Fara í efni
KA/Þór

Íshokkíhelgi heima og að heiman

Kvenna- og karlalið Skautafélags Akureyrar leika bæði í dag og á morgun.

Íshokkíið verður í aðalhlutverki á íþróttasviði akureyrskra liða í dag og á morgun. SA Víkingar, karlaliðið í íshokkíinu, spila tvo leiki í Toppdeildinni, báða gegn úrvali U20 landsliðsins. Kvennaliðið tekur þátt í fjögurra liða móti, Atlantic Cup, sem fram fer í Skautahöllinni í Laugardal.

  • Báðir karlaleikirnir fara fram í Skautahöllinni á Akureyri, sá fyrri í dag, laugardag, kl. 16:45, og sá seinni á sama tíma á morgun Fyrirkomulagið í Toppdeild karla í íshokkí er dálítið sérstakt, eins og rakið var í upphitun akureyri.net fyrir fyrsta leik SA Víkinga. Fjórða liðið í mótinu er skipað U20 landsliðsmönnum frá félögunum þremur, mismunandi eftir því hver andstæðingurinn er. 
  • Kvennalið SA í íshokkí tekur þátt í fjögurra liða hraðmóti um komandi helgi. Mótið er samstarfsverkefni Íshokkísambands Íslands og Íshokkísambands Írlands og er hluti af verkefni sem Alþjóða íshokkísambandið, IIHF, stendur að. Fyrsta umferð mótsins fór fram í gærkvöld, en SA mætir liði Fjölnis í dag og svo írska landsliðinu á morgun. Fyrsta umferð mótsins fór fram í gær. SA vann SR með gullmarki í framlengingu, 3-2. Fjölnir vann írska landsliðið sömuleiðis 3-2. 


LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER - íshokkí

Tveir hokkíleikir í boði í Skautahöllinni á Akureyri um helgina, SA Víkingar gegn U20 liðinu sem er fjórða lið Toppdeildarinnar. Sá fyrri er á dagskrá í dag.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    U20 - SA

Önnur umferð Atlantic Cup. Hinn leikur dagsins er viðureign SR og írska landsliðsins sem hefst kl. 20.

  • Íshokkí
    Atlantic Cup, 2. umferð
    Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
    Fjölnir - SA

SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER - íshokkí

Seinni leikur SA Víkinga og U20 liðsins í Toppdeild karla í íshokkí á dagskrá síðdegis.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - U20

Lokaumferð Atlantic Cup. Hinn leikur dagsins er viðureign Reykjavíkurliðanna, Fjölnis og SR, sem hefst kl. 20.

  • Íshokkí
    Atlantic Cup, 3. umferð
    Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
    SA - Írland