Fara í efni
KA/Þór

Stigin eru það eina sem skiptir máli

Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði KA. Mynd: Ármann Hinrik

Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði KA segir að stigin í fallbaráttunni séu það mikilvægasta varðandi Akureyrarslaginn gegn Þór í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld en að sjálfsögðu séu viðureignir liðanna sérstakar. Tilhlökkunin sé líka mikil að stíga inn á troðfullan nýja KA-völlinn en viðureign liðanna hefst þar klukkan 19.15.

„Maður finnur í kringum sig að það eru allir spenntir fyrir þessum leik. Pressan hefur byggst upp í vikunni á undan, þetta er risaleikur og það er einfaldlega ógeðslega skemmtilegt að spila þessa leiki. Núna eru allir leikir ótrúlega mikilvægir en þessi er svona með smávegis ekstra, meira en aðrir leikir í deildinni,“ sagði Hans Viktor þegar akureyri.net ræddi við hann í gær, eftir síðustu æfingu KA-liðsins fyrir leikinn.

Tilhlökkunarefni að spila á vellinum

Leikurinn er sá fyrsti á nýja KA-vellinum þar sem um tvö þúsund manns verða til staðar, helmingur þeirra í nýrri og glæsilegri stúku á austurhlið vallarins. Aðspurður sagðist Hans ekki skynja neitt óþarfa stress í kringum það að leikurinn fari fram þar.

Hans Viktor í baráttu við Skagamenninn Erik Sandberg þegar KA-menn sigruðu ÍA á heimavelli á dögunum. Mynd: Ármann Hinrik 

„Nei, það finnst mér ekki. Þetta er fyrst og fremst spennandi og það verður tilhlökkunarefni að spila alla leiki á þessum velli. Hann lítur mjög vel út og núna er búið að setja upp pallana fyrir aftan markið og meðfram hinni hliðarlínunni þannig að við fáum áhorfendur á þremur hliðum. Völlurinn verður því nánast lokaður. Þetta verður geðveikt, fyrsti leikur á nýjum velli ætti að gefa okkur eitthvað aukalega inn í leikinn og við viljum að sjálfsögðu klára dæmið með sigri,“ sagði Hans.

Staðan skiptir alltaf máli

KA mætir til leiks í tíunda sæti af tólf liðum, aðeins þremur stigum á undan Þór sem vermir tólfta og neðsta sætið, og því um algjöran lykilleik í fallbaráttu Bestu deildarinnar að ræða. Oft er talað um að í leikjum Akureyrarliðanna skipti staðan í deildinni engu máli en Hans var ekki tilbúinn til að kvitta undir það.

„Staðan skiptir alltaf máli og hvað þá núna þegar bæði liðin eru í fallbaráttu. Þetta eru gríðarlega mikilvæg stig sem eru í boði fyrir bæði liðin. Að sækja þessi þrjú stig er í raun það eina sem skiptir máli. Að undanförnu hefur allur okkar fókus verið á því að við séum í hreinni fallbaráttu og við viljum koma okkur frá þeim pakka.

Úr fyrri leik Akureyrarfélaganna í vor: Hallgrímur Mar Steingrímsson, Kristófer Kristjánsson, Jakob Héðinn Róbertsson (16), Samuel Kroon og Jeppe Pedersen. Mynd: Ármann Hinrik

Þegar það tekst er hægt að fara horfa eitthvað upp á við. En það er mjög stutt þarna upp, tveir til þrír sigurleikir í röð breyta þessu alveg helling. En þetta er fallbarátta eins og staðan er núna, vonandi tekst okkur að spyrna okkur upp frá henni og þá getum við farið að einbeita okkur að einhverju öðru. Á eftir þessum leik mætum við mörgum af þeim liðum sem eru í næstu sætum við okkur þannig að það er mjög mikilvægur kafli framundan.

Fyrirfram hefðum við að sjálfsögðu ekki viljað vera í þessari stöðu. En svona hefur þetta spilast, við þurfum að sætta okkur við það að vera í þessari fallbaráttu og spila okkur út úr henni. Eftir það getum við farið að horfa fram á veginn,“ sagði fyrirliðinn.

Við erum með ágætis breidd

Hans er einn af aðeins fjórum leikmönnum KA sem hafa náð að spila alla 15 leikina í deildinni í ár og einn af hinum þremur, Jeppe Pedersen, verður í banni í kvöld ásamt Birgi Baldvinssyni. Auk þess eru margir á meiðslalista liðsins og Hans sagði að það hefði að sjálfsögðu sett sinn svip á tímabilið.

„Já, við erum með tvo mjög mikilvæga menn í banni í þessum leik. Svo hafa stórir póstar í liðinu verið frá vegna meiðsla, og margir þeirra verið meiddir lengi, eins og Hrannar Björn og Ásgeir sem hafa ekkert spilað á tímabilinu. Rodri, Oliver, Joan, Samuel og Stubbur (Steinþór Már) missa mikið úr, en miðað við þetta allt saman erum við með ágætis breidd og okkur hefur tekist að vinna þokkalega úr því.“

KA-menn fögnuðu vel og lengi eftir 1:0 sigurinn á Þór í fyrri deildarleiknum í vor. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þurfum að jafna þá í baráttunni

Hans á von á hörkuleik í kvöld.

„Þórsarar eru baráttuglaðir, þeir leggja sig alltaf alla fram, og það er hörkuleikur framundan. Það sást vel í fyrri leiknum gegn þeim í vor, þar var það baráttan sem skipti máli og fótboltinn var númer tvö. Við þurfum því að jafna þá í baráttunni og þá held ég að við séum með aðeins meiri gæði sem eiga að geta klárað leikinn fyrir okkur. Aron Einar verður ekki með þeim, það hefði eflaust gefið þeim eitthvað að vera með hann inni á vellinum og ég ímynda mér að það hefði haft mest áhrif á karakterinn og sjálfstraustið í liðinu.“

Hér er gott að vera

Hans Viktor, sem verður þrítugur í september, leikur sitt þriðja tímabil með KA en hann hafði áður verið allan sinn feril með uppeldisfélaginu Fjölni, samtals níu ár í meistaraflokki, og fimm þeirra í efstu deild. Hann kvaðst kunna afar vel við sig í höfuðstað Norðurlands.

„Mér og fjölskyldunni líður mjög vel hérna á Akureyri, við fluttum strax hingað norður og byrjuðum að vinna hér. Stelpan okkar er að byrja í leikskóla núna í september. Ég er reyndar nýhættur á vinnustað, var að vinna í bókhaldi hjá Enor, og er að svipast um eftir einhverju öðru í staðinn. En ég er með samning út tímabilið 2027 og við erum ekki á förum á næstunni. Hér er gott að vera,“ sagði Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliði KA.