Körfubolti: heimaleik dagsins frestað
Körfuboltalið Akureyrar áttu bæði að spila í dag, en heimaleik kvennaliðs Þórs gegn Vestra hefur verið frestað vegna veðurs. Karlalið Þórs sækir Fylki heim.
Aþena tryggði sér efsta sætið
UPPFÆRT: LEIK FRESTAÐ VEGNA VEÐURS
Kvennalið Þórs í körfuknattleik tekur á móti Ísfirðingum í Vestra í dag. Aþena er í toppsæti 1. deildarinnar með 16 sigra og eitt tap, og hefur liðið þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili. Þór er í 2. sæti deildarinnar, hefur unnið 13 leiki og tapað tveimur. Jafnvel þótt Aþena tapaði báðum sínum leikjum sem eftir eru og Þór ynni alla sína myndi það ekki duga því ef liðin enda jöfn er Aþena með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Fjölnir er í 3. sætinu með 13 sigra og þrjú töp. Vestri er í botnsætinu án sigurs í fyrstu 15 leikjum sínum.
- 1. deild kvenna í körfuknattleik
FRESTAÐ
Þór - Vestri
Þór vann stórsigur í fyrri leik liðanna sem fram fór á Ísafirði í lok nóvember, 132-50.
Þórsarar ekki alveg sloppnir
Karlalið Þórs í körfuknattleik leikur næstsíðasta leik sinn á leiktíðinni á sunnudag þegar liðið sækir Fylki heim í Árbæinn. Þór er í þriðja neðsta sæti deildarinnar, hefur unnið fjóra leiki, Hamar er með þrjá sigra og Fylkir á botninum með tvo sigra. Þórsarar eru ekki alveg öruggir með sæti sitt í deildinni, en geta tryggt það með sigri í dag.
- 1. deild karla í körfuknattleik
Fylkishöllin í Árbæ kl. 19:15
Fylkir - Þór - Útsending: KKÍ TV á Sýn
Áskriftarsjónvarp
Þór vann fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í desember með tíu stiga mun, 96-86.