KA vann bæjarslaginn og sendi Þór í fallsæti
KA náði undirtökunum í fallbaráttu Bestu deildar karla í fótbolta með sætum sigri á erkifjendunum í Þór, 3-0, að viðstöddum tæplega tvö þúsund áhorfendum undir flóðljósunum á nýja KA-vellinum í kvöld.
Mörkin komu á síðustu 25 mínútum leiksins en Jakob Snær Árnason, Birgir Baldvinsson og Adam Ægir Pálsson skoruðu þá fyrir KA sem með sigrinum kemst úr fallsæti og sendir Þór þangað.
KA er nú með 23 stig, Þór 21 og ÍBV 18 í þremur neðstu sætunum en ÍBV mætir Val á morgun. FH er síðan rétt fyrir ofan með 24 stig og er alls ekki sloppið úr fallbaráttunni sem verður til lykta leidd í október.
Akureyrarliðin eiga eftir þrjá leiki hvort eftir þriggja vikna landsleikjafríið sem nú fer í hönd. Þór spilar næst heimaleiki við Stjörnuna og ÍBV og sækir FH heim í lokaumferðinni. KA leikur við Val og Stjörnuna á útivöllum og fær síðan ÍBV í heimsókn í lokaumferðinni.
Rétt eins og í hinum tveimur leikjum liðanna í deildinni í vor og sumar var mögnuð stemning meðal áhorfenda og þó liðin séu í harðvítugri fallbaráttu og talsverðar líkur á að í það minnsta annað þeirra verði að sætta sig við fall þegar upp verður staðið í haust þá er mikil til þess vinnandi fyrir Akureyri og fótboltann í bænum að þau leiki áfram í sömu deild. Og þá að sjálfsögðu í þeirri Bestu!


Jakob Snær Árnason (númer 29) braut ísinn þegar 65 mínútur voru liðnar af leiknum með þrumuskoti fyrir utan teig; boltinn small í stöng og þaðan í netið. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Þrjár breytingar hjá KA en óbreytt hjá Þór
Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson þjálfarar KA gerðu þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá tapleiknum gegn FH í 23. umferðinni. Steinþór Már Auðunsson kom í markið í þeim leik þegar Ívar Arnbro Þórhallsson meiddist og var á milli stanganna í kvöld en Ívar var ekki í hópnum. Þá fóru Snorri Kristinsson og Danijel Dejan Djuric á bekkinn og í þeirra stað komu Hallgrímur Mar Steingrímsson og Jakob Snær Árnason inn í byrjunarliðið.
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs hélt sig hins vegar við sama byrjunarlið og tapaði fyrir Val á Hlíðarenda. Birgir Ómar Hlynsson kom aftur inn í hópinn en bæði Victor Bertomeu og Ásbjörn Líndal Arnarsson voru utan hóps.
Eftir flugeldasýningu þegar leikmenn liðanna gengu inn á völlinn byrjaði KA leikinn betur og eftir aðeins 100 sekúndur átti Adam Ægir Pálsson hörkuskalla í þverslá Þórsmarksins og út eftir fyrirgjöf Guðjóns Ernis Hrafnkelssonar frá hægri.
Þórsarar komust smám saman inn í leikinn og fengu m.a. þrjár hornspyrnur á fyrstu 12 mínútunum. KA-menn voru hins vegar beittari og Aron Birkir Stefánsson í marki Þórs varði glæsilega þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson átti fast skot á markið rétt innan vítateigsins.
Brot á báða bóga
Fyrri hálfleikurinn einkenndist annars af mörgum brotum á báða bóga og Gunnar Oddur Hafliðason dómari hafði í nógu að snúast. Hann greip fjórum sinnum til gula spjaldsins í fyrri hálfleiknum, og mikilvægi leiksins var greinilegt, hvort sem var á baráttu og framlagi leikmanna liðanna eða viðbrögðum og æsingi meðal áhorfenda sem voru vel með á nótunum á báða bóga. Gunnar Oddur fékk þarna krefjandi verkefni sem einn reynsluminnsti dómari deildarinnar að dæma algjöran lykilleik á milli þessara erkifjenda.
Þórsarar fengu fleiri hornspyrnur en KA í fyrri hálfleiknum en náðu ekki að skapa sér teljandi færi úr þeim. Þeirra besta færi í fyrri hálfleik kom á 28. mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson komst að endamörkum hægra megin og átti fína sendingu þvert fyrir markið. Varnarmaður KA náði að trufla Sigfús Fannar Gunnarsson sem náði ekki góðu skoti og Steinþór Már varði auðveldlega.
En KA var hársbreidd frá því að skora þegar þriggja mínútna uppbótartími fyrri hálfleiks var nýhafinn. Hallgrímur Mar tók aukaspyrnu um 25 metra frá Þórsmarkinu og eftir smá snertingu við varnarvegginn þeyttist boltinn beint í markvinkilinn og út.
Staðan var því 0-0 í hálfleik og Þór enn stigi fyrir ofan KA í fallbaráttunni. Eftir markalausa jafnteflið á þessum sama velli í lok júlí voru liðnar einar 230 mínútur frá því boltinn rataði síðast í netmöskvana í viðureignum liðanna í Bestu deildinni.
Rautt spjald í hálfleik og fjórtán gul
KA-þjálfararnir Eiður og Hallgrímur tóku Jeppe Pedersen af velli í hálfleik og settu sóknarmanninn Jakob Héðin Róbertsson í hans stað. Merki um meiri áherslu á sóknarleikinn hjá KA, enda allt í húfi. KA þurfti að spila til sigurs, annað var ekki í boði á þeim bænum, á meðan Þórsarar hefðu verið sáttari við jafntefli.
