Fara í efni
KA/Þór

Aron Einar til Katar – ekki með gegn KA

Aron Einar Gunnarsson klappar fyrir stuðningsmönnum Þórs eftir sigurinn á Íslandsmeisturum Víkings fyrir viku, laugardaginn 18. júlí. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson hefur samið við félagið Qatar SC í Katar. Liðið er í æfingabúðum á Spáni og Aron fer að öllum líkindum þangað á mánudaginn. Forráðmenn katarska liðsins vildu fá Aron strax út og hann verður því ekki með Þór í Akureyrarslagnum gegn KA í Bestu deildinni á mánudagskvöldið.

Aron samdi við Þór á dögunum en öllum var ljóst að sá möguleiki var fyrir hendi að dvölin yrði ekki löng, einmitt vegna þess að hann átti í viðræðum við lið í Katar um að leika áfram þar í landi í vetur. Aron tók því aðeins þátt í einum leik með uppeldisfélaginu að þessu sinni, fræknum 2:1 sigri Þórs á Íslandsmeisturum Víkings.

Qatar SC er þriðja liðið sem Aron Einar semur við í Katar. Eftir mörg ár í ensku deildakeppninni með Coventry og Cardiff samdi Aron Einar við Al-Arabi í Katar þar sem hann lék frá 2019 til 2024. Hann lék síðan hluta sumarsins 2024 með Þór í næstu efstu deild Íslandsmótsins en gekk til liðs við Al Gharafa síðsumars og var í herbúðum liðsins tvær leiktíðir. 

Aron Einar í leiknum gegn Víkingi á dögunum. Mynd: Skapti Hallgrímsson