KA í fallsæti fyrir lokaumferðina í Bestu
KA tapaði illa gegn Val á útivelli í dag í næstsíðustu umferð úrslitakeppni neðri hluta efstu deildar karla í knattspyrnu, Bestu deildinni. Lokatölur urðu 4:1 Valsmönnum í vil og staðan er því orðin grafalvarleg hjá KA þegar aðeins einni umferð er ólokið. Þórsarar lögðu Stjörnuna og sendu KA-menn þar með niður í fallsæti. KA þarf því að treysta á að Þór misstígi sig í síðustu umferð, til að eiga einhverja von um að halda sér í deildinni.
Fyrir leikinn var KA tveimur stigum á undan nágrönnunum í Þór og ljóst að annað liðið fellur með ÍBV niður í Lengjudeildina. Sigur í dag hefði þýtt að KA væri enn með örlögin í sínum höndum og þeir byrjuðu leikinn af krafti. Fátt var þó um markfæri, það var ekki fyrr en á 20. mínútu að KA náði að ógna markinu. Jakob Snær Árnason átti þá gott skot utan vítateigs hægra megin sem fór í fjærstöngina og framhjá.
Valur skorar upp úr þurru
Það kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Valsmenn komust yfir á 23. mínútu. Myles Veldman fékk boltann langt úti vinstra megin og lét vaða að marki. Hvort sem þetta var úthugsað markskot eða misheppnuð fyrirgjöf þá sveif boltinn smekklega yfir Steinþór Má Auðunsson í markinu og hafnaði efst í fjærhorninu.
Það tók KA ekki langan tíma að jafna metin. Mikael Breki Þórðarson keyrði upp völlinn eftir að KA hafði unnið boltann á miðsvæðinu og sendi á Adam Ægi Pálsson, sem var rétt utan vítateigslínunnar. Adam Ægir lék inn í teiginn, tók eina snertingu framhjá Hólmari Eyjólfssyni fyrirliða Vals og lagði boltann síðan snyrtilega í nærhornið. Valsmenn voru nálægt því að komast aftur yfir skömmu síðar en Steinþór varði þá vel frá Shkelzen Veseli af markteig.
KA nýtti ekki frumkvæðið undan vindi
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks var KA með frumkvæðið undan vindinum en gekk illa að nýta sér það. Besta færið kom á 39. mínútu þegar Jakob Snær Árnason skallaði hornspyrnu Hallgríms Mars Steingrímssonar í þverslá og André Römer náði ekki almennilegu skoti úr frákastinu í dauðafæri og Stefán Þór Ágústsson í Valsmarkinu náði að verja.
Í seinni hálfleik léku Valsarar undan vindinum og réðu ferðinni að mestu leyti. Þeir höfðu ekki að neinu að keppa og gátu verið afslappaðir og skynsamir en KA-menn virtust of meðvitaðir um mikilvægi leiksins og höndluðu hreinlega ekki spennustigið. Leikur þeirra hefur orðið heilsteyptari með hverri viku upp á síðkastið en núna var annað uppi á teningnum. Menn náðu alls ekki saman, leikur liðsins var ráðleysislegur, og eftir að Valsmenn komust yfir á 50. mínútu virtust KA-menn aldrei líklegir til að fá eitthvað út úr leiknum. KA-mönnum gekk illa að hreinsa boltann frá markinu eftir langt innkast og Tryggvi Hrafn Haraldsson fékk knöttinn í vítateigsboganum. Hann tók nokkrar snertingar með boltann á lofti og spyrnti honum síðan hárnákvæmt upp í markhornið. 2:1.
Á 59. mínútu komust Valsarar í 3:1 eftir frábærlega útfærða skyndisókn, sem hófst hjá Degi Orra Garðarssyni. Hann óð upp völlinn, sendi boltann á Tryggva Hrafn og fékk hann aftur. Lék inn í teig og lyfti boltanum laglega yfir Steinþór Má. Tíu mínútum síðar áttu Valsmenn skalla í slá og síðustu 20 mínútur leiksins voru leiknar í hálfgerðu slagviðri, sem hjálpaði leikmönnum ekki. Dagur Orri innsiglaði 4:1 sigur Vals með síðustu spyrnu leiksins, sem kom eftir snögga sókn þegar KA-menn voru fáliðaðir til baka.
Eins og áður segir gera úrslitin það að verkum að KA er í fallsæti þegar einni umferð er ólokið. Þórsarar unnu leik sinn gegn Stjörnunni og eru einu stigi á undan KA fyrir lokaumferðina næstkomandi laugardag. KA þarf því að ná stigi eða stigum gegn ÍBV og treysta á að Þór vinni ekki FH. En til þess að fá stig í lokaleiknum þarf KA-liðið að ná að róa taugarnar og láta pressuna ekki bera sig ofurliði. Það vakti reyndar athygli í dag að allir varamenn KA sem komu við sögu voru af yngri kynslóðinni en þrautreyndir atvinnumenn á borð við Danijel Dejan Djuric og Diego Montiel sátu allan tímann á bekknum.
Lið KA: Steinþór Már Auðunsson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson (Bjarki Fannar Helgason 81.), Hans Viktor Guðmundsson, André Römer, Markús Máni Pétursson, Birgir Baldvinsson - Jakob Snær Árnason, Jeppe Pedersen (Snorri Kristinsson 74.), Mikael Breki Þórðarson (Valdimar Logi Sævarsson 68.), Hallgrímur Mar Steingrímsson - Adam Ægir Pálsson (Jakob Héðinn Róbertsson 74.).
Staðan í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar
Lokaleikur KA er heima gegn ÍBV á laugardaginn og á sama tíma leika Þórsarar gegn FH í Hafnarfirði.
- Laugardag 24. október
KA - ÍBV