Leikhléið gekk ekki þrautalaust fyrir sig því Gunnar dómari sýndi þar Halldóri Mar Einarssyni liðsstjóra Þórs rauða spjaldið og Hallgrími Jónassyni þjálfara KA það gula. Hann þurfti samtals að nota spjöldin fimmtán sinnum því hvort lið um sig fékk sjö gul spjöld í leiknum.
Eftir góða byrjun Þórs í seinni hálfleik fékk KA fyrsta færið, Hallgrímur Mar tók aukaspyrnu rétt utan vítateigs Þórs en skaut yfir markið og inn í Þórshópinn þar fyrir aftan.
En það hlaut að koma mark. KA-menn voru augljóslega farnir að flýta sér í öllum aðgerðum í seinni hálfleik á meðan Þórsarar hægðu á leiknum, enda hefði eitt stig verið hagstæðara fyrir þá en andstæðingana á Brekkunni. KA þurfti mark og það kom á 66. mínútu.
Tvö mörk á sex mínútna kafla
KA átti þá ágætis sókn upp völlinn vinstra megin, Hallgrímur Mar renndi boltanum inn á miðjuna á Jakob Snæ Árnason sem lék áfram og skaut síðan föstu skoti með jörðu af 25 metra færi – fallegt skot og hnitmiðað sem Aron Birkir réð ekki við. KA var komið með undirtökin, 1-0.
KA fylgdi þessu eftir og komst í 2-0 á 72. mínútu. Eftir hornspyrnu frá vinstri fékk Hallgrímur Mar boltann aftur og sendi inn á markteiginn þar sem Birgir Baldvinsson var mættur, skallaði í varnarmann og inn, og staða KA heldur betur orðin vænleg.
Adam gerði út um leikinn
Áfram var KA-liðið líklegt og á 82. mínútu gerði það endanlega út um viðureignina. Hröð sókn upp hægri kantinn, Guðjón Ernir Hrafnkelsson náði góðri fyrirgjöf og Adam Ægir Pálsson sneiddi boltann viðstöðulaust af markteignum hægra megin og í hornið fjær. Staðan 3-0 og stemningin í nýju KA-stúkunni í hæstu hæðum, og ekki síður í stuðboltunum hinum megin við völlinn.
Þarna voru úrslitin ráðin, Þórsarar áttu ekki möguleika á að ráða við þetta forskot á lokamínútunum og horfa nú fram á þrjár erfiðar vikur í fallsæti deildarinnar áður en þeir fá tækifæri til að rétta sinn hlut á ný.
KA var vel að sigrinum komið þegar horft er á leikinn í heild og markatalan segir sitt. Það var kannski ekki æpandi þriggja marka munur á liðunum en KA-menn voru beittari og líklegri til að skora á meðan Þórsurum gekk illa að skapa sér alvöru marktækifæri þó þeir settu KA-liðið oft undir mikla pressu og fengju slatta af hornspyrnum.
Hallgrímur er mikilvægur
Hallgrímur Mar Steingrímsson sýndi enn og aftur hversu mikilvægur hann er KA-liðinu. Hann missti af leik á dögunum og spilaði bara hluta þess síðasta en í kvöld var hann klár í 89 mínútur og lagði upp tvö markanna. Hallgrímur býr endalaust til sóknarfæri fyrir KA-liðið sem þarf á því að halda að hann verði í sínu besta standi í lokaumferðunum. Á miðjunni er Mikael Breki Þórðarson orðinn algjör lykilmaður, ásamt André Römer, og Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði stendur alltaf fyrir sínu sem einn af bestu miðvörðum deildarinnar.
Þórsliðið var sem fyrr kraftmikið og getur sett andstæðinga sína undir mikla pressu sem hefur gefist því vel í bestu leikjum þess á tímabilinu. En þeir náðu ekki að ógna KA-markinu nægilega mikið í kvöld til að fá eitthvað út úr leiknum og verða að sætta sig við að hafa verið lakari aðilinn í þessum grannaslag.
Þórsarar eru hins vegar hvergi nærri hættir, ef að líkum lætur, því þeir eiga framundan tvo algjöra lykilleiki á heimavelli gegn Stjörnunni og ÍBV og eiga enn alla möguleika á að snúa fallslagnum sér í hag þó svona hafi farið í kvöld.
Lið KA: Steinþór Már Auðunsson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson (Kári Gautason 89.), Hans Viktor Guðmundsson, Markús Máni Pétursson, Birgir Baldvinsson - André Römer, Jeppe Pedersen (Jakob Héðinn Róbertsson 46.), Mikael Breki Þórðarson (Snorri Kristinsson 86.) - Adam Ægir Pálsson (Bjarki Fannar Helgason 86.), Jakob Snær Árnason, Hallgrímur Mar Steingrímsson (Danijel Dejan Djuric 89.)
Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson - Kristófer Kristjánsson (Ragnar Óli Ragnarsson 79.), Yann Emmanuel Affi, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Vilhelm Ottó B. Ottósson - Þorri Ingólfsson (Bjarni Guðjón Brynjólfsson 59.), Kevin Vazquez (Peter Ingi Helgason 79.), Einar Freyr Halldórsson, Christian Jakobsen (Aron Ingi Magnússon 83.) - Ágúst Eðvald Hlynsson (Fannar Daði Malmquist Gíslason 79.), Sigfús Fannar Gunnarsson.
Áhorfendur voru 1.925, þremur færri en á hinum heimaleik KA í lok júlí.