsflaut Ívars Orra Kristjánssonar dómara eftir 28 sekúndur þegar Isaac Atanga, kantmaður Þórsara, slasaðist illa á ökkla og sjö mínútna töf varð á leiknum á meðan hlúð var að honum á vellinum. Leiðinleg byrjun á leiknum en atvikið var slysalegt og engum að kenna.

Það er hætt við að Atanga, sem hefur verið frískur í síðustu leikjum Þórsara, spili ekki fótbolta næstu mánuðina en óttast var að hann væri ökklabrotinn.

Rodrigo Gomes leikmaður KA var einnig borinn af velli meiddur en meiðslin eru sem betur ekki talin mjög alvarleg. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Rodrigo líka borinn af velli

Ívar Orri hafði í nógu að snúast í fyrri hálfleiknum því annað hlé þurfti að gera eftir hálftíma þegar Rodrigo Gomes varnartengiliðurinn reyndi hjá KA lá í annað sinn í leiknum og var að lokum líka borinn af velli. Samkvæmt upplýsingum frá KA eftir leikinn eru meiðslin væntanlega ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu en hnéð mun vera talsvert bólgið.

Og Ívar var í yfirvinnu við að dæma aukaspyrnur, enda ekkert gefið eftir í þessum magnaða grannaslag og barist um hvern bolta frá upphafi til enda.

Ragnar Óli Ragnarsson, lengst til hægri, skallar að marki en Markús Máni Pétursson (23) bjargaði á marklínu; náði að spyrja knettinum aftur fyrir markið. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Fyrri hálfleikurinn tók því tæpar 60 mínútur, með rúmlega 13 mínútna uppbótartíma, og á þeim voru Þórsarar ágengari, áttu sjö marktilraunir gegn þremur og KA-menn sluppu með skrekkinn a.m.k. tvisvar. Bæði þegar Steinþór Már Auðunsson markvörður þeirra varði glæsilega frá Atla Sigurjónssyni úr dauðafæri og síðan þegar þeir björguðu á marklínu eftir skalla Ragnars Óla Ragnarssonar.

Mörg færi í leiknum

Í seinni hálfleiknum, sem var í eðlilegri lengd og sem betur fer laus við atvik eins og þau sem settu svip sinn á þann fyrri, var það KA sem fékk fleiri marktækifæri. Sérstaklega framan af. Aron Birkir Stefánsson fyrirliði og markvörður Þórs varði m.a. glæsilega frá Oliver Heiðarssyni eftir að hann hafði sloppið innfyrir vörn Þórs.

Þór var síðan aftur kominn með undirtökin þegar leið á leikinn en það var eiginlega með ólíkindum að leikurinn skyldi vera markalaus í 86 mínútur. Skömmu fyrir sigurmark Hallgríms fengu liðin sitt opna færið hvort, Steinþór Már í marki KA varði vel frá Aroni Inga Magnússyni og Guðjón Ernir Hrafnkelsson vippaði boltanum yfir Aron Birki og Þórsmarkið líka úr dauðafæri í kjölfarið.

Guðjón Ernir Hrafnkelsson í góðu færi, Aron Birkir lokar vel þannig að bakvörðurinn skaut yfir markið. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Merkið við 27. júlí á dagatalinu

Svo kom atvikið örlagaríka. Þórsarar kvörtuðu reyndar yfir mögulegu broti í aðdraganda þess en Hallgrímur Mar krækti í vítaspyrnuna og skoraði úr henni af miklu öryggi. KA-menn fögnuðu innilega – Hallgrímur sérstaklega – og síðan glöddust þeir vel og lengi með stuðningsmönnum sínum eftir að Ívar Orri flautaði til leiksloka.

Þessi Akureyrarslagur er að baki og full ástæða til að byrja að hlakka til þess næsta sem fer fram mánudagskvöldið 27. júlí, þá á velli KA-manna sem þá verða í meirihluta á áhorfendasvæðunum. Væntanlega á nýja vellinum og með nýju stúkuna klára. Ekki veitir af.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

Umfjöllun á akureyri.net fyrr í kvöld:

Gleði stuðningsmanna KA var sannarlega ósvikin að leikslokum. Mynd: Skapti Hallgrímsson