Rísið Víkingar! – Nýtt stuðningsmannalag
Úrslitakeppni Toppdeildar karla í íshokkí hefst í kvöld þegar SA Víkingar sækja lið Skautafélags Reykjavíkur heim í Laugardalinn.
Íshokkídeild og leikmenn SA Víkinga hafa bryddað upp á ýmsu í aðdraganda úrslitakeppninnar. Leikmenn meistaraflokks mættu til dæmis á æfingu hjá hokkíkrökkunum í U10 hópnum og höfðu væntanlega jafn mikla ánægju af og börnin. Rakel Hinriksdóttir smellti af meðfylgjandi myndum þegar kynslóðirnar sameinuðust á svellinu.


Stund milli stríða og málin rædd á svellinu. Myndir: Rakel Hinriksdóttir
Fyrsta og eina metal-lag Rúnars Eff
Það vekur ávallt athygli þegar ný stuðningsmannalög verða til hjá íþróttaliðum. Eitt slíkt er fætt í Innbænum, búið að birta brot úr því á samfélagsmiðlum. Lagið kemur út í vikunni, en ekki búið að ákveða nákvæmlega hvenær. Áhorfendur á heimaleik SA gegn SR á fimmtudagskvöld mega líklega eiga von á að heyra lagið þegar SA Víkingar skauta til leiks.
Það er hinn góðkunni tónlistarmaður Rúnar Eff sem samdi lag og texta, mjög stuttan og auðlærðan texta að eigin sögn. Rúnar er hluti af hokkífjölskyldunni, spilaði sjálfur með SA Víkingum á sínum tíma, oft nefndur Lurkurinn, hefur komið að þjálfun innan félagsins og hjá landsliðum og á sjálfur börn í báðum meistaraflokksliðum SA, Unnar Hafberg og Heiðrúnu Helgu. Hann er því tíður gestur í Skautahöllinni og vel þekktur í hokkísamfélaginu.

Íslandsmeistarar í Toppdeild karla í íshokkí 2025: SA Víkingar. Nú styttist í að stuðningsmenn geti kyrjað lag sem samið var sérstaklega fyrir SA Víkinga. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Tíðindamaður akureyri.net hitti Rúnar á leik í Skautahöllinni á sunnudagskvöldið og fékk hann til að segja aðeins frá tilurð lagsins. Rúnar segir að hinir og þessir úr Skautafélaginu hafi minnst á það við sig í gegnum árin að semja stuðningsmannalag fyrir klúbbinn.
„En ég hef verið tregur til þess hingað til,“ segir Rúnar og útskýrir ástæðuna: „Ég hef að mestu verið að semja kántrí, rokk og blústónlist síðustu árin og fannst slíkt ekki henta í þetta.“

Rúnar var þjálfari SA Víkinga 2021 þegar liðið vann Fjölni í úrslitum. Myndaserían hér að ofan sýnir þegar Rúnar fékk kalda vatnsgusu yfir sig þegar titlinum var fagnað. Myndir: Skapti Hallgrímsson.
En núna kom fram hugmynd að sögn Rúnars um að semja lag sem spilað yrði þegar SA Víkingar skauta til leiks. Venjan hefur verið að spila kröftugt rokk og keyra ljósasýningu þegar liðið mætir til leiks, keyra upp stemninguna. „Mér fannst tilvalið að prufa að gera eitthvað svona kraftmikið og þjóðlegt eða víkingalegt. Eitthvað sem auðvelt er að læra og þjónar líka tilgangi sem hvatning fyrir áhorfendur til þess að öskra með: VÍKINGAR! Úr varð þetta Víkinga-metallag, Rísið Víkingar,“ segir Rúnar og tekur fram að þetta sé fyrsta og líklega eina metal-lagið sem hann semur.
Stuttur og auðlærður texti
- Lag og texti: Rúnar Eff
- Flytjandi : Rúnar Eff
- Gítarleikur og forritun: Hörður Halldórsson
- Upptaka og hljóðblöndun: Hörður Halldórsson
- Mastering: Haukur Pálmason