Fara í efni
KA/Þór

Hallgrímur bestur og Mikael efnilegastur

Hallgrímur Mar og Mikael Breki ásamt Hjörvari Maronssyni, formanni knattspyrnudeildar KA. Mynd af vefsíðu KA.

Hallgrímur Mar Steingrímsson var kjörinn besti leikmaður karlaliðs KA í knattspyrnu í sumar og Mikael Breki Þórðarson var valinn efnilegasti leikmaður liðsins. Þetta var tilkynnt á lokahófi knattspyrnudeildar KA um helgina. Hallgrímur Mar fékk einnig viðurkenningu fyrir að hafa verið markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu og var einnig heiðraður fyrir að hafa leikið 400 keppnisleiki fyrir KA. Þá fékk Jakob Snær Árnason viðurkenningu fyrir 100 keppnisleiki fyrir KA.

KA tókst ekki að halda sæti sínu í efstu deild karla, þrátt fyrir 5:1 stórsigur gegn ÍBV í síðustu umferðinni á laugardaginn. Þar með lauk lengstu samfelldu veru karlaliðs frá Akureyri í efstu deild, að því er fram kemur í frétt á vefsíðu KA. „Niðurstaða sumarsins er vissulega mikil vonbrigði en þrátt fyrir erfitt sumar á vellinum var stuðningur KA fólks algjörlega til fyrirmyndar frá upphafi og til enda og ómetanlegt að finna fyrir kraftinum í félaginu. Það er klárt mál að við munum læra af sumrinu og komum sterk til baka,“ segir í fréttinni.

  • Eins og áður sagði var Hallgrímur Mar kjörinn besti leikmaður liðsins og varð einnig markahæstur. Hann skoraði alls 14 mörk í sumar, þar af 13 í deildinni og eitt í bikarkeppninni. Hann er markahæsti leikmaður KA frá upphafi með 139 mörk, þar af 88 í efstu deild, sem er félagsmet.
  • Hallgrímur náði einnig þeim áfanga í sumar að leika sinn 400. keppnisleik fyrir KA og fékk viðurkenningu fyrir það afrek á lokahófinu. Leikirnir eru nú orðnir 404 og þar af eru 233 í efstu deild. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins.
  • Mikael Breki, sem er aðeins 19 ára, var valinn efnilegasti leikmaðurinn. Hann lék stórt hlutverk í liði KA í sumar og skoraði tvö mörk. Hann lék sína fyrstu keppnisleiki með meistaraflokki sumarið 2022.
  • Á lokahófinu var Jakob Snær Árnason einnig heiðraður fyrir að ná 100. keppnisleik sínum fyrir KA á tímabilinu. Leikir hans eru nú alls 120 og hefur hann skorað 21 mark fyrir félagið, þar af sex í sumar.

Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA, og Jakob Snær Árnason. Mynd af vefsíðu KA.

KA ætlar aftur í efstu deild

Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA, segir í ávarpi til stuðningsfólks að félagið ætli að byggja upp öflugt lið með það skýra markmið að komast aftur í efstu deild eftir fallið í haust.

Í ávarpinu þakkar Hjörvar stuðningsmönnum og styrktaraðilum fyrir ómetanlegan stuðning í sumar. Hann segir niðurstöðu tímabilsins vissulega valda vonbrigðum en bendir jafnframt á að KA hafi verið tíu ár samfellt í efstu deild. Á þeim tíma vann liðið bikarmeistaratitil, varð í öðru sæti deildarinnar og lék Evrópuleik á KA-svæðinu.

Hjörvar segir nú þurfa að fara yfir tímabilið, læra af því sem fór úrskeiðis og hefja uppbyggingu á ný. „Markmiðið er skýrt: Að koma KA aftur í deild þeirra bestu, þar sem við viljum vera,“ sagði hann. Hann hvetur stuðningsmenn og aðra áhugasama til að taka þátt í uppbyggingarstarfinu og sagði marga þegar hafa lýst yfir áhuga á að leggja félaginu lið. 

„Árið 2028 fagnar KA 100 ára afmæli. Knattspyrnufélag Akureyrar á sér stolta og merka sögu. Í gegnum tíðina hefur félagið unnið til fjölda verðlauna og fagnað bæði Íslands- og bikarmeistaratitlum í þeim íþróttagreinum sem félagið okkar starfrækir. Sú saga er byggð á samstöðu, óeigingjörnu starfi, metnaði og trú á félagið okkar.

Og þeirri sögu er hvergi nærri lokið.

Við ætlum að halda áfram að skrifa sögu KA. Við ætlum að byggja upp öfluga knattspyrnudeild þar sem metnaður, samheldni og vinnusemi verða í fyrirrúmi. Markmiðið er skýrt: Að koma KA aftur í deild þeirra bestu, þar sem við viljum vera,“ segir Hjörvar Maronsson í ávarpi sínu til KA-manna og stuðningsfólks.